Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Page 26
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Þorsteinn Guðnason • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
26 Umræða Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
Mér fannst þetta
bara svo klikkað
Framsókn í evrópsku ljósi
María Ósk Jónsdóttir segist hafa hætt við að taka þátt í þætti Ásdísar Ránar. – DV.is
M
ér þykir miður að þú skyldir í
dag er við mættumst á förn-
um vegi kalla mig „ógeðs-
lega rasista kellingu“, sagði
Marta Bergmann á Facebook-síðu
sinni í vikunni og beindi orðum sín-
um til Egils Helgasonar fjölmiðla-
manns. Egill hafði gagnrýnt Mörtu
fyrir að taka undir orð oddvita Fram-
sóknarflokksins í Reykjavík, Svein-
bjargar Birnu Sveinbjörnsdóttur,
um að afturkalla lóð undir byggingu
mosku í Sogamýrinni.
Orð Sveinbjargar um afturköllun
á lóð undir moskuna hafa vakið hörð
viðbrögð. Stjórnmálafræðingur-
inn Eiríkur Bergmann Einarsson
sagði til dæmis að Framsóknar-
flokkurinn væri farinn að daðra við
þjóðernispopúlisma. Guðmundur
Hálfdanarson sagnfræðingur taldi
að Framsóknarflokkurinn væri að
prufukeyra andúð á innflytjendum
í kosningabaráttu sinni og að skil-
in milli hans og þjóðernispopúlískra
flokka á meginlandi Evrópu væru
endanlega horfin
Moskumálið vekur upp ýmsar
spurningar og er sú fyrsta og aug-
ljósasta sjálfsagt sú hversu langt
eigi að ganga í því að virða og sitja
undir pólitískum skoðunum sem
byggja á þjóðernishyggju, hatursá-
róðri, rasisma, mannhatri og andúð
á innflytjendum. Egill Helgason lét
Mörtu Bergmann heyra sína skoðun
á málflutningi hennar en bað hana
jafnframt afsökunar á því að hafa
verið dónalegur við hana. Okkur er
kennt að virða skoðanir annarra og
í vestrænum lýðræðisríkjum er tján-
ingar- og skoðanafrelsi. Viðbrögð
Egils í moskumálinu eru lýsandi fyr-
ir spennuna sem leiðir af þessari
spurningu: Hann hefur óbeit á
skoðunum Mörtu en veit samt að
hún verður að hafa rétt á að fá að
viðra þær.
Sams konar umræða fer nú fram
í ýmsum löndum Evrópu, meðal
annars í Svíþjóð þar sem Sænski
demókrataflokkurinn – þjóðern-
ispopulískur flokkur sem er mótfall-
inn innflytjendum, nýtur sívaxandi
stuðnings. Í síðustu þingkosning-
um fékk flokkurinn tíu prósent at-
kvæða, hann fékk tvo menn í kosn-
ingum til Evrópuþingsins í vikunni
og gæti fengið meira en 15 prósent í
þingkosningunum í haust. Svíar vita
ekki alveg hvernig þeir eiga að bregð-
ast við uppgangi Sænska demókrata-
flokksins þar sem meirihluti þjóðar-
innar er andsnúinn flokknum og
stefnu hans.
Í vetur hafa í Svíþjóð komið upp
erfiðleikar vegna þessa þar sem sum-
ir fjölmiðlamenn hafa þótt of gagn-
rýnir á flokkinn og að skoðanir þeirra
sjálfra liti of mikið umræðuna um
sænsk stjórnmál. Þannig var starfs-
maður útvarpsstöðvarinnar P4 Rad-
io Stockholm, Soran Ismail, sendur í
leyfi frá störfum fram yfir þingkosn-
ingarnar í haust eftir að hann hafði
gagnrýnt sænsku demókratana
harkalega í langan tíma og meðal
annars sagst hata þá. Í kjölfarið fóru
nokkrir aðrir starfsmenn sænska
ríkis útvarpsins í frí sjálfviljugir til að
sýna Ismail stuðning. Í lýðræðisríkj-
um, sama hvort þau heita Ísland eða
Svíþjóð, þykir ekki við hæfi fjölmiðla-
menn, sérstaklega hjá ríkisrekn-
um miðlum, hafi svo sterkar skoð-
anir á tilteknum framboðum eða
stjórnmálaflokkum. Ef slíkir flokkar
ná eyrum kjósenda og eru kosnir
til ábyrgðarstarfa á sviði stjórnmála
með lýðræðislegum hætti þá má
ekki mismuna þeim. Lýðræðið þarf
að ráða för og andstæðingar þeirra
þurfa að bíta í það súra epli.
