Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Qupperneq 51
Helgarblað 30. maí –2. júní 2014 Sport 51
Leitin að síðasta púsLinu
n Stöður sem öll liðin í ensku úrvalsdeildinni næsta vetur þurfa að styrkja n Hundruð milljónum punda verður eytt í sumar n Hvað gera United, Chelsea, Arsenal, Liverpool og City?
n Everton
Sæti í deild: 5. sæti
Þarf að kaupa: Sóknarmann
Það eru allir glaðir í Liverpool-borg eftir
þetta tímabil. Bæði liðin stóðu sig vel og Ev-
erton veitti Arsenal harða keppni í baráttu
um sæti í Meistaradeild Evrópu á næstu
leiktíð. Liðið, í höndum Robertos Martinez,
virðist eiga bjarta framtíð. Tveir lánsmenn
gerðu þó gæfumuninn í vetur; þeir Gareth
Barry og Romelu Lukaku. Þeirra nýtur ekki
við lengur en svo gæti reyndar farið að
Everton takist að semja við Barry, sem hefur
lausan samning. Jack Rodwell hefur verið
orðaður við Everton á nýjan leik en skarðið
sem Lukaku skilur eftir sig er stórt. Hann
gæti freistað þess að verða sóknarmaður
númer eitt hjá Chelsea á næsta tímabili
– og óvíst að hann snúi aftur á Goodison
Park. Ef Martinez tekst aftur að fá öflugan
framherja til liðs við félagið þetta sumarið,
verður liðið til alls líklegt á næsta tímabili.
Hver veit nema Meistaradeildarsæti náist?
n Hull City
Sæti í deild: 16. sæti
Þarf að kaupa: Miðjumann
Hull stóð sig vonum framar í úrvalsdeildinni
í vetur eftir að hafa komið upp um deild.
Eftir góða byrjun slakaði liðið á klónni eftir
að sæti í úrslitaleik bikarkeppninnar var
tryggt, og endaði í 16. sæti. Liðið er nokkuð
vel mannað. Steve Bruce fékk tvo öfluga
sóknarmenn í janúar, Nikica Jelavoc og
Shane Long, og þá var vörnin ágætlega
stöndug í vetur með Curtis Davies fremstan
meðal jafningja. Miðjan var einnig sterk í
vetur þar sem Tottenham-mennirnir Tom
Huddlestone og Jake Livermore voru í
aðalhlutverki. Þar sem Livermore var bara á
lánssamningi snýr hann aftur til Tottenham
og því þarf Hull að leita að manni til að fylla
í skarðið. Möguleiki er á að Livermore verði
keyptur til félagsins sem yrðu frábærar
fréttir fyrir Hull. Breiddin á miðjunni er hins
vegar lítil og gæti liðið þurft á frekari mann-
afla að halda á miðjuna í sumar.
n Leicester City:
Sæti í deild: 1. sæti í Championship
Þarf að kaupa: Framherja
Leicester rúllaði yfir Championship-deildina
í vetur og var einfaldlega langbesta
liðið. Nú tekur erfiðara verkefni við, sjálf
úrvalsdeildin. Liðið er ágætlega mannað
og ætti stjórinn Nigel Pearson ekki að
þurfa að hafa áhyggjur af varnarleiknum.
Liðið fékk nýlega reynsluboltann Matthew
Upson sem gæti reynst liðinu happafengur.
Þá fékk liðið Marc Albrighton, fyrrverandi
leikmann Aston Villa, á dögunum sem er fín
viðbót á miðjuna. Eftir stendur framlínan.
David Nugent skoraði 20 mörk í Champ-
ionship-deildinni en hann hefur fengið
ófá tækifæri í úrvalsdeildinni og aldrei
staðið undir væntingum. Ætli Leicester að
halda sjó í úrvalsdeildinni næsta vetur þarf
liðið markaskorara sem getur potað inn
sigurmörkum á örlagastundu. Annars gæti
farið fyrir því eins og Cardiff City sem féll úr
úrvalsdeildinni í vor eftir stutta viðkomu.
n Liverpool
Sæti í deild: 2. sæti
Þarf að kaupa: Miðvörð
Það sannaðist vel í vetur að lið geta illa
unnið titla án þess að vera með góða vörn.
