Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 52
52 Menning Helgarblað 30. maí –2. júní 2014
GusGus sendir
frá sér plötuna
Mexico
Hitar upp fyrir Justin Timberlake
Mexico, glæný plata frá GusGus,
kemur út hér landi 11. júní – heil
um tveimur vikum áður en hún
verður fáanleg annars staðar í
heiminum.
Á plötunni fylgja þeir Birgir
Þórarinsson, Daníel Ágúst, Högni
Egilsson og Stephan Stephans
sen eftir gífurlegum vinsældum
Arabian Horse sem kom út árið
2011.
Crossfade og
Obnoxiously Sexual
Smáskífa með laginu Crossfade
kom einnig út á dögunum og
hlustendur um allan heim hafa
tekið henni fagnandi. Þann 3.
júní er svo von á annarri smáskíf
unni, Obnoxiously Sexual sem
verður einnig fáanleg á Íslandi
tveimur vikum áður en hún kem
ur út í útlöndum.
Útgáfutónleikar og
Justin Timberlake
GusGus fagnar plötunni með út
gáfutónleikum í Vodafone höll
inni þann 9. ágúst og seinna í
sumar dreg
ur aldeilis til
tíðinda fyrir
sveitina því
hún var valin
til að hita upp
fyrir sjálfan
Justin Timber
lake á risatón
leikum 24.
ágúst, enda ákaflega sjaldgæft
að heimamenn fái tækifæri til
að stíga á svið á slíkum stórvið
burðum.
Auk þeirra GusGusmeðlima
verður bandaríski plötusnúður
inn Dj Freestyle Steve með upp
hitunaratriði á tónleikunum.
Blaðamaður
The Guardian
með í för
Í júní efna Evrópustofa og Bíó
Paradís til Evrópskrar kvik
myndahátíðar. Þessu sinni verð
ur boðið upp á brot af hinu
besta í evrópskri kvikmynda
gerð hringinn í kringum landið.
Enginn aðgangseyrir verður á há
tíðina. Hátíðin hefst í Mosfellsbæ
með sérstakri viðhafnarsýningu í
Hlégarði sunnudaginn 1. júní kl.
14.30 þar sem hin margverðlaun
aða danska fjölskyldumynd Ant
boy verður sýnd.
„Við munum bjóða upp á þrjár
kvikmyndir á hverjum stað – eina
barnamynd og tvær fyrir eldri
kynslóðina – og verður frítt inn
á sýningar. Tilgangurinn er fyrst
og fremst að kynna og breiða út
evrópska menningu.“
Áætlanir um hringferðina
hafi vakið athygli en blaðamaður
breska dagblaðsins The Guardian
mun slást í för og fjalla um há
tíðina og hvernig hún fellur í
kramið.
Kvistar af sama meiði
Tvær sýningar með úrvalsverkum úr safneign Listasafns Reykjavíkur
T
vær sýningar með úrvalsverk
um úr safneign Listasafns
Reykjavíkur verða opnaðar
laugardaginn 31. maí kl. 16.
á Kjarvalsstöðum; Reykjavík, bær,
bygging og Hliðstæður.
Á sýningunni Reykjavík, bær,
bygging má sjá hvernig borgin kom
íslenskum listmálurum fyrir sjónir á
hundrað og tveggja ára tímabili, allt
frá 1891 til 1993.
Á sýningunni eru málverk eftir
helstu frumherja íslenskrar mynd
listar. Einnig eru á sýningunni úr
valsverk næstu kynslóðar, sem komst
til þroska á öðrum og þriðja ára
tug aldarinnar, þeirra Snorra Arin
bjarnar, Gunnlaugs Scheving, Nínu
Tryggvadóttur og Louisu Matthí
asdóttur. Sýningarstjórar eru Hafþór
Yngvason og Aðalsteinn Ingólfsson.