Slík mál eins og moskumálið á Ís-
landi og mál Soran Ismail í Svíþjóð
eru í vissum skilningi lýsandi fyr-
ir þann veruleika sem er að verða
til í Evrópu í dag. Í raun er um að
ræða árekstra á milli ólíkrar heims-
sýnar; hinnar frjálslyndu og alþjóð-
legu og svo hinnar ófrjálslyndu og
þjóðernis legu. Allt frá Íslandi og Sví-
þjóð til Ungverjalands og Grikklands
njóta stjórnmálaflokkar sem spila
á þjóðernispopúlisma, gagnrýni á
Evrópusambandið og andúð á inn-
flytjendum aukins stuðnings. Nýaf-
staðnar kosningar til Evrópuþings-
ins eru í stórum dráttum sigur fyrir
þjóðernispopúlíska flokka í Evrópu.
Vandamálið, og hættan, er sú að aðr-
ir stjórnmálaflokkar sem ekki hafa
þessa þjóðernispopúlísku stefnu fari
í auknum mæli að taka hana upp af
því að farvegur virðist vera fyrir þjóð-
ernis- og einangrunarhyggju. Þetta á
við í flestum löndum Evrópu, allt frá
Frakklandi til Íslands.
Framsóknarflokkurinn hefur til
að mynda löngum daðrað við þjóð-
ernishyggju og eins andúð á inn-
flytjendum og útlendingum. Vigdís
Hauksdóttir hefur til dæmis sagt
að flóttamenn á Íslandi eigi að bera
ökklabönd, eins og fangar sem
eru að ljúka afplánun, og nú kem-
ur oddviti flokksins í Reykjavík með
moskuútspilið án þess þó að Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson segi
nokkuð við því. Er formaðurinn ekki
að ljá hugmynd Sveinbjargar sam-
þykki sitt með þögninni? Er þetta
taktík hjá flokknum að leyfa einstaka
frambjóðendum og þingmönnum
óáreittum að halda fram ógeðfelld-
um skoðunum í þeirri von að ein-
hverjir kjósendur stökkvi á vagninn?
Framsóknarflokkurinn getur
ekki lengur haldið því fram að þessi
upphlaup frambjóðenda og þing-
manna flokksins séu einskærar til-
viljanir. Flokkurinn veit sem er að
margir Íslendingar eru ginnkeypt-
ir fyrir þjóðernishyggju og andúð
á útlendingum og alþjóðahyggju
– hugmyndinni um Ísland fyrir Ís-
lendinga – og reynir flokkurinn að
spila á þessa strengi. Þarna liggja
mörg atkvæði og með því að ala á
fordómum getur Framsóknarflokk-
urinn fært þessa kjósendur nær
sér. Framsóknarflokkurinn hefur
nú í fjöldamörg ár ekki staðið fyrir
neitt sérstakt annað en popúlíska
hentistefnu og atkvæðaveiðar með
skyndilausnum.
Formaður flokksins er sjálfur
skyndilausn sem fundin var þegar
flokkurinn var við það að hverfa
í könnunum í kjölfar hrunsins og
Sveinbjörg borgaroddviti er það
líka eftir að Óskar Bergsson, Magn-
ús Scheving og Guðni Ágústsson
gengu úr skaftinu. Framsókn hopp-
ar svo yfir leitt bara á einhvern kosn-
ingavagn sem forystan heldur að geti
skilað flokknum völdum. Síðast voru
það stórfelldar skuldaafskriftir eða
leiðrétting eins og flokkurinn kýs að
kalla útspilið og nú átti það að vera
„Rasismi fyrir Reykjavík“.
Það er ástæða til að vera vel á
verði, og stíga ákveðið niður fæti,
þegar Framsóknarflokkurinn fetar
sig inn á þessar þjóðernispopúl-
ísku brautir í atkvæðaveiðum sínum.
