Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Qupperneq 18
18 Fréttir Helgarblað 30. maí –2. júní 2014 „Menn verða bara að treysta mér“ n Þingmaður Framsóknarflokksins er bæjarfulltrúi í Grindavík og hluthafi í Vísi P áll Jóhann Pálsson, þing­ maður Framsóknarflokks­ ins, á fimm prósenta hlut í útgerðinni Vísi hf. á móti föður sínum og systkinum. Vísir undirbýr nú flutning á allri fisk­ vinnslu til Grindavíkur, en þar gegn­ ir Páll Jóhann stöðu bæjarfulltrúa og formanns hafnarstjórnar Grinda­ víkurhafnar. Pétur Hafsteinn Pálsson, bróðir Páls, er framkvæmdastjóri Vísis en faðir þeirra er stjórnarformaður og stofnandi fyrirtækisins. Með flutningunum verða starfs­ stöðvar Vísis á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík lagðar niður í áföngum en starfsfólki boðin vinna í Grinda­ vík. Skipulagsbreytingarnar hafa verið gagnrýndar harðlega af stéttar­ félögum, sveitarstjórnarmönnum og starfsmönnum Vísis í fyrrnefnd­ um byggðarlögum. Þá hafa áform fyrir tækisins verið rædd á Alþingi og stjórnarliðar sakaðir um sinnuleysi. Komst ekki á aðalfund Páll Jóhann fullyrðir að hann hafi ekki átt þátt í þeirri ákvörðun að færa starfsstöðvar Vísis til Grinda víkur, enda hafi hann ekki komist á síðasta aðalfund Vísis. „Auðvitað er þetta mikið áfall fyrir þessa staði, svo það er skiljanlegt að menn spyrni við fótum og sveitarstjórnarmenn geri allt sem þeir geta til að halda þessum störf­ um í heimabyggð. Ég sem sveitar­ stjórnarmaður í Grindavík og sem al­ þingismaður skil það vel,“ segir hann í samtali við DV. Þingmaðurinn seg­ ir þó augljóst að rekstur útgerðarinn­ ar verði hagkvæmari með því að flytja starfsstöðvarnar á einn stað. En hvað með starfsfólkið og byggðaröskunina? „Fólkinu er ekki sagt upp, því er gefinn frestur og boð­ ið að vinna áfram hjá fyrirtækinu á öðrum stað.“ Vegna flutninganna hef­ ur fjölskyldufyrirtæki Páls verið sak­ að um skeytingarleysi og lítilsvirðingu gagnvart starfsfólkinu á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík. „Á móti spyr ég, ef Vísir hefði sagt öllu þessu fólki upp, hefði það ekki verið lítilsvirðing? Vís­ ir hefur boðist til að vinna áfram að því að gera þetta með sem minnstri röskun. Þetta er alvarlegt mál og Vís­ ir vill milda það eins og hægt er,“ seg­ ir þingmaðurinn og bendir á að stefnt sé að því að ný starfsemi hefjist þar sem stöðvar Vísis voru áður til húsa. „Það er engan búið að reka, og boð­ ist er til að vinna með samfélögunum að þessum breytingum eins og hægt er. Að vísu er fólki boðin vinna áfram hjá fyrir tækinu á öðrum stað og það er eins og það sé stóra syndin.“ Ræddi mál fyrirtækisins við aðra þingmenn Í samtali við DV vakti Páll Jóhann athygli á því að líkt og byggðarlögin þrjú hefði Grindavík orðið fyrir ýmiss konar röskun í fortíðinni. „Bræðslan hér, sem var máttarstólpinn í Grinda­ víkurhöfn, fór að stærstum hluta á Neskaupstað með öllu sem því fylgir. Svo fór Grindvíkingurinn núna síðast til Vestmannaeyja og ekkert heyrð­ ist frá neinum héðan,“ nefnir hann sem dæmi. „Það eru líka flutningar frá Grindavík, blóðtaka hér. Allt er þetta breytingum háð.“ Páll segist hafa rætt við þingmenn um málefni fyrirtækis síns og gagn­ rýnt þá fyrir að segja ekki allan sann­ leikann þegar rætt er um sjávar­ útvegsmál. Hann segir að þegar Byggðastofnun hafi sett 100 milljóna króna hlutafé í rekstur Fjölnis á Þing­ eyri hafi minna verið rætt um þá stað­ reynd að Vísir hafi lagt 250 milljónir til félagsins. „Á meðan Byggðastofn­ un setti 100 milljónir setti Vísir 250 en menn voru ekkert að segja það. Menn bara sögðu hvað Vísir væri búið að græða síðan. Menn þurfa að passa sig þegar þeir vita betur að segja allan sannleikann. Það voru ákveðnir þing­ menn sem ég hitti og reyndi að benda þeim á að þeir ættu nú að reyna að segja allan sannleikann,“ segir Páll Jóhann. „Líf eftir Vísi“ Hvað finnst þingmanninum um mál­ flutning sveitarstjórnarmanna í litlu byggðarlögunum þess efnis að stjórn­ völd hafi ekki brugðist nægilega við flutningum Vísis? „Stjórnvöld hafa verið að vinna í þessum málum, en það eru takmörk fyrir því hvað stjórn­ völd, ráðherrar og þingmenn geta gert,“ svarar hann og bætir við: „Á þessu eina ári sem ég hef setið á þingi hefur alls kyns fólk komið að máli við mig sem heldur að maður geti bara gengið inn í ráðuneyti og sagt emb­ ættismönnum að gera hitt og þetta. Hvað er í valdi stjórnvalda? Þau geta varla skyldað Vísi eða önnur fyrirtæki til að vinna aflann hér eða þar.