Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Síða 44
Helgarblað 30. maí –2. júní 201444 Lífsstíll Elstu dætur eru klárastar Vísindamenn hafa fundið út að konur sem eru elstar í sínum systkinahópi eru líklegri til að skara fram úr í lífinu. Vísindamenn við háskólann í Essex komust að því að elsta systkinið er 16% líklegra til að standa sig vel í skóla miðað við yngri systkini sín. Ef elsta systkinið er stúlka hækkar hlut- fallið upp í 20%. Dæmi um konur sem eru elstar í sínum systkinahópi eru Beyoncé, Hillary Clinton, Oprah Winfrey og Sheryl Sandberg. Rannsóknin var byggð á upp- lýsingum um 1.503 systkini og 3.552 einstaklinga. Of hátt kólesteról minnkar líkurnar O f mikið kólesterólmagn í blóði er ekki aðeins slæmt fyrir æðakerfið ef marka má nýja rannsókn. Í rannsókn- inni, sem fjallað er um í Washington Post, kemur fram að of hátt kólester- ól geti gert pörum erfiðara að eign- ast barn. Vísindamenn fylgdu 501 pari eft- ir sem átti þá von í brjósti að eign- ast erfingja. Í ljós kom að pörin áttu erfiðara með að láta drauminn ræt- ast ef annað hvort konan eða bæði hún og maður hennar mældust með of hátt kólesteról. Hins vegar virtist ekki hafa áhrif ef aðeins maðurinn mældist of hár en mestu neikvæðu áhrifin voru ef bæði mældust með of hátt kólesteról. Vísindamaðurinn sem leiddi rannsóknina, Enrique Schisterman, útskýrir niðurstöðuna á þann veg að kólesteról hafi mikil áhrif á fram- leiðslu hormóna á borð við estrógen og testósterón. „Fyrir vikið verður annaðhvort of mikið af hormónum eða of lítið af hormónum. Magnið verður að vera rétt,“ lét Schisterman hafa eftir sér en ítrekaði að niður- stöðurnar mættu alls ekki að verða til þess að barnlaus pör fjölmenntu í apótek til að verða sér úti um kóle- steróllækkandi lyf. „En pör sem vilja eignast barn ættu að sjálfsögðu að taka upp heilbrigðan lífsstíl,“ sagði Schisterman. n indiana@dv.is Viltu verða ófrísk? Eru þið búin að reyna lengi? Heilbrigður lífsstíll hefur jákvæð áhrif. Þriðji hver fær það of fljótt n Ótímabært sáðlát getur bundið endi á sambönd Ó tímabært sáðlát er einn al- gengasti kynlífstengdi kvill- inn sem hrjáir karlmenn en talið er að þriðji hver karl glími við of brátt sáðlát. En það eru ekki aðeins karlar sem þjást vegna kvillans því samkvæmt nýrri rannsókn Andreu Burri, sálfræðings við háskólann í Zurich, getur ótíma- bært sáðlát einnig valdið andlegu álagi á konur. Burri og samstarfsmenn hennar við háskólann í Zurich segja að ef karlmenn hugsa of mikið um að hafa stjórn á sáðláti geti það orðið til þess að þeir hunsi þarfir makans, sem svo getur haft alvarleg áhrif á sambandið. Gleyma bólfélaganum Í rannsókn Burri og félaga kom fram að yfir 40% kvenna sögðu stjórn karlmanns á sáðláti mikil- væga fyrir fullnægjandi kynmök en hins vegar sögðu þær lengd samfar- anna ekki skipta mestu máli. Að sögn kvennanna sem vísindamennirnir ræddu við, en þær voru frá Mexíkó, Ítalíu og Suður-Kóreu, er það versta við of brátt sáðlát að þeir karlar sem þjást af kvillanum einblína um of á að reyna stjórna sáðlátinu sem verð- ur til þess að þeir gleyma bólfélagan- um og hans þörfum. Stress og pirringur Kvenkyns viðmælendur sögðu full- nægjandi kynlíf ekki síður saman- standa af kossum, faðmlögum og örvandi snertingu en samförum. „En ef karlmaðurinn er of upptekinn af eigin vandamálum og frammistöðu sinni er hann líklegri til að gleyma öllu öðru,“ segir Burri og bætir við að gæði kynmaka séu of oft metin eftir tímalengd en ekki eftir því hvern- ig parið upplifði ástarleikinn. „Þetta getur svo orðið til þess að konan verður stressuð og pirruð og, líkt og karlinn, forðast kynlíf af ótta við höfnun eða neikvæða reynslu. Kon- ur í þessari stöðu upplifa þetta sem þær hafi misst ákveðin lífsgæði sem á endanum getur orðið til þess að þær setja spurningarmerki við ástar- sambandið í heild sinni.