Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 5.–8. september 2014
1 matsk. safieða 1 hylki.
F æ s t í a p ó t e k u m , h e i l s u b ú ð u m , F j a r ð a r k a u p o g K r ó n u n n i .
Jafnvægi og vellíðan
lifestream™
nature’s richest superfoods
„Þetta var auðvitað
bara algjört djók“
n Hjólinu stolið og selt á uppboði lögreglu n Vinur keypti það í góðri trú
É
g held að það sé voða lítið
hægt að gera í þessu,“ segir
söngkonan Nína Salvarar í
samtali við DV en henni var
nokkuð brugðið þegar hún
áttaði sig á því í síðasta mánuði
að vinur hennar hafði keypt hjól
ið hennar á reiðhjólauppboði
lögreglunnar þann 17. maí. Að
hennar sögn var hjólinu stolið úr
bílageymslu stuttu áður. „Hann
hafði keypt það af lögreglunni í
maí, eiginlega bara um leið og því
var stolið. Þetta er alveg út í hött,“
segir Nína og tekur fram að hjólið
sé nú orðið eign vinarins enda hafi
hann keypt það á löglegan hátt og
greitt fyrir það fimmtán þúsund
krónur.
„Ég fór reyndar ekkert formlega
í að sækja málið,“ segir Nína og
bætir við að skilaboðin sem hún
fékk frá lögreglunni hefðu verið á
þá leið að lítið væri hægt að gera
úr þessu. Hjá lögreglunni á höfuð
borgarsvæðinu fengust þær al
mennu upplýsingar að hjól væru
ekki seld nema þau hefðu leg
ið inni hjá lögreglunni í meira
en ár. Nína segir ljóst að eitt
hvað hafi misfarist varðandi
hjólið hennar enda hafi því ver
ið stolið í byrjun maí, einungis
tveimur vikum áður en það var
selt á uppboðinu.
Lítið notað hjól
„Ég var bara á leiðinni í sund
þegar ég sá hjólið mitt fyrir
utan Vesturbæjarlaugina,“
segir Nína en hún hringdi í
lögregluna um leið og henni
varð þetta ljóst. Á meðan hún
beið eftir laganna vörðum
kom gamall vinur hennar upp
úr lauginni. Þegar hún sagði
honum frá því að hún hefði
verið að finna hjólið sitt út
skýrði hann fyrir henni að
þetta væri hjólið hans, hann
hefði keypt það á uppboði
lögreglunnar í vor.
„Þetta var auðvitað bara
algjört djók,“ segir Nína og
tekur fram að þarna hafi verið
liðnir rúmir fjórir mánuðir frá því
að hjólinu var stolið. „Ég er ólétt,
gengin átta mánuði á leið, og ég
var hætt að hjóla á þessum tíma.
Það hafði bara verið í læstri bíla
geymslu þegar því var stolið það
an í vor.“ Hún segir að hjólið hafi
verið lítið notað. „Pabbi keypti
það fyrir þremur árum en notaði
það lítið og ég var svona eiginlega
nýbyrjuð að nota það.“
Fyrirkomulagið gagnrýnt
Nína setti í kjölfarið ábendingu á
Facebook þar sem hún varaði vini
sína við og sagði meðal annars:
„Ég get vissulega huggað mig við
það að hjólið verði framvegis í
góðum höndum, en á hinn bóginn
er það dálítið óhuggulegt að hugsa
til þess að maður þurfi að passa sig
meira á löggunni en reiðhjólaþjóf
unum, þar sem það var selt minna
en hálfum mánuði eftir
að það lenti hjá löggunni. Hjólið
er nú löglega hans eign, þar sem
hann borgaði löggunni fimmtán
þúsund krónur fyrir. Svona er
Reykjavík í dag.“
Lögreglu
sjóður hefur fram til þessa feng
ið allan ágóðann af reiðhjólaupp
boði lögreglunnar en sú ákvörðun
byggir á ákvörðun Friðriks VI sem
ríkti í Danmörku fyr
ir 200 árum. Annars
staðar á Norðurlönd
um rennur peningur
inn í ríkissjóð. Stefán
Eiríksson, fyrrverandi
lögreglustjóri á höfuð
borgarsvæðinu, hefur
gagnrýnt þetta fyrir
komulag, þar sem það geti vakið
upp óþarfa grunsemdir um vinnu
brögð lögreglunnar. n
Jón Bjarki Magnússon
jonbjarki@dv.is „Ég var bara á leiðinni í sund
þegar ég sá hjólið mitt
fyrir utan Vesturbæjar-
laugina.
Vinur keypti hjól
Nínu Salvarar var
brugðið þegar hún
áttaði sig á því að
vinur hennar hafði
keypt hjólið hennar á
uppboði lögreglunnar.
