Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Page 10
Helgarblað 5.–8. september 201410 Fréttir
Saga leiðréttingarinnar
n Lok umsókna um 80 milljarða leiðréttingu sem hófst með 300 milljarða loforði og tali um hrægamma fyrir kosningar í fyrra
Þ
að mætti líkja þessu við
það að hrægammurinn
er í skóginum, við erum
með haglabyssu, treystum
við okkur til að fara að ná
í hann eða treystum við einhverj-
um öðrum til þess. Ég skal segja þér
hvaða veiði aðferðir við getum not-
að,“ sagði þáverandi frambjóðandi
Framsóknarflokksins, Frosti Sigur-
jónsson, í viðtali í Vikulokunum í
Ríkisútvarpinu í aðdraganda þing-
kosninganna í apríl í fyrra.
Umræðan um stærsta og mik-
ilvægasta kosningaloforð Fram-
sóknarflokksins, um 300 milljarða
skuldaleiðréttingu sem fjármagna
átti að stærstu leyti með pening-
um úr þrotabúum föllnu viðskipta-
bankanna, var þá að ná hámarki.
Eigendur bankanna voru kallað-
ir „hrægammar“ í þessari umræðu
en meðal þeirra voru og eru ýms-
ir vogunarsjóðir sem stunda það
að kaupa upp skuldabréf fallinna
fyrirtækja með það fyrir augum
að græða á þeim. Nú voru þessir
„hrægammar“ búnir að leggjast á
Ísland og þeirri atlögu þurfti að hr-
inda með pólitískum aðgerðum og
átti að bæta hag íslensks almenn-
ings á sama tíma.
Öll spjót stóðu á Framsóknar-
flokknum og forystu hans og var
spurningin í raun og veru einföld.
Hvernig ætlaði Framsóknarflokk-
urinn að standa við loforðið? Flokk-
urinn hafði þá rætt um þennan
möguleika til skuldaniðurfellinga
í nokkra mánuði þar á undan en
útfærðar, tæknilegar lausnir á því
hvernig flokkurinn ætlaði að standa
við hugmyndina höfðu ekki komið
fram. Loforðið lofaði samt sannar-
lega góðu.
„Jafnvel hærri“ upphæð
en 300 milljarðar
„Hvernig getur þú ábyrgst að það
verði til einhverjir 300 milljarð-
ar í samningaviðræðum sem varla
eru farnar af stað?“ spurði Sigmar
Guðmundsson, þáttastjórnandi í
Kastljósi, Sigmund Davíð Gunn-
laugsson, formann Framsóknar-
flokksins, meðal annars í viðtali fyr-
ir kosningarnar í fyrra.
Þessari spurningu svaraði Sig-
mundur Davíð á þá leið að fjár-
magnið til að ráðast í þessar
skuldaleiðréttingar væri til staðar,
það væri í hendi. Hann taldi að kröf-
uhafar bankanna yrðu að semja um
að stór hluti fjármagns þeirra yrði
eftir á Íslandi. „Vegna þess að fjár-
magnið er til staðar og þeir verða að
semja og það liggur ljóst fyrir, meira
að segja Seðlabankinn viðurkenn-
ir það núna, að það sé ekki hægt að
klára þetta öðruvísi en að verulegt
fjármagn verði eftir, upphæðin eins
og þú nefnir og jafnvel hærri (...)
Þetta er sú leið sem við boðum að
sé framkvæmanleg og eðlileg.“
„Enn ósvarað“
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, var hins vegar
einn þeirra sem taldi að Sigmund-
ur Davíð hefði ekki útskýrt nægi-
lega vel hvernig flokkurinn ætlaði
að efna loforðið. Um viðræðurn-
ar við kröfuhafana og loforð Fram-
sóknarflokksins sagði hann í kosn-
ingasjónvarpi RÚV í apríl 2013. „En
að munum við græða í leiðinni 200
eða 300 milljarða eða hvað það er
sem Framsóknarflokkurinn er að
lofa. Það er fugl í skógi; hann er ekki
í hendi. […] Ég tók eftir því að mér
fannst Sigmundur Davíð alls ekki
svara því hvernig þetta ætti að ger-
ast. Þessu er enn ósvarað af Fram-
sóknarflokksins hálfu. Að lofa því
fyrirfram að þarna verði til 200
milljarðar fyrir heimilin, það finnst
mér einfaldlega vera óábyrgur mál-
flutningur.“
Sigmundur Davíð taldi hins
vegar, á sama vettvangi í umræðu-
þætti í Ríkissjónvarpinu, að Bjarni
hefði rangt fyrir sér og að tillög-
ur Framsóknarflokksins væru ekki
„fugl í skógi“. „Formaður Sjálf-
stæðisflokksins reyndar heldur því
fram að þetta sé fugl í skógi þannig
að það sé ekki á þetta að treysta.