“ Getur bundið endi á sambönd Að sögn Burri skiptir lengd samfara aðallega máli fyrir konur sem eiga ekki erfitt með að ná fullnægingu. Fyrir þær konur sem eigi erfitt með að fá fullnægingu eða fái yfirhöfuð ekki fullnægingu skipti tíminn ekki máli heldur sé það athöfnin, inni- legheitin og ástleitnin sem sé mik- ilvægust. Hún segir enn fremur að þótt talið sé að konur ýki gjarn- an þegar of brátt sáðlát maka ber á góma þá skipti lengd samfaranna þær minna máli en natni þeirra á öðrum sviðum í kynlífinu. Rannsókn Burri leiðir í ljós að of brátt sáðlát geti bundið endi á jafnvel hin hamingjusömustu ástar sambönd. Flestar kvennanna sögðust hafa verið ánægðari kyn- ferðislega í fyrri samböndum þar sem of brátt sáðlát var ekki vanda- mál. „Afleiðingarnar eru oft mun meiri en kvillinn segir til um,“ segir Burri og bætir við að í öfgafyllstu til- fellunum hafi kvillinn haft áhrif á löngun kvenna til að eignast barn með maka sínum ef hann hafi átt það til að fá sáðlát áður en samfar- irnar hefjast. n Ótímabært sáðlát getur haft alvarleg andleg áhrif á karlmenn og maka þeirra. Þótt kvillinn hafi verið þekktur í rúm 100 ár vita sérfræðingar lítið um ástæðu hans. Í tveimur rannsóknum sem birtust á sama tíma í Sexual Medicine og Journal of Sexual Medicine er fjallað um kvillann í von um að niðurstöðurnar eigi eftir að ýta undir betri greiningar og meðferðir. Dr. Serafoglu kom að annarri rannsókn- inni. Hann segir mikilvægt að greint sé á milli vandamáls sem hafi verið frá fyrstu kynlífsreynslu (e. lifelong) og áunnins vandamáls (acquired) til að auðvelda frekari rannsóknir á vandamálinu. Í rannsóknunum er ný skilgreining á vandamálinu. Einkenni of bráðs sáðláts: n Sáðlát verður alltaf eða næstum alltaf innan við mínútu eftir að samfarir hefjast (lifelong). n Tími að sáðláti hefur styst niður í þrjár mínútur eða minna og hefur neikvæð áhrif á sjálfsmynd einstaklings (acquired). n Vangeta til að fresta sáðláti. n Afleiðingar af ótímabæru sáðláti eru neikvæðar, stress, pirringur og vonbrigði og eða einstaklingur forðast að stunda kynlíf. Hvað er of brátt sáðlát? Frammistöðukvíði Karl- menn sem fá það of snemma eiga það til að einblína um of á eigin frammistöðu en gleyma þörfum bólfélagans.„Afleiðingarnar eru oft mun meiri en kvillinn segir til um Vilja karlmann- legri menn Getnaðarvarnarpillan er notuð um allan heim af meira en 60 milljónum kvenna. Síðan hún kom á markaðinn hefur hún breytt ýmsu í lífi kvenna en sam- kvæmt nýrri rannsókn sem birtist í The Journal of Sexual Medicine eru tengsl milli notkunar pillunn- ar og smekk kvenna á útliti vænt- anlegra maka. Í ljós kom að kon- ur á pillunni höfðu meiri áhuga á vöðvastæltum og karlmannleg- um mönnum á ákveðnu tímabili í tíðahringnum (milli 11 og 21 dags) en á öðrum tímabilum. Rifrildi tengd dauðsföllum Tíð rifrildi geta aukið hættu á ótímabæru dauðsfalli. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem birt- ist á netmiðlinum Journal of Epidemiology & Community Health. Samkvæmt niðurstöðunum á þetta einkum við um karla og at- vinnulausa. Þar kemur fram að sterkt félagslegt net og heilbrigð sambönd séu góð fyrir almenna heilsu. 10.000 einstaklingar á aldrin- um 36 til 52 ára svöruðu spurn- ingum auk þess sem sjúkrasaga þeirra var skoðuð milli áranna 2000 og 2011. Á tímabilinu létust 4 prósent kvenkyns þáttakenda og 6 prósent karlanna. Næstum helm- ingur lést úr krabbameini. Eftir að hafa tekið áhrif breytna á borð við kyn, hjúskapar- og félagslega stöðu kom í ljós að áhyggjur og rifrildi við maka og börn auka lík- urnar á dauða umtalsvert.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.