Verkin á sýningunni Hliðstæðum
spanna 73 ára tímabil en þar er
verkum ólíkra listamanna spilað
saman, tveimur eða þremur í senn,
til að draga fram líkindi þeirra á
milli. Í bókmenntum er talað um
hliðstæður.
Í flestum tilfellum eiga lista
mennirnir fátt sameiginlegt. Þeir eru
afsprengi mismunandi tíma, inn
blásnir af ólíkum hugmyndum og
liststefnum. En þeir eru þó kvistar af
sama meiði. Sem listmálarar standa
þeir frammi fyrir sambærilegum val
kostum og á stundum má finna hlið
stæður í verkum þeirra sem geta
vakið nýjan skilning og opinberað
forsendur að baki verkanna. Sýn
ingarstjóri er Hafþór Yngvason. n
Gunnlaugur Blöndal.
Kötlugos 1918.
Tvær sýningar úr safneign
Listasafns Reykjavíkur
verða opnaðar á laugardag.
Sumarið í ár byrjar mun betur en hið skelfilega og sólarlausa sumar 2013.
N
ú þegar fyrsti eiginlegi sum
armánuðurinn er að hefj
ast er ekki seinna vænna
að að velta fyrir sér stór
myndum sumarsins. Sú
var tíðin að velgengni mynda valt
að mestu á nafni aðalleikarans, og
stærstu stjörnurnar gátu fengið upp
í 20 milljónir dollara á mynd. Sá tími
er að mestu liðinn. Nú er miðað við
önnur þekkt vörumerki, nefnilega
nöfnin á persónunum sem stjörnu
rnar leika.
Ekki lengur kanónur
Vissulega eru framhaldsmyndir ekk
ert nýtt í Hollywood, en undanfar
in ár hefur orðið stöðugt meira af
endurgerðum og endurræsingu af
þekktum myndum. Godzilla er ekki
framhaldsmynd, heldur endur
ræsing á mynd frá 1998 sem sjálf
var endurgerð á mynd frá 1954. Og
engin stórstjarna í burðarhlutverki,
nema þá skrímslið sjálft. Það sama
gildir um ofurhetjumyndir sum
arsins. Amazing SpiderMan 2 skart
aði hinum annars óþekkta Andrew
Garfield og Captain America 2 skart
aði Chris Evans. XMen: Days of Fut
ure Past státaði af mörgum þekkt
um leikurum, en eina stórstjarnan
var Hugh Jackman, sem sjálfur var
lítt þekktur þegar hann fyrst lék
Wolverine fyrir 14 árum.
Helsta undantekningin frá
reglunni er Iron Man, þar sem
Robert Downey Jr. var notaður til að
selja hugmyndina um Járnmanninn.
En síðan fyrsta myndin leit dags
ins ljós árið 2008 hefur mikið vatn
runnið til sjávar og framleiðendur
hafa komist að því að þeir geta spar
að peninginn sem annars hefði far
ið í stjörnurnar (sem hvort eð er eru
með grímu helminginn af tímanum)
og notað hann í tæknibrellur í stað
inn.
Að apa eftir öðrum
Þetta hefur bæði kosti og galla. Síð
ur þarf að skrifa handrit sem eru sér
hönnuð að ímynd stórstjarna, en
á móti kemur að nafn stjörnunnar
getur ekki lengur selt nýja hugmynd
og því þarf að notast við þær gömlu
sem þegar eru kunnuglegar. Trans
formersmynd sumarsins er ekki
aðeins sú fjórða í röðinni heldur er
hún byggð á leikföngum sem allir
þeir sem ólust upp á 9. áratugnum
kannast við, en það eru einmitt þeir
sem nú fara með börnin í bíó. Dawn
of the Planet of the Apes er framhald
af hinni afbragðsgóðu Rise of the
Planet of the Apes frá 2011 og um
leið prequel (formynd?) að Planet of
the Apes frá 2001, en hún var endur
ræsing á hinum þekktu myndum
7. og 8. áratugarins með Charlton
Heston. Mark Wahlberg lék í þeirri
fyrstu, en hefur nú flutt sig yfir í
Transformers, á meðan hinn sjald
séði Gary Oldman leikur í nýjustu
apamyndinni.
