Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 45
Lífsstíll 45Helgarblað 30. maí –2. júní 2014 „Fyrir okkur er þetta eðlilegt“ Tina býr í nektarþorpi í Bretlandi É g var með slæma líkamsímynd. Ég hafði farið í aðgerð og var með risaör eftir það og maður­ inn minn fór með mig í náttúru­ sund,“ segir Tina Yates sem heillast hefur af lífsstíl þeirra sem kjósa að lifa lífinu nakin. Tina tilheyrir sístækkandi hópi þeirra sem tileinkað hafa sér þenn­ an lífsstíl og býr núna í öðru stærsta nektar þorpinu á Bretlandi, Spielplatz. Eiginmaður hennar, Mark, dró hana með sér á viðburð fyrir þá sem hafa tileinkað sér þennan lífsstíl fyrir nokkrum árum. Hún kom sjálfri sér á óvart með því að samþykkja að mæta. „Þarna fannst mér óþægilegt að vera nakin fyrir framan hann, meira að segja, svo við ákváðum að gera eitt­ hvað í því. Þetta reyndist vera auðvelt og hröð leið til að komast yfir það og ég þurfti ekki á neinni annarri hjálp að halda,“ segir hún. „Og veistu hvað, ég tek ekki eftir örinu lengur. Það veitir manni mikið sjálfsöryggi. Þú veist að ég er sú sem ég er, þú getur séð líf mitt á andlitinu á mér og þú getur líka séð það á lík­ ama mínum,“ segir Tina í samtali við Daily Mail. Þorpið sem Tina býr í er nektar­ þorp sem komið var á laggirnar 1929. „Nágrannar mínir eru á öllum aldri og sumir meira að segja fæddust hér,“ segir Tina. „Þetta er bara lítið samfélag þar sem allir þekkja alla.“ Þeir sem aðhyllast þessa stefnu kjósa að vera án klæðnaðar svo lengi sem þeim er ekki kalt. „Ef það er kalt, þá förum við í föt.“ Sumir sem búa í sama þorpi og Tina eru naktir við nánast öll störf. Hún gengur ekki svo langt og er í fötum þegar hún til dæm­ is vinnur garðverk. Það er til þess að forðast að rispast við garðvinnuna. „Ég fer í buxur þegar ég er að vinna í garðinum.“ Elska að vera nakin Tina og fólkið í þorpinu er nánast alltaf nakið enda telja þau það vera það eðlilegasta í stöðunni. Þ að er löglegt að ganga um götur bæði New York og Reykjavík berbrjósta. Það mega bæði konur og karlar gera að vild. Þrátt fyrir það eru berbrjósta kon­ ur á Facebook, Instagram og Vine ritskoðaðar og myndum eytt út. Þetta á við um Scout Willis, dóttur Demi Moore og Bruce Willis, sem hefur nú ákveðið að berjast á móti kúgun samfélagsmiðlanna. Mynd af henni í gagnsæjum toppi var fjarlægð nýverið og í kjölfarið ákvað Scout að ganga erinda sinna í New York berbrjósta og gaf reglu­ lega skýrslu á Twitter um framgang mála. Scout hefur með uppátæki sínu hafið byltingu á samfélagsmiðlum þar sem konur birta myndir af sér berbrjósta. Myndirnar eru merktar #FreeTheNipple. Eða frelsum geir­ vörtuna. Óljósar reglur og ritskoðun Reglur Instagram um nekt eru afar óljósar og orðaðar á þá leið að ef viðkomandi myndi ekki vilja sýna mynd eða myndband, barni, yfir­ manni eða foreldrum þá sé það efni óviðeigandi. Þessar óljósu reglur eru ítrekaðar með því að segja að Instagram­ reikningi þaðan sem nekt eða óvið­ eigandi efni sé deilt, verði eytt. Hér á landi er ekkert ákvæði í hegningar­ eða lögreglulögum sem leggur blátt bann við nekt á almannafæri. Í 209. grein hegn­ ingarlaga er að vísu að finna bann við því að særa blygðunarkennd manna með lostugu athæfi en sennilega þyrfti meira til en bara nekt á almannafæri til þess að brot­ ið yrði fellt undir þetta ákvæði. Hins vegar er í lögreglusamþykkt­ um margra sveitarfélaga