Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Blaðsíða 4
4 Fréttir Helgarblað 5.–8. september 2014
Leið illa eftir
umfjöllunina
Á
sta Sigurðardóttir, hunda-
ræktandi í Dalsmynni, upp-
lifði að eigin sögn mikla
vanlíðan og erfiðleika í kjöl-
far umfjöllunar um Dals-
mynni og ummæli Árna Stefáns
Árnasonar, lögfræðings og dýra-
verndunarsinna. Hún krefst þess
að fá tvær milljónir í bætur vegna
meiðyrða sem hún telur hann hafa
viðhaft í hennar garð. Hér til hliðar
má sjá ummælin sem um ræðir, en
þau eru átta talsins. Þau birtust bæði
í bloggi Árna Stefáns á vef DV.is sem
og í þættinum Málið á Skjá Einum
þar sem fjallað var um Dalsmynni í
fyrra.
Talsverður fjöldi áhorfenda var í
dómsal. Hópurinn skiptist í tvennt
og var bæði um að ræða stuðnings-
menn Árna Stefáns sem og Ástu.
Dómari þurfti að krefjast þess að
þeir sem fylgdust með létu lítið fyrir
sér fara eftir frammíköll. Ásta krefst
tveggja milljóna í miskabætur auk
þess sem hún og Hundaræktin Dals-
mynni krefjast þess að Árni kosti
birtingu dómsins í dagblöðum sem
og greiðslu málskostnaðar vegna
meiðyrða. Árni Stefán segist hafa
verið að fella gildisdóma sem ekki
sé hægt að túlka sem meiðyrði. Þeir
hafi verið settir fram í góðri trú.
Sölvi sagðist vinna faglega
Sölvi Tryggvason, þáttagerðarmað-
ur og stjórnandi þáttarins Málið á
Skjá Einum, sagðist fyrir dómi ekki
hafa unnið einhliða umfjöllun um
Dalsmynni og var það ekki gert til
þess að „rakka“ Dalsmynni niður.
Hann hóf, að eigin sögn, að rann-
saka mál tengd hundaræktarbúi
Ástu Sigurðardóttur í Dalsmynni eft-
ir fjölmargar ábendingar um aðbún-
að dýra þar.
Ásta hefur borið að tilgangur um-
fjöllunarinnar hafi verið til að gera
lítið úr búinu, en Sölvi segir svo ekki
hafa verið. Hann hafi einfaldlega
fengið fjölmargar ábendingar og því
farið af stað til að skoða málið. „Þetta
snerist ekki um egó mitt, eða pen-
inga Ástu eða egó Árna. Ég vil meina
að ég hafi unnið þetta faglega,“ sagði
Sölvi sem sagðist hafa farið að heim-
sækja Ástu í Dalsmynni til að tryggja
að hennar sjónarmið kæmu fram.
Hann fékk ekki að skoða hunda-
ræktunina og ekki fékkst leyfi til að
fara með myndavélar þar inn.
Dýralæknir sem starfað hefur
með Ástu í Dalsmynni og heimsótt
búið sagðist aldrei hafa séð neitt
athugavert. Önnur vitni sem komu
fyrir dóminn, meðal annars Jóna
Th. Viðarsdóttir, formaður Hunda-
ræktarfélags Íslands, taldi svo ekki
vera og efaðist um aðbúnað dýranna
í Dalsmynni.
Heitt í hamsi
Lögmaður Ástu, Erlendur Þór
Gunnarsson, benti á að þau vitni
sem leidd hefðu verið fyrir dóm-
inn hefðu borið að þau hefðu kom-
ið í Dalsmynni fyrir mörgum árum,
jafnvel allt að tólf árum áður. Þá
benti hann á að Árni Stefán hefði
sjálfur aldrei komið í Dalsmynni.
Ljóst var að vitnunum var heitt í
hamsi og höfðu þau mikið að segja
um dýravelferð. Þurftu bæði dómari
og lögmenn að taka fyrir langar ræð-
ur vitna og beina þeim tilmælum að
þeim að að svara spurningum lög-
mannanna án málalenginga.
Sérfræðingar verði að vanda sig
Gísli Kr. Björnsson, lögmaður Árna
Stefáns, segir málið ekki snúast um
staðhæfingar um staðreyndir held-
ur það að Árni hefði fellt gildisdóm
um málið og það byggi á skoðun
hans. Það þurfi ekki að sanna að
skoðun sé rétt. Árni trúi því sem
hann hafi skrifað, enda hafi hann
byggt skoðun sína á viðræðum við
fjölmarga aðila, sem og umfjöllun
fjölmiðla. Skoðanir sínar setji Árni
Stefán fram í góðri trúi og þar með
sé ekki hægt að sækja hann til saka
vegna málsins.
Erlendur segir málið hins vegar
snúa að því að Árni Stefán gefi sig
út fyrir að vera sérfræðingur, hann
hafi sérhæft sig í lögfræði á vett-
vangi hagsmuna dýra og það verði
að vera hægt að gera þá kröfu að
sérfræðingar vandi orð sín og full-
yrðingar. Það sé ekki boðlegt að
þeir láti að því liggja að einstak-
lingar séu dýraníðingar og í því felist
ærumeiðingar.
Stöðvuðu dreifingu
Í afar ítarlegri úttekt DV fyrr á þessu
ári kom fram að hvolpar frá Dals-
mynni kosta frá um 180 þúsund
krónum og að 300 þúsundum króna.