Liverpool-liðið skoraði nánast að vild í vetur,
sérstaklega þeir félagar Luis Suarez og
Daniel Sturridge, en fékk aftur á móti á sig
of mörg mörk. Þó Liverpool hafi endað í 2.
sæti fékk liðið á sig 50 mörk, eða rúmlega
mark í leik að meðaltali. Það vantar ekki
miðverðina í lið Liverpool en spurningin er
einfaldlega sú hvort þeir búi yfir nógu mikl-
um gæðum til að vera í liði sem ætlar sér að
verða Englandsmeistari. Þó að miðverðir
verði væntanlega ofarlega á innkaupalista
Brendans Rodgers í sumar mætti liðið einnig
við því að fá í hópinn sterka bakverði, bæði
hægri og vinstri. Glen Johnson er veikur
hlekkur í liðinu og þá er Jon Flanagan enn
ungur að árum. Liverpool-liðið verður í
Meistaradeildinni næsta vetur og þarf að
auka breiddina til að höndla álagið.
n Manchester City
Sæti í deild: 1. sæti
Þarf að kaupa: Miðvörð
Það er ekki marga vankanta að finna á
feiknasterku liði Manchester City sem
varð Englandsmeistari í vor. Liðið er vel
mannað í flestum stöðum en ef mætti
setja út á eitthvað er það vörnin. Það vita
allir hvað Vincent Kompany getur en er
Martin Demichelis nógu góður til að vera við
hlið hans næsta vetur? Hvað með Mateja
Nastasic? Joleon Lescott fær ekki nýjan
samning hjá City og til að byggja ofan á
árangur vetrarins þarf Manuel Pellegrini að
finna sterkan miðvörð við hlið Kompanys.
Það segir ýmislegt um styrk City þegar eini
leikmaðurinn sem mögulega þarf að kaupa
er einn miðvörður. Liðið hefur verið orðað
við Mehdi Benatia sem átti frábært tímabil
hjá Roma á Ítalíu í vetur. Það er leikmaður
sem hefur fulla burði til að standa sig vel
í úrvalsdeildinni. Hver veit nema hann sé
púslið sem Pellegrini vantar?
n Sunderland
Sæti í deild: 14. sæti
Þarf að kaupa: Miðjumann
Þó að einu framherjar Sunderland, eins
og staðan er núna allavega, verði Jozy
Altidore og Connor Wickham eru meiri
líkur en minni á að Gus Poyet leggi áherslu
á að styrkja miðjusvæðið í sumar. Poyet
vill láta boltann ganga innan liðsins og
pressa á andstæðinginn þegar hann er
með boltann. Jack Colback og Sebastian
Larsson eru á förum frá félaginu og þá er
lánssamningur Suður-Kóreumannsins Ki
Sung-yueng á enda. Ki var lykilmaður hjá
Sunderland í vetur og nokkuð ljóst að liðið
þarf á léttleikandi miðjumanni að halda
við hlið Lee Cattermole sem er meira fyrir
það að tækla og vinna boltann en finna
lykilsendingarnar. Það gæti orðið erfitt fyrir
Poyet að finna rétta manninn, eða mennina,
í þessar stöður og ljóst að talsverð vinna er
fyrir höndum hjá stjórn Sunderland.
n Swansea
Sæti í deild: 12. sæti
Þarf að kaupa: Miðvörð
Swansea átti ekki í teljandi vandræðum
með að skora mörk í vetur enda eru
hæfileikaríkir leikmenn í fremstu stöðum.