Barnamyndir sumarsins
Þekktar persónur koma ekki síð
ur fyrir í barnamyndum sumarsins.
Töfralandið Oz er teiknimynd sem
er framhald af einni þekktustu mynd
sögunnar, reyndar frá 1939, og hafa
tvær aðrar framhaldsmyndir verið
gerðar, sú síðasta í fyrra. Maleficient
er á hinn bóginn leikin mynd sem
er formynd að teiknimyndinni um
Þyrnirós, frá þeim tíma þegar ævin
týri og ekki teiknimyndasögur voru
sá sagnabrunnur sem helst var leit
að til. Ein af frumlegri teiknimynd
um seinni ára, How to Tame Your
Dragon, fær framhald og spurning
hvernig tekst að endurtaka leikinn,
á meðan Planes: Fire and Rescue er
framhald myndar sem var útúrdúr af
Cars og flestum fannst óþörf.
Stærsti leikari í heimi
Ein af fáum Hollywoodstórstjörn
um sem enn er treyst til að bera uppi
rándýrar brellumyndir byggðum á
lítt þekktu efni er Tom Cruise. Hann
lék í hinni ágætu Oblivion í fyrra
og nú í Edge of Tomorrow, sem ný
lega hefur verið frumsýnd hérlend
is. Vonandi tekst honum að standast
freistinguna að endurræsa Battlefi
eld Earth sem trúbróðir hans John
Travolta lék í um árið, en Cruise
er heldur ekki laus við framhalds
bakteríuna. Mission Impossible 5 er
væntanleg á næsta ári, þar sem hann
leikur ásamt Paulu Patton sem síðast
sást í 2 Guns Baltasars.
Verr hefur gengið hjá Arnold
Schwarzenegger að fóta sig eftir að
hann yfirgaf pólitíkina, en nafn hans
var fyrir 20 árum nóg til að tryggja
miðasölu á allt nema gamanmyndir.
Nýjasta mynd hans Sabotage verð
ur frumsýnd hér um miðjan júní en
hefur ekki fengið góða dóma vestra.
Mun yngri leikari sem leikur í sinni
síðustu mynd er hinn látni Paul
Walker, en myndin Brick Mansion
verður frumsýnd á næstunni. Walker
var þó enginn Heath Ledger og varla
er hægt að búast við Dark Knight hér.
Poppstjarna með pappahöfuð
Fyrrverandi samstarfsmaður hans,
Vin Diesel, leikur í einni af forvitni
legri sumarstórmyndunum. Guardi
ans of the Galaxy er byggð á Marvel
teiknimyndasöguhetjum sem eru
þó mun minna þekktar en Spider
Man, Captain America eða XMen.
Vel hefur tekist til með þær Mar
velmyndir sem þegar eru komnar
í ár og vonandi tekst þeim að halda
dampi. Wachowskisystkinin tak
ast á við að búa til sinn eigin ævin
týraheim í Jupiter Rising, sem von
andi verður meira í ætt við Matrix en
Matrix Revolutions.
Brick Mansion Hinn látni Paul Walker fer
með aðalhlutverk í myndinni Brick Mansion
sem verður frumsýnd á næstunni.
Walken verður í mynd Eastwood
Jersey Boys eftir Clint Eastwood fjallar um
kvartettinn The Four Seasons og skartar
Christopher Walke
Stórmyndir SumarSinS
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Sabotage Arnold Schwarzenegger tekst
ekki að fóta sig jafnvel í sumarsmellunum
og áður. Sabotage fær enga stjörnudóma.
Maleficent Formynd
að teiknimyndinni um
Þyrnirós með Angelinu
Jolie í aðalhlutverki.