að finna ákvæði sem fela í sér bann við ósæmilegri háttsemi og getur nekt á almannafæri fallið þar undir. Í þessum tilfellum er hvert til­ vik skoðað fyrir sig. Mögulega hefði Scout fengið tiltal lögreglu ef veg­ farendum hefði fundist hún ögra sér eða valda ónæði en lítið annað. Engar refsireglur gilda um athæf­ ið og sá sem kvartaði til lögreglu af þeim sökum yrði líklegast að eiga það við sjálfan sig að geta ekki verið innan um fáklæddar konur. Á sjöunda áratugnum brenndu danskar og bandarískar konur brjóstahaldara sína. Brjóstahaldar­ arnir þóttu merki kúgunar. Svo virð­ ist sem kvenfrelsis­ og kynlífsbylting sjöunda og áttunda áratugarins fái nú framhaldslíf vegna ritskoðunar á samfélagsmiðlunum. Rassar ferðalanga á netinu Rassar eru í brennidepli líka. Söng­ konan Megan Tonjes komst í frétt­ ir nýlega eftir að hún birti mynd af rassinum á sér á einum samfélags­ miðla. „Þetta er líkami minn,“ sagði Tonjes. „Ég biðst afsökunar á því ef hann lætur ykkur líða óþægilega, en mér er alveg sama um skilgrein­ ingar ykkar á nekt. Ég er ekki að gera neitt sem myndi kallast kynferðis­ legt. Af hverju er ég gerð ábyrg fyrir þeim losta sem fólk finnur fyrir ef það sér mig?“ Þá minnti Tonjes á að samfélags­ miðlarnir hefðu opnað á vettvang þar sem mannlegri reynslu er lýst með myndum. Í kjölfarið hafa myndir af berum afturendum flætt um netið. Sér í lagi myndum af ferðalöngum sem merkja myndirnar @The_Topless_Tour. Bæði karlar og konur virðast taka þátt í uppátækinu af miklum móð. n ritstjorn@dv.is Frelsum geirvörtuna Brjósta- og bossabylting hafin á samfélagsmiðlum Á rölti um borgina Scout gengur berbrjósta um New York-borg til að mótmæla kúgun og rit- skoðun samfélagsmiðla. Bossar ferðalanga Það eru ekki bara brjóst í brennidepli. Nýtt æði fer eins og eldur í sinu alnetsins, ferðalangar birta myndir af bossum. Ritskoðuð Þessari mynd var eytt út af Instagram. Mjög óljósar reglur gilda um óviðeigandi efni og virðist sem ritskoðun vefjarins sé ansi ströng. Sápur úr brjóstamjólk Margir dásama virkni brjósta­ mjólkur en yfirleitt snýr það að neyslu hennar. Kínversk móðir hefur hins vegar brugðið á það ráð að móta sápur úr brjósta­ mjólk sinni og selur þær á vef­ síðunni Taobao. Móðirin fann upp á þessu þegar sonur henn­ ar vildi ekki brjóstamjólk leng­ ur, hún vildi hins vegar að hann fengi áfram að njóta gæða henn­ ar og lét því afgangsmjólkina í sápur. Sápurnar urðu vinsælar meðal ættingja sem sögðu mjólk­ ina hafa afar mýkjandi áhrif á húðina. Hún brá því á það ráð að prófa að selja þær á netinu til þess að leyfa öðrum að njóta. Sofía Vergara ofar drottningu Árlegur listi Forbes yfir 100 valda­ mestu konur heims er áhuga­ verður. Í fyrsta sæti er kanslari Þýska­ lands, Angela Merkel, og á eftir henni fylgja fleiri öflugar konur á borð við Melindu Gates, Hillary Clinton, Michelle Obama, Oprah og Beyoncé. Á listanum eru bæði heimsleiðtogar, stjórnendur og forstjórar en líka öflugar konur úr afþreyingariðnaði. Margt kemur á óvart á listanum þegar rýnt er í hann. Leikkonan Sofía Vergara er til að mynda í 32. sæti, þremur sætum ofar en Elísabet drottning. Auður og vinsældir hennar eru mikilsmetnar en hún var með 30 milljónir dollara í tekjur í fyrra, þá landaði hún samningum við CoverGirl, Diet Pepsi og byrjaði með eigin fatalínu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.