Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 16
Helgarblað 30. maí –2. júní 201416 Fréttir
„Þá ertu bara laminn“
n Leyniupptökur af innheimtu Hilmars og Davíð Smára n Hilmar vildi ekki hlusta á „kjaftæði“
D
V sagði frá því á þriðjudag
að hópur manna hefði gert
uppreisn gegn Hilmari Leifs-
syni vegna óhefðbundinna
innheimtuaðgerða hans
gegn fjölskyldumanni. Þar var sögð
saga manns sem var rukkaður vegna
bílaláns sem hann yfirtók 2006. Upp-
haflega var lánið tvær milljónir sem
hann hafði staðið skil á en upphæð-
in sem hann var rukkaður um var
sex milljónir. Maðurinn lýsti mikilli
hræðslu og sagðist sofa með hlaðna
byssu við rúmgaflinn til þess að geta
verndað fjölskyldu sína.
Á upptökum sem DV hefur
undir höndum heyrist Hilmar með-
al annars tala við meintan skuldara,
sem gengur undir nafninu Einar, um
það að ljúka eigi málinu. Það sem
fram kemur á upptökunum gengur í
berhögg við það sem Hilmar sagði við
DV á dögunum þar sem hann sagðist
ekki hafa verið í neinum innheimtu-
aðgerðum, heldur hefði hann aðeins
verið að aðstoða fjölskylduvin. Vildi
hann vita hvort maðurinn gæti ekki
gert eitthvað í skuldamálinu fyrir vin
sinn.
Aðspurður hvort hann hefði ógn-
að manninum sagði Hilmar svo ekki
vera. „Þetta var engin innheimta. Það
er málið. Það var enginn að rukka
einn eða neinn,“ sagði Hilmar.
Segist hafa bjargað honum
Fyrst ræða þeir saman á almennu
nótunum og síðan segir Hilmar:
„Heyrðu, hvað segið þið, eigum við
ekki að ljúka þessu máli?“
Einar útskýrir málið út frá sinni
hlið og virðast Davíð og Hilmar leggja
nokkurn skilning í málið til að byrja
með. Hilmar segir honum frá því að
til hafi staðið að þekktir ofbeldismenn
réðust á hann en hann hafi stopp-
að það af. Þess má geta að þeir sem
DV hefur rætt við og þekkja til segja
það aldrei hafa staðið til að aðrir
menn færu á eftir honum. Þessi hót-
un Hilmars hafi verið til að hræða
manninn þannig að hann kæmi út
sem „góði gæinn“ eins og einn orð-
aði það. Þó hafi hann viðhaft sömu
kröfur og hann sagði mennina ætla
að viðhafa.
„Þú getur alveg fengið x og félaga á
þig. Það munaði engu en við stoppuð-
um það, þeir eru í gæslu núna … Þeir
voru á leiðinni hingað sko. Ég stoppaði
þá af,“ segir hann á upptökunni.
„Þannig er þetta“
Þeir halda áfram að ræða málið fram
og til baka þar til Hilmar segir: „Við
náum ekki að bakka út úr þessu, þá
færðu bara menn, þú skuldar þetta og
þá ertu bara laminn. Nenni ekkert að
hlusta á kjaftæði eins og þetta. Ef ég
kaupi bíl og hann er í steik … og hann
og hann og hann … þá, þannig er
þetta. Þannig þú þarft einhvern veginn
að gera þetta, tala við x eða x skiluru.
Þetta lítur svona út.“ Vísar Hilmar þar
í fyrrverandi eiganda bílsins annars
vegar og hins vegar bílasalann.
Þá kemur annar maður inn í sam-
talið, vinur Einars, og segir: „Það hef-
ur aldrei verið hægt að ræða þetta við
x nema að því leyti að hann vill fá sex
milljónir.“
Einar tekur undir og segir: „ Fyrir
mér eru sex milljónir, alveg sama
hvort að einhver komi og berji mig
eða hvað sem gerist skiluru. Ég á ekki
sex milljónir. Þær eru ekki til. Ég mun
ekki finna þær alveg sama hvað menn
segja.“ Í samtali við DV neitaði Hilmar
að um innheimtu hefði verið að ræða.
