Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Síða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Síða 30
Helgarblað 30. maí –2. júní 201430 Umræða H úsnæði er langstærsti liður í framfærslukostn­ aði flestra fjölskyldna. Það veltur því mikið á því hvaða kostnaður er lagður á hús­ næði hvort endar ná saman í heim­ ilisrekstrinum. Stærsti kostnaður við húsnæði er ekki byggingarkostnaður, heldur vextir. Sá liður hefur auðvitað stór­ hækkað eftir að verðtrygging var innleidd og lánastofnunum veitt frelsi til að ákveða vexti. Það á jafnt við hvort sem sá sem býr í íbúðinni er skráður eigandi eða leigjandi. Þannig hefur sú frumþörf að hafa þak yfir höfuðið verið gerð að fé­ þúfu fyrir lítinn hóp auðmanna með vaxtaokri. Stórfelldur eignamissir fjölda fólks í kreppunni stafar af uppsöfn­ uðu vaxtaokri. „Velferðarstjórn“ Samfylkingar og Vinstri grænna ákvað að tryggja að fjárplógsmenn bankanna héldu fengnum hlut og í kjölfarið voru þúsundir manna bornar út á götu. Fjárfestar byrjuðu að kaupa íbúðir á hrakvirði til að leigja þessu sama fólki á okurverði, eða til ferðamanna á ennþá hærra verði. Öngþveiti Þannig hefur skapast öngþveiti í hús­ næðismálum alþýðunnar í Reykjavík sem þegar hefur aukið á ýmis félags­ leg vandamál og ójöfnuð í borginni. Fjöldi fólks býr í óíbúðarhæfu hús­ næði eða hefur engan samastað. Borgaryfirvöld í Reykjavík hafa hvorki hreyft hönd né fót til að bregð­ ast við þessum vanda sem heldur áfram að vaxa á meðan húsnæðis­ braskararnir brýna klærnar. Í aðdraganda kosninganna hefur Samfylkingin kynnt áform um byggingu 2.500–3.000 leigu­ íbúða í Reykjavík. Ef þetta verður að veruleika er ekki fyrirséð hverj­ ir hafa efni á að búa í þessum íbúð­ um eða hvort þetta nær að vega upp á móti þeim fjölda íbúða sem braskararnir ná að leggja undir sig á sama tíma. Enda er í hæsta máta ótrúverðugt að flokkar sem stóðu að því að hrekja fólk úr húsum sínum á síðasta kjörtímabili hafi nú tekið sinnaskiptum. Hvað vill Alþýðufylkingin? Alþýðufylkingin hefur markað þá stefnu að fjármálastarfsemi í landinu verði aðeins rekin á félagslegum grunni og allir hafi rétt til íbúðarhús­ næðis með vaxtalausri fjármögnun. Í þeim anda leggjum við til að Reykja­ víkurborg geri áætlun um að útvega öllum sem á þurfa að halda félags­ legt húsnæði, með forgangi fyrir þá sem hafa brýnasta þörf. Félagslegt húsnæði er ekki hægt að braska með til að auka af því gróðann eða reka fólk út til að leigja ferðamönnum. Þetta er dæmi um að félagslegar lausnir eru lykillinn að því að auka jöfnuð og velferð. n Hvers vegna er húsnæðisvandi í Reykjavík? Þ essi grein er í mínu nafni, Halldórs Auðar Svanssonar, oddvita Pírata í Reykjavík. Hún er hins vegar skrifuð sem samvinnuverkefni frambjóðenda Pírata þar sem við vinnum öll samtímis í sama texta á netinu. Þannig vinna Píratar. Við nýtum tæknina á jafnræðisgrundvelli. Meðal grunngilda okkar eru gagnsæi og valddreifing. Gagnsæ stjórnsýsla tryggir ábyrga ákvarðana­ töku og dregur úr spillingu og sér­ hygli. Þegar allur almenningur hefur jöfn tækifæri til að rýna í gögn á borð við bókhald og taka þátt í ákvarðana­ töku getum við öll stýrt borginni í rétta átt saman. Öllum stjórnmálaöflum er mikil­ vægt að hafa heilsteypta hugmynda­ fræði til að tryggt sé að öll