“ Aðspurður hvort hann telji það ekki skapa hagsmunaárekstra að sitja á Alþingi og eiga hlut í stórri útgerð bendir Páll á að hann hafi ekki greitt atkvæði um veiðigjöldin. „Ég held mig bara til hlés þegar þetta er rætt á þingi og blanda mér ekki í þá umræðu. Ég á tæp fimm prósent í Vísi, var búinn að selja mig út úr fyrirtækinu, svo ég hefði þess vegna geta sagt við fólk að það væri nú líf eftir Vísi. Þekki það sjálfur. Svo fékk ég arð og þar voru þessi fjögur prósent. Annars hef ég ekki unnið hjá Vísi í tólf ár.“ Mótfallinn róttækum breytingum Sem áður segir er útgerðin alfarið í eigu nærfjölskyldu Páls. „Hitt er ann­ að mál að minn tilgangur og yfirlýsing áður en ég fer inn á þing er að miðla minni þekkingu úr útgerð og af sjó. Ég hef verið á sjó á litlum færabát­ um og 3.000 tonna uppsjávarskipum, verið skipstjóri, vélstjóri og á dekk­ inu. Þessari reynslu er ég tilbúinn að miðla á þingi, svo menn verða bara að treysta mér. Sumir gera það en aðrir ekki eins og gengur,“ segir hann. Páll telur mikilvægt að skoða hvernig vernda megi sjávarbyggðir fyrir byggðaröskun í framtíðinni. Hann telur þó ekki ástæðu til að gera róttækar breytingar á fiskveiðistjórn­ unarkerfinu. „Það er nú verra að gera róttækar breytingar, það er sama hvernig það er,“ segir Páll og bætir því við að kúvendingar séu sjaldan far­ sælar lausnir þótt Íslendingar telji sér stundum trú um að svo sé. Bróðir Páls fái frið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson for­ sætisráðherra hefur hvatt til þess að Vísi og viðsemjendum verði gefinn friður til að finna lausn á málinu. „Rík­ isstjórnin hefur að sjálfsögðu sett sig inn í málið og fylgist með því en for­ stjóri fyrirtækisins sem um ræðir hefur lýst því yfir í fréttum að hann og fyrir­ tækið séu að vinna að því með heima­ mönnum á hverjum stað að ná niður­ stöðu sem verði ásættanleg fyrir alla,“ sagði hann á Alþingi þann 2. apríl en forstjórinn sem Sigmundur vísar hér til er sem fyrr segir bróðir Páls. Viðræðurnar hafa nú skilað því að lokun stöðvarinnar á Djúpavogi verð­ ur frestað um eitt ár. Bæði Sigmund­ ur og Sigurður Ingi Jóhannsson, land­ búnaðar­ og sjávarútvegsráðherra, virðast líta flutningana alvarlegum augum og hafa heimsótt Djúpavog og rætt við sveitarstjórnarmenn þar. Samkvæmt heimildum DV hafa fleiri þingmenn lagt leið sína þangað og lýst yfir áhyggjum af þróun mála. n Jóhann Páll Jóhannsson johannp@dv.is Fulltrúi útgerðarinnar Áframsendir smáskilaboð frá þeim til ráðherra Athygli vakti í fyrra þegar Páll Jóhann lýsti því yfir að hann liti á sig sem fulltrúa útgerðarmanna á Alþingi. Þetta sagði hann bæði í umræðum á þingi og í ræðu á aðalfundi Landssambands íslenskra út­ vegsmanna. Fjölmiðillinn Skástrik greindi frá því að á fundinum hefði Páll sagst oft fá smáskilaboð frá útgerðarmönnum um slægingarstuðla sem hann áframsendi til ráðherra. „Ég reyni að gera eins og ég mögulega get. Ég lofa ykkur því. Ég er búinn að lýsa því yfir, meira að segja úr pontu Alþingis, að ég sé bara fulltrúi útgerðarmanna,“ sagði Páll að því er fram kom í umfjöllun Skástriks. Páll situr í atvinnuveganefnd. Þrátt fyrir að hann hafi ekki greitt atkvæði um lækkun veiðigjalds tók hann þátt í nefndarstörfum við vinnslu lagabreyting­ anna, tjáði sig um þær og greiddi atkvæði með meirihlutaáliti atvinnuveganefndar. Í ljósi þess að veiðigjöld Vísis lækkuðu úr 450 milljónum króna í 231 milljón má segja að umrædd lög hafi sparað fjölskyldufyrir­ tæki Páls rúmlega 200 milljónir. „Ef Vísir hefði sagt öllu þessu fólki upp, hefði það ekki verið lítilsvirðing? Vel tengdur Páll Jóhann Pálsson er þingmaður Fram­ sóknarflokksins, bæjarfulltrúi í Grindavík, formaður hafnar­ stjórnar Grindavíkurhafnar og á hlut í Vísi hf. á móti systkinum sínum og föður.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.