„Þetta var engin innheimta […] Ég
viðurkenni það að ég fór og talaði við
hann. Ég taldi mig vera að ræða við vin
og kunningja. Ég hélt að ég gæti rætt
þetta. Sannarlega voru bílaviðskipti
þarna sem annar maður þarf að borga
fyrir,“ segir hann. „Þá sagði hann bara
nei, hann myndi ekki borga neitt.“
„Þó þú gerir það með
löppunum á þér“
Því næst á upptökunni heyrist Hilmar
segja: „Ef þú skuldar sex milljónir
skiluru og einhver þarf að borga þær
þá náttúrulega borgar þú þær bara þó
þú gerir það með löppunum á þér ef
menn rukka það þannig skiluru. Ég get
ekki borgað skuldirnar mínar þannig
með því að segja að ég eigi þær ekki til,
ég fer bara og finn þær. Nú er ég bara
að tala við þig. Svo það sé á hreinu, x
segist hafa þurft að borga þetta út af
einhverjum bílaviðskiptum við þig.“
Í samtali við DV segir Hilmar um
þessi ummæli varðandi lappirnar á
Einari: „Hann gerir ekkert sitjandi
á rassgatinu. Þú drullast á lappir og
gerir eitthvað. Menn þurfa að borga
skuldirnar sínar – það þurfa allir að
gera það.“
„Af hverju ertu að slá mig?“
Á annarri upptöku sem DV hefur
undir höndum heyrast Einar, eigandi
bílasölunnar sem sá um söluna á
bílnum og Davíð Smári ræða um lán-
ið og hvers vegna það sé statt eins og
það er. Sá fundur átti sér stað 3. mars
á bílasölunni sem Einar starfar á.
Á upptökunni útskýrir Einar
hvernig þetta líti út gagnvart honum
en bílasalinn talar um að það sé
vegna þess að vanskil hafi verið á
einni greiðslu. Einar segir að bæði
hann og fyrrverandi eigandi bílsins
hafi gengið frá greiðslunni en það hafi
ekki skilað sér. Á þessum tímapunkti
samtalsins eru þeir búnir að fara fram
og til baka yfir málið og málsaðilar
orðnir nokkuð æstir.
Bílasalinn: „Þú getur ekki sett
þetta yfir á mig.“
Einar: „Ég er ekki að setja þetta
yfir á einn né neinn. En nú er verið að
hengja mig algjörlega fyrir þetta rugl.“
Bílasalinn: „En þú keyptir þenn-
an bíl, Einar (annað nafn).“
Einar „Og hvað í andskotanum þó
ég hafi keypt hann!“
Davíð Smári: „Strákar, ég nenni
ekki að hlusta á þetta!“
Einar: „Þó ég hafi keypt bíl er þá
eðlilegt að ég fái á mig handrukkara
8–10 árum seinna?“
Davíð Smári: „Af hverju ertu að
æsa þig svona? Vertu ekki að æsa þig,
þetta er þinn vinnustaður.“
Einar: „Og hvað með það, þetta
fer geðveikt í taugarnar á mér.“
Davíð Smári: „Og hvað með það?
Ég held að mönnum sé bara ekkert al-
veg sama um það að þú sért öskrandi
hérna fyrir framan alla.“
Einar: Nei, ókei.“
Davíð Smári: „Nei, ókei. Ef þú ætl-
ar að hafa þetta svona þá skulum við
bara hafa þetta svona. Og þá borgaru
líka hverja einustu fokking krónu, ég
skal alveg … (læti heyrast).
Einar : Af hverju ertu að slá mig?“
Davíð Smári: „Af hverju er ég að
slá þig? Af því þú öskrar ekkert á mig
hérna! (mjög reiður) Ég er að reyna
fokking hjálpa þér … fokking …
Upptakan fjarar út en læti heyrast
bak við. n
M
aðurinn sem hitti Hilmar
Leifsson og Davíð Smára
Helenarson á kaffihúsinu
Mílanó fyrr í vetur og ætl-
aði að mæta þeim fyrst á Geirsnefi
og í Breiðholtinu segir í samtali
við DV að hann hafi fundið sig til-
neyddan til að bregðast við.
Ekkert varð af hópslagsmálum
en líkt og DV greindi frá á þriðjudag
mætti sérsveit lögreglunnar á svæð-
ið. Maðurinn er rúmlega þrítugur
og stundar vaxtarrækt. Hann er vin-
ur bílasalans og Einars, mannsins
sem er sagður skulda sex milljónir
vegna bílaláns. Maðurinn bland-
aðist inn í málið þegar hann brá á
það ráð sjálfur að ræða við Hilmar
Leifsson vegna skuldarinnar eftir
að Hilmar og Davíð Smári heim-
sóttu bílasöluna. Maðurinn segir
allt hafa verið í hers höndum á
bílasölunni eftir heimsóknir Davíðs
Smára og Hilmars og honum hafi
brugðið mjög þegar hann heim-
sótti hana.
