Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2014, Blaðsíða 68
Helgarblað 30. maí –2. júní 20144 Sjómannadagur
Fleiri konur en
karlar keppa
a
f tuttugu og tveimur kepp-
endum sem hafa skráð sig
eru fimmtán konur,“ seg-
ir Hjalti „Úrsus“ Árna-
son sem stendur fyrir afl-
raunakeppninni Sterkasti maður
Íslands. Keppnin, sem ber yfirskrift-
ina Culiacan-mótið, fer fram um
helgina í tilefni af sjómannadags-
gleðinni, Hátíð hafsins. „Þetta er í
fyrsta sinn sem við bjóðum upp á
kvennaflokka og í fyrsta sinn sem við
bjóðum upp á -90 kílóa flokk karla.“
Crossfit-æðið eykur áhuga
Hjalti segir crossfit og þá miklu lík-
amsræktarbylgju sem gengið hef-
ur yfir landið ástæðuna fyrir því að
þátttaka í léttari flokkum er jafn góð
og raun ber vitni. „Þessi mikli áhugi
á crossfit og líkamsrækt í þeim dúr
hefur aukið áhuga á kraftsportinu,
kraftlyftingum og ólympskum lyft-
ingum til muna. Almenningur hefur
meiri áhuga á þessu og miklu fleiri
eru í frábæru formi. Þessi mikli fjöldi
sem er að skila sér í kvennaflokkun-
um er gott dæmi um það,“ en keppt
verður í -75 og +75 kílóa flokkum
kvenna.
„Þetta er gríðarlega jákvæð þró-
un og maður finnur það að almennt
er meiri áhugi fyrir þessu sporti en
undanfarin ár.“ Hjalti segir vinsældir
Hafþórs Júlíusar Björnssonar einnig
spila þar inn í. „Hafþór hefur auðvit-
að verið að gera ótrúlega hluti og er
einn sá besti í heiminum í dag. Síðan
hefur hann einnig verið áberandi út
af hlutverki sínu í þáttunum Game
of Thrones,“ segir Hjalti en Hafþór
var hálfu stigi frá því að hampa titl-
inum Sterkasti maður heims fyrr á
árinu.
Keppa ekki við risana
Frá árinu 2009 hefur Hjalti boðið
upp á -105 kílóa flokk í keppninni
Sterkasti maður Íslands. „Núna
bætum við -90 við og eftirspurnin
er mikil. Ef þú ert nautsterkur og 80
kíló þá ertu samt ekki að fara keppa
við menn eins og Hafþór. Enda er
hann 100 kílóum þyngri og það væri
lítil sanngirni í því.“
Hjalti stefnir á að fjölga mótum
fyrir konur í sumar en hann viður-
kennir að þessi mikla aðsókn hafi
komið sér á óvart. „Við erum með
fleiri mót í sumar og erum að skoða
núna að stækka þau. Þetta eru frá-
bær tíðindi og vonandi eitthvað
sem er komið til að vera.“
Atlassteinar og orkukubbar
Keppnin fer fram laugardaginn 31.
maí við Kaffivagninn á Granda og
hefst klukkan 13.00. Keppt verður
í ýmsum greinum og má þar nefna
atlassteina, orkukubbagöngu, bíla-
drátt, öxullyftu og sirkuslóð.
„Þyngdirnar í hverri grein verða
aðlagaðar að þyngdarflokkunum.
Til dæmis er konurnar sem taka
þátt í -75 flokknum að bera 55 kílóa
kubb en þyngstu strákarnir bera
105 kíló í hvorri hendi.“
Hjalti segist vera skoða hvort
honum takist að útbúa svoköll-
uð sirkuslóð fyrir kvennaflokkinn
í tæka tíð. „Sirkuslóðin eru gríðar-
stór og þeim þarf að lyfta upp fyrir
haus. Tómt sirkuslóð með engu inni
í er 63 kíló. En stelpurnar vilja ólmar
spreyta sig á þeim.“ n
n Sterkasti maður Íslands á Hátíð hafsins n Keppt í léttari flokki
Ásgeir Jónsson
asgeir@dv.is
Konur í meirihluta Í fyrsta
skipti er keppt í -75 og +75 kílóa
flokkum kvenna sem og -90 kílóa
flokki karla. myndir sigtryggur Ari
Skálaberg
endurnefnt
Ilvileq
Fer á makrílveiðar um miðjan júní
Skálaberg var endurnefnt Ilvileq
fyrr í mánuðinum og mun fara
á makrílveiðar um miðjan júní.
Brim seldi skipið til Artic Prime
Fisheries á Grænlandi í lok síð-
asta árs en Brim á meirihluta
í því félagi. Í kjölfar þessa var
skipið endurnefnt og málað.
Skipið er líkt og DV hefur
greint frá ríkulega útbúið og var
eitt fullkomnasta veiðiskip ís-
lenska flotans. Skipið er af nýrri
gerð frystitogara þar sem mikið
er lagt upp úr aðbúnaði áhafnar
einnig er skipið sérstaklega styrkt
og hannað fyrir veiðar við erfiðar
aðstæður í Norður-Atlantshafi.
Meðal annars er skipið búið fjór-
um togvindum og er með 10.000
hestafla aðalvél en það er 3.435
tonn að stærð, 16 metra breitt og
74,50 metra langt.
Skipið keypti Brim frá
Argentínu haustið 2012, en það
hét áður Ezperanza del Sur,
eða Von suðursins. Kaupverðið
var um 3,5 milljarðar króna og
var það í slipp í fjóra mánuði
eftir kaupin, þar sem það var
meðal annars málað blátt.
Guðmundur kvaðst hafa haft
trú á því að hægt væri að gera
skipið út í íslenskri lögsögu en
ákvörðun hafi verið tekin um
að selja skipið vegna erfiðra að-
stæðna og sligandi veiðigjalds,
þar sem veiðigjaldið væri nú
reiknað út frá þorskígildiskíló-
um.
Skipið verður gert út frá
Grænlandi og verður með græn-
lenska og íslenska áhöfn. Arctic
Prime Fisheries starfrækir þrjár
fiskverkanir á Grænlandi en er
með höfuðstöðvar í Qagortog.
Þaramajónes
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
veitti fyrir skemmstu verðlaun
í keppninni EcoTrophelia Ís-
land sem Matís, ásamt Nýsköp-
unarmiðstöð Íslands, Háskóla
Íslands og fjölmörgum stofnun-
um heima og erlendis standa
að. Verðlaunin voru afhent á Ný-
sköpunartorgi Samtaka iðnaðar-
ins í Háskólanum í Reykjavík.
Tvö lið kepptu til úrslita.
Annað liðið skipuðu þær Brynja
Einarsdóttir, Guðjóna Björk Þor-
bjarnardóttir og Hrefna Lind
Einarsdóttir og voru þær með
vöruna BEjuicy sem er frost-
þurrkaður grænmetissafi á
duftformi. Hitt liðið skipuðu
Christopher Melin og Páll Arn-
ar Hauksson með vöruna Fjöru
sem er þaramajónes. Svo fór að
þaramajónes tryggði Christoph-
er Melin og Páli Arnari Hauks-
syni sigurinn í EcoTrophelia Ís-
land að þessu sinni.
„ Í fyrsta sinn sem
við bjóðum upp á
kvennaflokka og í fyrsta
sinn sem við bjóðum upp
á -90 kílóa flokk karla.
Kraftar í kögglum Hjalti segir að þeim
fjölgi sem eru í góðu formi.
Óárennileg Það
verður tekið á því á
Granda á laugardag.