Vandamálið er bara að fuglinn er
hrægammur og við þurfum að grípa
hann áður en hann fer í hreiðrið.“
Engar fullmótaðar hugmynd-
ir um skuldaleiðréttinguna lágu
því fyrir hjá Framsóknarflokkn-
um í aðdraganda kosninganna
en markmiðið var samt skýrt: Að
nota fjármuni úr þrotabúum föllnu
bankanna til að lækka húsnæðis-
skuldir almennings á Íslandi. Þetta
markmið átti þá að nást með við-
ræðum og samningum við kröf-
uhafa bankanna. Slíkar viðræður
hafa svo ekki farið fram síðastliðið
eitt og hálft frá kosningum, svo vit-
að sé.
80 milljarða málamiðlun
Eftir kosningarnar myndaði Fram-
sóknarflokkurinn ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum eftir að hafa
fengið tæplega fjórðung atkvæða.
Ljóst var á þeim tímapunkti að
Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn
myndu þurfa að semja um ein-
hvers konar útfærslu á skuldaleið-
réttingarhugmyndum Framsóknar-
flokksins. Kosningaloforðið var hið
langstærsta og mikilvægasta hjá
Framsóknarflokknum og lá ljóst
fyrir að flokkurinn gæti ekki hvikað
frá því að öllu leyti þó að flokkurinn
þyrfti hugsanlega að draga í land
þegar sest yrði yfir útfærsluna á
hugmyndunum. Sigmundur Davíð
sagði líka á þeim tíma, eftir að hann
fékk umboð til stjórnarmyndunar-
viðræðna frá Ólafi Ragnari Gríms-
syni, forseta Íslands, að útfærsla á
skuldaleiðréttingarhugmyndunum
væri forsenda fyrir myndun ríkis-
stjórnar.
Við tók nokkurra mánaða vinna
með sérfræðingum og ráðgjöfum
sem endaði á þeim hugmyndum
sem ríkisstjórnin kynnti svo í lok árs
í fyrra. Inntakið í þeim hugmyndum
var niðurfærsla upp á samtals 150
milljarða sem fjármagna átti með
sérstökum bankaskatti á þrotabú
föllnu bankanna upp á 80 milljarða
króna og 70 milljarðar áttu að koma
með ráðstöfun á séreignarlífeyr-
issparnaði upp í höfuðstólslækk-
un húsnæðislána. Þessi niður-
staða fékkst hins vegar án samráðs
eða viðræðna við kröfuhafana. Um
var að ræða einhliða setningu á
bankaskatti.
Mikil þátttaka
Í vikunni var svo lokað fyrir um-
sóknir um leiðréttingu á verð-
tryggðum húsnæðislánum, sem
og séreignarúrræðinu, og verður
ekki annað sagt en að þátttakan í
skuldaniðurfellingunni hafi ver-
ið mikil. Samkvæmt fyrirliggjandi
gögnum bárust 69 þúsund um-
sóknir um niðurfellinguna frá 105
þúsund einstaklingnum. Nánast
allir sem áttu rétt á skuldaniðurfell-
ingunni sóttu um hana.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son forsætisráðherra var eðlilega
ánægður með þessa þátttöku. Í
samtali við fréttastofu RÚV sagði
hann í vikunni: „Það sýnir að þetta
var eitthvað sem beðið var eftir og
menn voru tilbúnir til að taka þátt
í. Nú bíðum við bara eftir að sjá
„Þetta er sú
leið sem
við boðum að sé
framkvæmanleg
og eðlileg
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is