Flokkurinn veit að slíkur málflutn-
ingur, eins og til dæmis í moskumál-
inu, getur virkað í kosningum og
stórsigrar þjóðernispopúlískra flokka
í Evrópu geta ýtt enn frekar undir
slíkan málflutning hjá flokknum. Á
sama tíma er líka ljóst að þeir sem
eru „pólitískt rétthugsandi“ þurfa
að virða skoðana- og tjáningarfrelsi
þingmanna og frambjóðenda Fram-
sóknarflokksins, líkt og í moskumál-
inu. Staðan getur því orðið snúin á
Íslandi að þessu leyti, líkt og í Sví-
þjóð, þar sem viss tilhneiging er fyrir
hendi til að reyna að koma í veg fyr-
ir að hatursfullum skoðunum gegn
fólki á grundvelli trúarbragða eða lit-
arhafts sé útvarpað. Sem betur fer er
hins vegar ekki líklegt að aðrir stjórn-
málaflokkar í landinu feti inn á þess-
ar brautir þjóðernishyggju og popúl-
isma, að minnsta kosti hefur það
ekki verið raunin síðustu árin eftir að
Frjálslyndi flokkurinn var og hét. n
Sólkonungur toppar
Ólafur Arnarson, hagfræðingur og
bloggari, hefur slegið í gegn með
bók sinni, Skuggi sólkonungs sem
fjallar um Davíð Oddsson eins og
flestir vita. Sólkonungurinn skaust
efst á metsölulista Eymundsson og
ljóst að hún nýtur lýðhylli. Í bók-
inni er grjóthörð gagnrýni á leið-
togann og ferill hans frá einkavæð-
ingu og til Morgunblaðsins rakinn.
Víst er að Ólafi veitir ekki af
sölunni og velgengninni en Friðrik
J. Arngrímsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, vann gegn hon-
um meiðyrðamál og ýtti Ólafi út í
gjaldþrot.
Benedikt í vanda
Benedikt Jóhannesson, útgefandi og
stjórnmálamaður, er í vanda vegna
uppnáms sem orðið hefur vegna
vals á áhrifamestu konum Íslands.
Fullyrt er að konum hafi verið boð-
ið að vera í blaðinu
gegn því að borga
yfir 100 þúsund
krónur. Ásthildur
Sturludóttir, bæjar-
stjóri í Vestur-
byggð, hefur upp-
lýst að henni hafi
verið boðin aðild. „Frjáls verslun
bauð mér í tölvupósti að vera þátt-
takandi í „veglegu afmælis riti“ um
áhrifamestu konurnar á Íslandi.
Það kostar reyndar 127 þús plús
vsk!,“ skrifaði hún. Benedikt hefur
brugðist við með því að segja aug-
lýsing blaðsins hafi verið illa orðuð
og viðtöl séu aldrei seld.
Sundlaug Lilju
Á Hofsósi og í nágrenni njóta
hjónin Baltasar Kormákur og Lilja
Pálmadóttir vinsælda. Þau reka
hestabúgarð á Hofi í nágrenni
þorpsins. Hofsósbúar njóta þess
að hafa eina
fallegustu og
sérstæðustu sund-
laug sem fyrir-
finnst á landinu.
Úr lauginni má
njóta útsýnis yfir
Skagafjörðinn.
Það merkilega er að Lilja Pálma-
dóttir og félagar hennar byggðu
laugina og gáfu Hofsósbúum.
Hjónin eru gjarnan í Skagafirði án
þess að vera mjög upptekin af auð
sínum eða frægð. Baltasar þeytist
þess í milli um heiminn og leik-
stýrir Hollywood-myndum.
Eyðimörk Framsóknar
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir, leið-
togi Framsóknar í Reykjavík, er
á góðri leið með að hala inn fylgi
sem nægir til að
sleppa inn í borg-
arstjórn og rjúfa
þar með eyði-
merkurgönguna
sem staðið hefur
í eitt kjörtímabil.
Fylgið sem hún
dregur að með velþóknun Sig-
mundar Davíðs Gunnlaugssonar for-
manns er að mestu tilkomið vegna
þeirrar skoðunar frambjóðandans
að afturkalla eigi leyfi til byggingar
mosku í Reykjavík. Þetta er fylgi
af sama toga og Frjálslyndi flokk-
urinn sótti í á sínum tíma þegar
hann reif sig upp úr algjörri eymd
og endaði með yfir 7% fylgi með
því að tala gegn útlendingum og
höfða til rasista. Sá flokkur þurrk-
aðist síðan út eins og þekkt er.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Leiðari „Sem betur fer er
hins vegar ekki lík-
legt að aðrir stjórnmála-
flokkar í landinu feti inn
á þessar brautir þjóðern-
ishyggju og popúlisma.
Smjörklípa Sigmundar Umsjón: Henry Þór Baldursson
Miklu meira en mínar
væntingar voru
Kári Stefánsson um lífssýnasöfnun ÍE. – DV
Mér fannst orðið
„múslimur“ ekki fyndið
Guðrún Bryndís Karlsdóttir um andrúmsloftið í Framsókn. – DV.is