Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 60

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Side 60
Helgarblað 30. maí –2. júní 201460 Fólk Góð vinkona fyrrverandi Angelina Jolie sagði frá því í nýju viðtali að hún héldi góðu vina­ sambandi við fyrrverandi eigin­ mann sinn, Jonny Lee Miller. „Hann er enn góður vinur minn,“ sagði hún í viðtalinu þegar hún var spurð út í myndina Hackers sem hún lék í árið 1995. „Þar hitti ég Jonny,“ sagði hún. „Ég hugsa um hann þegar ég hugsa um myndina. Það er örugglega mjög fyndið að sjá þessa mynd í dag,“ sagði hún. Þegar þau giftu sig var Jolie íklædd bol sem skrifað var í með blóði: þú ert að fara að gift­ ast honum. Heit saman á Cannes Justin Bieber og Adriana Lima eru sögð hafa átt rómantíska stund saman á Cannes­kvik­ myndahátíðinni. Heimildarmað­ ur tímaritsins US Weekly segir að Justin hafi sóst hart eftir því að spjalla við Adriönu. Þau hafi svo í einkapartíi seint um nótt talað stanslaust saman og farið heim saman úr partíinu um klukkan fimm um nóttina. Þetta sama kvöld setti Justin mynd af þeim Adriönu saman á Instagram­síðu sína og skrifaði undir texta úr lagi sínu Confident. Vinur Biebers segir í samtali við tímaritið: „Hann var að skemmta sér með henni en það verður ekkert meira úr því.“ Dansaði ber að ofan Lily Allen hefur engu gleymt þrátt fyrir að hafa dregið sig í hlé frá sviðsljósinu um tíma. Í vikunni deildi hún á Instagram­síðu sinni myndbandi af sér þar sem hún dansar nakin að ofan í sokkabux­ um. Lily heldur fyrir brjóstin með­ an hún dansar furðulegan dans fyrir framan spegil og tekur upp á símann um leið. Lily gaf nýlega út plötu en hún, eins og áður sagði, tók sér frí frá sviðsljósinu um tíma til að sinna barnauppeldi. Ástfangin Hayden og Wladimir trúlofuðust fyrir þremur árum og eru nú sögð eiga von á barni. Á von á barni Hayden og Wladimir sögð vera að stofna fjölskyldu H ayden Panettiere á von á sínu fyrsta barni með unnusta sínum, boxaranum Wladimir Klitschko. US Weekly heldur þessu fram og hefur eftir ónafngreindum vini parsins að Hayden sé barnshafandi. Parið trúlofaðist í fyrra eftir að hafa verið sundur og saman í þrjú ár. Hayden hefur áður sagt frá því að hana langi til þess að stofna fjölskyldu og finn­ ist eins og hún sé fædd til þess að verða móðir. Hún sagði í samtali við Glamour­ tímaritið: „Ég hef lifað viðburðaríku lífi og mér líður ekki eins og ég sé á þeim aldri sem ég er á og mér líð­ ur eins og ég hafi fæðst til þess að verða móðir.“ Hayden er 24 ára en unnustinn 36 ára. „Stundum talar fólk eins og það að eignast börn sé endir á lífi manns og maður geti aldrei gert neitt eftir það. Og ég hugsa bara: Hvað eruð þið að tala um!“ sagði Hayden í viðtalinu. „Móðurhlutverkið er fallegasti og mest spennandi hlutur sem ég veit um. Mér finnst eins og það sé ekkert sem ég gæti ekki afrek­ að með börn í lífi mínu,“ sagði hún einnig í fyrrgreindu viðtali. n Glæsileg Brúðkaupið var glæsilegt í alla staði og hjónin klæddust bæði hönnun Givenchy. n Kim og Kanye fóru í bíó á Írlandi n Tvær sýningar sama kvöldið B rúðkaup Kim Kardashian og Kanye West hefur líklega farið fram hjá fáum sem fylgjast með fréttum af stjörnunum. Þau gengu í það heilaga síðasta laugardag í sextándu aldar virki í Flórens á Ítalíu. Allt hjá þeim var með glæstum brag og ekk­ ert til sparað. Brúðhjónin klæddust bæði hönnun Givenchy og margir frægir gestir voru í veislunni. Brúðkaupsferð á Írlandi Brúðkaupsferð hjónakornanna virð­ ist þó vera ívið tilkomuminni en brúðkaupið. Hjónin skelltu sér í bæinn Portlaoise á Írlandi þar sem þau hafa eytt fyrstu hveitibrauðs­ dögunum. Það er ekkert sérstaklega rómantískur bær en það hefur vakið athygli að þau stunda bíóhúsin grimmt í brúðkaupsferðinni. Til að mynda sást til þeirra tvisvar sama kvöld á leið í bíó – sitthvort bíóið. Það er talið að starfsmaður annars bíóhússins hafi smellt mynd af þeim og sent á vin sin sem setti myndina svo á netið. Létu lítið fyrir sér fara Hjónin reyndu að láta lítið fyrir sér fara þegar þau mættu í bíó. Þau komu þangað í svartri Mercedes Benz­bifreið, bæði klædd í svart og með sólgleraugu. Ekki er vitað á hvaða mynd þau fóru en nokkrar koma til greina, Godzilla, X­Men: Days of Future Past, Bad Neigh­ bours, Blended og Maleficent. Af hverju Írland? Þykir mörgum þetta vera óvenju­ leg brúðkaupsferð hjá fólki sem hefur efni á að fara hvert sem er í heiminum. „Þau gætu keypt sér eyju og verið þar en þau ákveða að koma til Írlands, af hverju?“ skrifar einn netverji í athugasemd undir frétt um bíóferðir hjónanna. Kim og Kanye hafa birt fyrstu myndir úr brúðkaupinu en sýnt verður frá því öllu í raunveruleika­ þætti Kim og fjölskyldu hennar: Keeping up with the Kardashians. n Óvenjuleg brúðkaupsferð Nýgift Kim og Kanye birtu þessar mynd af sér eftir brúðkaupið. Að fara úr bíóinu Kim og Kanye reyndu að láta lítið fyrir sér fara. Í bíó Kim og Kanye elska bíó.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.