Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 20
20 Fréttir Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
É
g sé enga aðra lausn en að
safna frárennsli saman í tank
og keyra því í burtu,“ segir
Ólafur Örn Haraldsson, þjóð-
garðsvörður á Þingvöllum.
Þrátt fyrir að fullkomið þriggja þrepa
skolphreinsikerfi sé í nýju gestastof-
unni á Þingvöllum sem staðsett er
á Hakinu, brún Almannagjár, segir
Ólafur óvíst hvort kerfið hreinsi öll
óæskileg efni frá frárennsli áður en
það skilar sér aftur út í hraunið og að
endingu í Þingvallavatn.
„Það er ekkert óunnið skólp að
renna út í Þingvallavatn og fráveitu-
málum er háttað með besta mögu-
lega hætti. Það er bara ekki eins gott
og við hjá þjóðgarðinum viljum. Við
erum stærstu fráveituaðilinn við
vatnið og förum fram á að þessir hlut-
ir séu í lagi hjá öðrum. Þess vegna eig-
um við að vera til fyrirmyndar í þess-
um málum. Vatnið á að njóta vafans.“
Fráveitumál sumarhúsa
ófullnægjandi
Fráveitumál við Þingvallavatn hafa
verið mikið í umræðunni undan-
farið. Vísir greindi frá því nýlega að
athugun samstarfshóps Heilbrigðis-
eftirlits Suðurlands, sveitarfélaga og
þjóðgarðsins á Þingvöllum um frá-
veitu- og neysluvatnsmál sumarhúsa
innan verndarsvæðisins leiddi í ljós
að ekkert þeirra nærri 700 sumar-
húsa sem standa á verndarsvæði
uppfylli skilyrði sem gerð eru.
Þá hefur einnig verið fjallað um
hitamengun í suðurenda vatnsins af
völdum Nesjavallavirkjunar. Ofan á
þetta bætist síðan almenn aukning
mengunar af völdum bílaumferðar
og iðnaðar.
Tærleikinn í húfi
„Á Hakinu hefur þrennt valdið okk-
ur vonbrigðum varðandi frárennsl-
ismál,“ segir Ólafur. „Stöðin er of lítil
miðað við fjölgun ferðamanna sem
við finnum verulega fyrir enda leggja
margir þeirra leið sína á Þingvelli.
Við giskum á að um 500.000 manns
komi á Hakið á ári. Í öðru lagi eru
deildar skoðanir um það hvort þriðja
þrepið í ferlinu hreinsi út köfnunar-
efni,“ en aukning köfnunarefnis í
vatninu gæti ýtt undir þörunga-
myndun sem aftur leiddi til þess
að Þingvallavatn gæti tapað sínum
heimsfræga tærleika
og bláma. „Í þriðja
lagi höfum við verið
ósátt við gerjun í rot-
þróm þar sem hita-
stigið á svæðinu er
lágt.“
Ólafur segir að
niðri á Þingvöllum
taki jarðvegspúðinn
mun betur við en
uppi á Hakinu þar
sem þar sé aðeins
um hraun að ræða.
„Fráveitumál eru
langt frá því að vera
í ólestri. Það er ekki
málið heldur eigum
við að vera í fararbroddi á svæðinu
og í heiminum hreinlega þegar kem-
ur að þessum málum.“
Ástæða til að hafa áhyggjur
Í samtali við DV nýlega sagði Hilmar
Malmquist, fyrrverandi forstöðu-
maður Náttúrufræðistofu Kópavogs
og vatnalíffræðingur, fulla ástæðu
til að hafa áhyggjur af þróun áhrifa
Nesjavallavirkjunar á Þingvalla-
vatn og mengunar almennt. Hilm-
ar, sem er nú forstöðumaður Nátt-
úruminjasafns Íslands, hefur ásamt
starfsfólki Náttúrufræðistofu Kópa-
vogs rannsakað vatnið um árabil.
„Almennt er köfnunarefni að
aukast í vatninu vegna mengunar.
Sennilega er eitthvað af því vegna
mengunar frá Evrópu sem og iðnaði
hér heima og vegna aukinnar bíla-
umferðar og fráveitumála. Vatnið er
einstakt á heimsvísu og þessu ber að
taka alvarlega.“
Þá hefur Örn Jónasson, bóndi á
Nesjum við Þingvallavatn, kvartað
vegna áhrifa Nesjavallavirkjunar á
vatnið. Hann segir kísilútfellingu
hafa stóraukist síðan virkjunin tók
til starfa fyrir 25 árum. „Á góðviðris-
degi sést hvítur botn tíu metra frá
landi. Það er kísill sem streymir und-
an hrauninu frá virkjuninni. Þetta
var ekki svona áður en virkjunin
kom.“ n
Vill keyra öllu skólpi í burtu
n Vatnið á að njóta vafans n Fráveitumál sumarhúsa í ólestri
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Ólafur Örn Haraldsson
þjóðgarðsvörður
Segir þjóðgarðinn eiga að
vera leiðandi í fráveitumál-
um á svæðinu og í heiminum.
myndir sigTryggur ari
Þingvallavatn Hitamengun frá Nesjavöllum, hugsanlega aukin kísilútfelling, mengun vegna bílaumferðar og iðnaðar og loftslagsbreytinga meðal þess sem ógna vatninu.
Við höfum kjark
Gréta BjörG 3. sæti jóna BjörG 4. sætiGuðfinna 2. sætisveinBjörG Birna 1. sæti
KosninGasKrifstofa suðurlandsBraut 24Hittu okkur á facebookfacebook.com/framsoknogflugvallarvinir