Garry Monk, sem mun stýra liðinu á næsta
tímabili, vill spila sóknarleik og það er alls
ekki útilokað að hann muni freista þess að
kaupa öflugan sóknarmann í sumar til að
dreifa álaginu með Wilfried Bony. Áherslan
verður þó líklega á vörnina enda gæti farið
svo að Ashley Williams yfirgefi klúbbinn í
sumar. Þá átti Chico Flores á heildina litið
frekar slaka leiktíð. Swansea þarf á öflugu
miðvarðapari að halda til að treysta stöðu
sína í deildinni og væntanlega verður lögð
áhersla á að finna slíka leikmenn. Liðið var
í talsverðu basli í vetur, sérstaklega eftir
áramót, og var níu stigum fyrir ofan fallsæti
þegar upp var staðið í vor. Ef ekki hefði verið
fyrir Wilfried Bony hefði getað farið illa.
n Tottenham Hotspur
Sæti í deild: 6. sæti
Þarf að kaupa: Bakverði
Tottenham hefur sankað að sér leikmönn-
um á undanförnum árum og ljóst að liðið
skortir ekki breidd. Þó að Tottenham hafi
ekki skorað mikið í vetur munu Roberto
Soldado og Emmanuel Adebayor að
líkindum fá að sanna sig á næsta tímabili.
Miðjan er sterk hjá Tottenham og það sama
má segja um vængmennina. Ef hægt er
setja spurningarmerki við einhverjar stöður
í Tottenham-liðinu eru það bakverðirnir,
einna helst vinstri bakvarðarstaðan. Kyle
Walker og Danny Rose eru fínir hægri bak-
verðir og efnilegir leikmenn þótt þeir hafi
ekki sýnt sitt rétta andlit á nýliðnu tímabili.
Vinstri bakverðir liðsins eru hins vegar
ekki í nógu háum gæðaflokki, hvorki Kyle
Naughton, Zeki Fryers né Jan Verthongen
sem er bestur í stöðu miðvarðar. Mauricio
Pochettino þarf að leysa þennan vanda.
n West Bromwich Albion
Sæti í deild: 17. sæti
Þarf að kaupa: Framherja
Munið þið þegar Romelu Lukaku og Shane
Long skipuðu sóknarlínu West Brom fyrir
tveimur árum? Þá gekk liðinu allt í haginn,
spilaði skemmtilegan sóknarbolta, skoraði
fullt af mörkum og náði 8. sætinu. Ári síðar
var enginn Lukaku í hópnum, enda láns-
maður frá Chelsea, og Shane Long hvarf
síðar á braut auk Stephane Sessegnon.
Þetta voru allt sterkir sóknarmenn og
afleiðingin var sú að West Brom var í mikilli
fallbaráttu og bjargaði sér í raun og veru í
síðustu umferðunum í vor. Liðið skoraði allt
of fá mörk en fékk reyndar of mörg á sig
einnig. Það er augljóst að West Brom vantar
framherja fyrir næsta vetur, helst einhvern
sem getur skorað 15–20 mörk í deildinni líkt
og Lukaku gerði. Annars er hætta á að illa
gæti farið fyrir stjóralausu West Brom-liði
næsta vetur.
n West Ham
Sæti í deild: 13. sæti
Þarf að kaupa: Bakverði
West Ham-liðið er í sjálfu sér ágætlega
mannað. Andy Carroll er hættulegur í
teignum og Stewart Downing og Matt
Jarvis geta gefið hættulegar fyrirgjafir. Á
miðjunni eru Kevin Nolan, Mohamed Diame
og Ravel Morrison sem eru ólíkir en frábærir
leikmenn. Vörnin var ágæt á löngum köflum
í vetur, en samt er eitthvað sem vantar.
Bakverðir liðsins eru langt því frá nógu
sterkir fyrir úrvalsdeildina. Guy Demel á
það til að vera klaufskur og er ekki nógu
ógnandi í sóknarleik liðsins. Þá er Pablo
Armero, lánsmaður frá Napoli, farinn aftur
til Ítalíu og samningur George McCartney
var ekki endurnýjaður. Sam Allardyce þarf
að leggja áherslu á að fá tvo öfluga bakverði
til félagsins. Gangi það eftir gæti West Ham
verið til alls líklegt næsta vetur.
baldur@dv.is/ einar@dv.is