Stolið Hjólinu var stolið úr
bílageymslu. Mynd úr SaFni
Kærður vegna
skemmdarverka
á friðuðu húsi
Bolungarvíkurkaupstaður og
Minjastofnun Íslands hafa lagt
fram kæru á hendur Valdi
mar Lúðvík Gíslasyni vegna
skemmdarverka sem hann hefur
viðurkennt að hafa unnið á frið
uðu húsi við Aðalstræti 16 í Bol
ungarvík.
Þetta kemur fram á vef ísfirska
fréttamiðilsins Bæjarins besta
sem hefur eftir Elíasi Jónatans
syni, bæjarstjóra í Bolungarvík,
að málið sé í höndum lög
reglunnar á Vestfjörðum.
Atvikið átti sér stað í júlí síð
astliðnum og sagði Valdimar
Lúðvík í samtali við DV nokkru
síðar að hann hefði eyðilagt
húsið. Hann hringdi daginn eft
ir á bæjarskrifstofuna og lýsti
yfir ábyrgð á verknaðinum. Að
spurður af hverju hann framdi
skemmdarverkin sagði hann
ástæðuna vera þá að húsið væri
slysagildra. „Þannig er að bær
inn keypti þetta hús fyrir tveimur
árum til niðurrifs. Þetta er ónýtt
hús, sem stendur einn metra út
á götuna. Húsið stendur í leið að
ráðhúsi bæjarins, sem alla þjón
ustu fyrir eldra fólk í Hvíta hús
inu í Bolungarvík er að finna.
Það eru hér stór íbúðarhús sem
eldri borgarar búa í og þeir verða
að fara alltaf út á götuna til að
komast á þessa stofnun. Krækja
fyrir þetta hús sem búið er að
standa autt núna í nokkur ár. Og
það hefur aldrei verið hægt að
ganga í þetta mál.“ sagði Valdi
mar og bætti við að fyrir rúmu
ári síðan hafi legið við stórslysi
þegar næstum var búið að keyra
á mann rétt við húsið. „Stór flutn
ingabíll var að bakka og straukst
utan í hann. Það hefði ekki þurft
að binda um það. Það var algjört
lán að ekki hafi orðið slys þarna,“
sagði Valdimar. „Það er ekki
spurning um hvort þarna verði
slys heldur hvenær,“ sagði hann
um ástæðu þess að hann eyði
lagði húsið.
Frá aðalmeðferð aurum-málsins
Lárus Welding er einn af sex einstaklingum
sem Glitnir hefur höfðað skaðabótamál
á hendur, en það tengist Aurum-málinu
svokallaða. Mynd Sigtryggur ari
Langt í niðurstöðu
Aðalmeðferð í skaðabótamáli Glitnis frestað um óákveðinn tíma
F
yrirtaka í skaðabótamáli Glitn
is gegn þeim Jóni Ásgeiri Jó
hannessyni, Lárusi Welding,
Magnúsi Arnari Magnússyni,
Pálma Haraldssyni, Guðnýju Sig
urðardóttur og Rósant Má Torfa
syni fór fram á fimmtudag. Um er
að ræða skaðabótamál vegna lán
veitingar til dótturfélags Fons en
málið hefur lengi verið til umfjöllun
ar hjá héraðsdómi en þó hefur ekkert
verið fjallað um það efnislega. Mál
ið er einn angi hins svokallaða Aur
ummáls. Alls óvíst er hvenær málið
verður efnislega tekið fyrir en því var
frestað um óákveðinn tíma á meðan
beðið er eftir niðurstöðu í máli sér
staks saksóknara gegn þeim Jóni Ás
geiri, Lárusi og Pálma. Þeir hlutu all
ir sýknu í héraðsdómi fyrr á þessu
ári en saksóknari skaut málinu til
Hæstaréttar og vænta lögfræðingar
þess að niðurstaða liggi fyrir á næsta
ári. Því er það nokkuð ljóst að að
almeðferð í umræddu skaðabóta
máli mun frestast þangað til, í það
minnsta og jafnvel lengur verði mál
ið sent aftur í héraðsdóm. Lögmenn
Glitnis lögðu hins vegar fram ný
gögn í skaðabótamálinu, tölvupóst
ssamskipti sem fengin eru úr kerf
um bankans. Ætla má að þar sé um
að ræða samskipti ákærðu en við að
almeðferð Aurummálsins í héraðs
dómi var meðal annars lesið upp úr
tölvusamskiptum Lárusar Welding
til annarra sem stefnt er í skaðabóta
málinu. Í tölvupóstunum kom meðal
annars fram að Guðný hafi ekki haft
trú á umræddri lánveitingu og að Jón
Ásgeir teldi að það þyrfti að „hafa
hemil“ á Guðnýju. n rognvaldur@dv.is