Þar sagði Ásta að aðeins eitt got
kæmi frá hverri tík á hverju ári og
að um 40 smáhundar væru í Dals-
mynni. Þeir væru allir bólusettir og
ormahreinsaðir.
Í marsmánuði á þessu ári stöðv-
aði Matvælastofnun dreifingu dýra
frá búinu. Gerðar voru athugasemd-
ir við aðbúnað og smitvarnir hjá
Ástu og hún meðal annars sögð hafa
neitað starfsmönnum stofnunarinn-
ar um aðgang til eftirlits. Í samtali
við DV kvað Ásta ekkert hafa verið
að dýrunum og sagði vandann liggja
í pappírsvinnu og stækkun á útig-
erði á búinu. Ekki fengu upplýsingar
hjá Matvælastofnun um það hvenær
eða hvort banninu hefði verið aflétt.
Árið 2013 kom í ljós alvarlegt þráð-
ormasmit í hundum sem rek-
ið var til búsins. Tveir hvolpar sem
keyptir voru á hundabúinu Dals-
mynni höfðu þá greinst með alvar-
legt smit af völdum þráðormsins
„strongyloides stercoralis“. n
Ásta í Dalsmynni vill tvær milljónir frá dýralögfræðingi vegna meiðyrða
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
Gildisdómur Árni segist hafa fellt gildisdóma og því sé ekki hægt að sækja hann til saka
fyrir meiðyrði.
Vanlíðan Ásta
upplifði mikla vanlíðan
eftir umfjöllunina.
MynD SiGtryGGur Ari
Ummælin sem
Ásta telur vera
ærumeiðandi
n „Þá væri ég löngu búinn að
loka þessum stað“
„Alveg örugglega. Ég hef verið
sannfærður í langan tíma um að þarna
sé verið að brjóta nokkur ákvæði
dýraverndarlaga. Ef ég væri í stöðu til
að vera héraðsdýralæknir og með þá
reynslu sem ég hef af dýrahaldi, þá væri
ég löngu búinn að loka þessum stað“
n „Dýraníð að Dalsmynni“
„Rekstraraðilinn Ásta Sigurðardóttir
hefur augljóslega einnig gerst brotleg
við dýraverndarlög með ýmsum hætti.
Við brotum Ástu eins og þau blasa við
mér getur refsing varðað allt að tveggja
ára fangelsi“
n „Gæsalappir eru hér notaðar því ég
tel að starfsemin eigi ekkert skylt við
ræktun“
n „Að Dalsmynni fer fram framleiðsla á
dýrum við bágborin skilyrði“
n „Það á ekki við um Ástu sem hefur
eitthvað að fela“
n „Réttilega verður starfsemin að
Kjalarnesi aðeins nefnd einu nafni,
hvolpaframleiðsla“
Hámarks næringargildi og upptaka í líkamanum
Eingöngu lífrænt
ræktuð bætiefni
12
ÁRA
VELGENGNI Á ÍSLANDI
Unnið að nýju
vinnumati
Vinna við nýtt mat á vinnu
kennara í framhaldsskólum er
komin á fullt skrið en samkvæmt
gildandi kjarasamningi framhalds-
skóla skal unnið að nýju vinnu-
mati fyrir kennslu allra námsá-
fanga í framhaldsskólum landsins.
Vinnunni stýrir verkefnisstjórn
sem í sitja fulltrúar menntamála-
ráðuneytisins, Kennarasambands
Íslands og fjármálaráðuneytisins.
Í tilkynningu kemur fram að ver-
kefnisstjórnin hafi tekið til starfa
í maí en vinnumatsnefndir voru
skipaðar nýlega. Þær eru fimm
talsins og byggir skipting þeirra á
faggreinum og fagsviðum.
Fyrsti fundur verkefnisstjórn-
ar og vinnumatsnefnda sem vinna
munu saman að nýju vinnu-
matskerfi fór fram á fimmtudag í
síðustu viku.
Hópurinn mun meðal annars
vinna að undirbúningi vinnumats
og gerð sýnidæma. Stefnt er að því
að meginútfærsla matsins verði
tilbúin 20. janúar. Félagsmenn
Kennarasambands Íslands í fram-
haldsskólum munu síðan greiða
atkvæði um upptöku nýs vinnu-
mats í febrúar á næsta ári. Verði
nýtt vinnumat samþykkt geta
framhaldsskólar innleitt það frá og
með upphafi næsta skólaárs.
Selja sinn hlut
Sigmar Vilhjálmsson og Jóhann-
es Ásbjörnsson, einnig þekktir
sem Simmi og Jói, hafa selt 40 pró-
senta hlut sinn í Stórveldinu ehf.
Þetta kemur fram í Viðskiptablað-
inu. Þar er rætt við Huga Halldórs-
son, einn eigenda og stofnanda
félagsins. „Við vorum sammála
um að þetta væri ágætur tíma-
punktur til að færa félagið aftur í
fyrra horf,“ segir Hugi við blaðið,
og segir að sátt hafi verið um mál-
ið. Hugi keypti eignarhlut þeirra
og er kaupverðið trúnaðarmál.
Stórveldið átti 15 prósenta hlut í
Konunglega kvikmyndafélaginu,
sem setti á fót sjónvarpsstöðvarn-
ar Bravó og Miklagarð. 365 miðlar
tóku yfir alla hluti félagsins í maí.