Herkví
Líkt og DV hefur greint frá var
Einar sendur í leyfi eftir að Davíð
Smári og Hilmar heimsóttu hann
á bílasöluna. Hann var frá vinnu
launalaust í tvo mánuði vegna
málsins. DV greindi frá því á þriðju-
dag að bílasalan hefði verið í her-
kví eftir atburðina og eftir að inn-
heimtuaðgerðir hófust.
Blöskraði
„Mér blöskraði þetta svo mikið að
ég varð bara að gera eitthvað. Ég
svaf á þessu og velti því fyrir mér í
nokkra daga og átti í innri baráttu.
Á endanum var það þannig að ég
fann þetta byggjast upp innra með
mér – ég fann það svo sterkt í hjart-
anu,“ segir maðurinn.
„Þeir áttu þetta bara alls ekki
skilið. Mér fannst þetta bara svo of-
boðslega óréttlátt,“ segir hann. Eftir
heimsóknina á bílasöluna tók hann
því til sinna ráða. „Það var verið að
hóta honum [Einari, innsk. blm.],“
segir hann og bætir við: „Það er
bara ekki í lagi.“
Fór sjálfur
„Ég fór sjálfur út frá þeim í miklu
áfalli,“ segir hann og segist hafa
tilkynnt bílasalanum og Einari
að hann ætlaði sér að gera eitt-
hvað í þessu. Þeir voru báðir mjög
ákveðnir í því að þeir vildu ekki að
maðurinn blandaði sér í málin.
„Við viljum ekkert stríð,“ sögðu þeir
við hann að hans sögn en honum
fannst mikilvægt að láta þetta sig
varða.
„Ég hafði þá samband við Davíð
Smára og bað hann um að koma á
fundi. Ég vildi hitta þá báða saman
og þeir vissu alveg nákvæmlega af
hverju ég vildi hitta þá. Það er al-
veg klárt mál,“ segir hann. Ákveðið
var að hittast á kaffihúsinu Mílanó í
Reykjavík. Þar voru Hilmar og Dav-
íð Smári báðir með fjölskyldurnar
sínar. Þeir færðu sig í annan enda
salarins, að hans beiðni, til að ræða
saman en til átaka kom líkt og DV
hefur áður greint frá. „Á meðan ég
ræddi við við Hilmar þóttist hann
ekki kannast við neitt. Hann stóð
svo upp og sparkaði í stólinn minn.“
Nokkru síðar mættust þeir á N1
í Ártúnsholti. Maðurinn segir að
þegar þeir hittust þar hefði hann
orðið fyrir miklu mótlæti og hótun-
um í sinn garð og fjölskyldu sinnar.
Það geti hann ekki látið viðgangast.
Oft dæmdur
fyrir ofbeldi
Davíð Smári Helenarson er oft nefndur
Dabbi Grensás í daglegu tali. Hann er
þrítugur en hefur ítrekað fengið dóma
fyrir líkamsárásir og á árunum 2003–2011
var hann dæmdur fimm sinnum fyrir slík
brot. Samkvæmt heimildum DV er Davíð
staddur erlendis um þessar mundir. Hann
komst í fréttirnar sumarið 2007 fyrir
að hafa ráðist á knattspyrnudómara í
miðjum leik. „Ég verð greinilega að gera
eitthvað í mínum málum, það er alveg
augljóst. Þetta er bara endapunktur,“
sagði Davíð Smári í viðtali við Kastljós
eftir atvikið. Greint var frá því í ársbyrjun
2008 að hann hefði ráðist á sjónvarps-
manninn Sverri Þór Sverrisson, Sveppa,
og kýlt hann. Davíð hringdi í Sverri stuttu
síðar og baðst afsökunar. Á upptökunum
hér til hliðar má lesa um samskipti Davíðs
Smára við annan mann þar sem Davíð
slær til mannsins við innheimtuaðgerðir.
„Þeir áttu þetta bara alls ekki skilið“
Fór til fundar við Hilmar eftir innheimtu
„Þeir voru
á leiðinni
hingað sko. Ég
stoppaði þá af