stefnumál þeirra séu í „takti“. Það er munurinn á Pírötum og ýmsum öðrum flokk­ um. Við höfum alltaf Píratagildin þegar á reynir og þau leiða okkur í gegnum þau flóknu úrlausnarefni sem iðulega koma upp í stjórnmál­ um. Nú eru Píratar að verða ansi stór hópur af fólki með miklar hugsjónir og flest okkar eru vön því að hugsa mjög sjálfstætt – og allir eru jafn­ ir þegar kemur að umræðu og lýð­ ræðislegri ákvarðanatöku. Við segj­ um því stundum að það að koma Pírötum saman til að taka sameig­ inlega ákvörðun sé eins og kettir að reyna að smala sjálfum sér. Smölun­ in gengur samt oft furðu vel þar sem hugsjónir okkar eru svo líkar í grunninn – þess vegna erum við jú í sama flokki. Píratar hafa sýnt það á Alþingi að allir geta komið jafnt að borðinu og tekið þátt í góðri ákvarðanatöku. Þingmenn funda reglulega með grasrót flokksins til að segja frá störf­ um sínum og fá athugasemdir við þau – og svo spjalla auðvitað allir saman á netinu og greiða atkvæði um stefnumál. Þegar við Píratar komumst í borgar stjórn munum við innleiða okkar aðferðir í stjórnsýslu borgar­ innar, sem reyndar hafa verið notað­ ar víða erlendis með góðum árangri. Vefir á borð við Betri Reykjavík eru ágætis byrjun en það má gera mun betur. Nú hafa Píratar opnað vef sem kallast Öryggisventillinn. Þessi vefur gerir almenningi kleift að mótmæla og mæla með einstökum þingmálum á Alþingi. Vefurinn er hannaður þannig að auðvelt er fyrir aðra að að­ laga hann að sínum vefkerfum. Til dæmis væri ekkert mál fyrir Reykja­ víkurborg að setja Öryggisventilinn upp í sínum kerfum. Þá gætu borgar­ búar fylgst með hvað sé í gangi í Ráð­ húsinu og gefið álit á því. Þetta er aðeins ein hugmynd af mörgum um það hvernig við getum innleitt raunverulegt þátttökulýð­ ræði í borginni. Í kosningabaráttunni höfum við séð óánægju meðal borgarbúa. Fólki finnst ansi oft að það sé ekki nógu vel upplýst um stjórnsýsluna og að það hafi ekki nógu mikil áhrif á hana. Besta leiðin til að draga úr óánægj­ unni væri að opna stjórnsýsluna og bæta upplýsingaflæðið þannig að allir sitji við sama borð og finni virki­ lega fyrir því að við búum öll í sömu borg og getum byggt hana saman. Píratar vilja vinna fyrir ykkur og með ykkur – ef þið kjósið okkur sem samstarfsfélaga. n F agurgali stjórnmálaflokka er nú að ná hámarki í að­ draganda sveitarstjórnar­ kosninganna á laugardag. Allir reyna flokkarnir að gera hosur sínar grænar fyrir kjósend­ um, Dögun í Reykjavík ekkert síður en aðrir. Kjósendur hljóta að máta áhersl­ ur flokkanna við eigin áherslur og spyrja hvaða fulltrúar séu líklegastir til að tala máli þeirra á vettvangi borgarmála á komandi kjörtímabili. Hugtök og efndir Ég ætla að freista þess að gefa innsýn í þá merkingu sem Dögun í Reykjavík leggur í þau hugtök sem flokkarnir flestir vilja krýna sig með, mann­ réttindi, lýðræði, gagnsæi og ein­ hverjir þeirra myndu einnig nefna umhverfisvernd og jöfnuð. Á allt þetta leggjum við ríka áherslu og þá ekki síst á það sem síðast er talið, jöfnuð. Ríku samfélagi eins og okkar ber að útrýma fátækt. Það er ólíðandi að fólk þurfi að búa við skort og hús­ næðisleysi. Engu að síður er sú raun­ in í Reykjavík árið 2014. Og furðu lítið um það rætt. Velferð og mannréttindi Sá skilningur sem við leggjum í hug­ takið mannréttindi er yfirgripsmikill. Við komumst fljótlega að þeirri niðurstöðu að nánast allt sem flokk­ að er sem velferðarmál megi líta á sem mannréttindi. Það flokkast þannig undir mannréttindi að hafa húsnæði og að sjálfsögðu eru það mannréttindi lítilla barna að búa ekki við fátækt. Tillögur okkar ganga út á að forgangsraða á öllum sviðum í þágu þeirra sem búa við neyð, eru án húsnæðis og hafa ekki í sig og á. Viljum ljá þeim rödd Við höfum leitast við að ljá þeim rödd sem hafa hana ekki svo sem utan­ garðsfólki og hygg ég að ekkert fram­ boð hafi hamrað eins á því og okkar hve mikilvægt það er að tryggja öll­ um húsnæði og mannsæmandi að­ stæður. Sinnuleysi stjórnenda Reykja­ víkurborgar varðandi uppbyggingu félagslegs húsnæðis á liðnu kjör­ tímabili hefur haft alvarlegar af­ leiðingar. Markvissar lausnir í húsnæðismálum Við viljum að Félagsbústöðum hf. verði þegar eftir kosningar falið að byggja upp 300–400 bráðabirgða­ íbúðir fyrir þá sem verst eru sett­ ir á húsnæðismarkaðnum og eiga skilgreindan rétt til leiguíbúða hjá borginni. Slíkt húsnæði verði sett upp í sem flestum hverfum. Félags­ bústöðum hf. verði jafnframt falin stjórn stórfelldrar uppbyggingar leiguhúsnæðis á vegum borgarinnar. Ýmsar aðrar tillögur höfum við sett fram til að bæta kjör tekjulágra og millitekjuhópa á húsnæðismarkaði. Stolt af okkar góða brúarsmið! Málefni innflytjenda nálgumst við einnig sem mannréttindamál og er það ekki að ástæðulausu að Sal­ mann Tamimi skipar þriðja sæti á listanum, maður sem býr sjálfur yfir reynslu innflytjanda til Íslands og er auk þess frábær brúarsmiður hópa í millum. Við teljum að fyrir íslenskt samfé­ lag sé það grundvallaratriði að stuðla að sátt og gagnkvæmri virðingu allra einstaklinga í samfélaginu, óháð uppruna og að mikilvægt í því efni sé að tryggja börnum af erlendum upp­ runa kennslu í móðurmáli sínu auk íslenskunnar. Hve djúpt ristir lýðræðisástin? Við höfum sett fram ítarlegar til­ lögur um beint lýðræði og aðkomu borgarbúa almennt að ákvörðunar­ töku. Okkur er fullkomin alvara að fara að vilja íbúanna. Þetta segj­ ast reyndar aðrir flokkar vilja gera en spyrja má hvort hugur fylgi máli þegar sömu flokkar og tala máli lýð­ ræðisins hunsa vilja yfirgnæfandi meirihluta borgarbúa sem augljós­ lega er andvígur því að flugvöllurinn verði fluttur úr Vatnsmýrinni? Og hvað með gagnsæi? Allir segjast vilja gagnsæi í stjórn­ sýslunni. Eitthvað stóð nú á því að opnað væri bókhaldið í Orkuveit­ unni þegar hún sýslaði með sölu hlutabréfa á dögunum, nokkuð sem skipti borgarbúa miklu máli bæði sem eigendur og notendur Orku­ veitunnar og sem útsvarsgreiðend­ ur. Aftur þarna er talað fagurlega en efndir dræmar þegar til kastanna kemur. Óttumst ekki dóm sögunnar Við biðjum kjósendur að íhuga hvaða framboð þeir telja líklegast til að standa við gefin fyrirheit. Við myndum ekki óttast stranga dóma sögunnar ef okkur auðnaðist að fá fulltrúa kjörinn í komandi kosning­ um. n Dögun í Reykjavík og dómur sögunnar Þorleifur Gunnlaugsson oddviti Dögunar í Reykjavík Kjallari Þorvaldur Þorvaldsson oddviti Alþýðufylkingarinnar í Reykjavík Kjallari Byggjum borgina okkar – saman Halldór Auðar Svansson oddviti Pírata í Reykjavík Kjallari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.