Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Blaðsíða 13
Helgarblað 5.–8. september 2014 Fréttir 13
Konur geta líka beitt
mjög grófu ofbeldi
n 23 prósent skjólstæðinga Drekaslóðar eru karlar n Kynbundin umræða dregur úr kjarki
K
arlmenn eru stundum beitt-
ir það grófu líkamlegu of-
beldi af konum að þeir lenda
á sjúkrahúsi, segir Thelma
Ásdísardóttir hjá samtökun-
um Drekaslóð. Í ársskýrslu samtak-
anna, sem nýlega var gefin út, kemur
fram að 51 af þeim 217 einstaklingum
sem nýttu sér viðtalaþjónustu Dreka-
slóðar árið 2013 voru karlmenn, eða
23 prósent. „Karlarnir koma út af
svipuðu ofbeldi og konur. Þeir koma
mest út af kynferðisofbeldi og of-
beldi í parasamböndum, og svo ein-
elti í æsku,“ segir Thelma. Hún bend-
ir jafnframt á að margir komi út af
fleiri en einni gerð ofbeldis. Hlutfall
karla af þolendum ofbeldis sem leita
til Drekaslóðar hefur verið svipað síð-
an samtökin voru stofnuð fyrir fjórum
árum, og er það mun hærra en um-
ræðan í samfélaginu gefur til kynna.
Ekki feminísk hugmyndafræði
„Svona hefur þetta verið frá upphafi
hjá okkur. Við vinnum í raun ekki
undir femínskri hugmyndafræði sem
lítur þannig á að kynferðisofbeldi og
ofbeldi í parasamböndum sé fyrst og
fremst grófasta birtingarform kynja-
misréttis. Við ákváðum að vinna eftir
því að flestir geti beitt ofbeldi, karlar,
konur og börn, en ekki að flokka eftir
kynjum.“ Thelma segir þau á Dreka-
slóð þar af leiðandi hafa hvatt alla
sem hafa verið beittir einhvers kon-
ar ofbeldi að koma til þeirra. Líka þá
sem hafa verið beittir ofbeldi af hendi
kvenna. „Við höfum því alla tíð verið
með mjög fjölbreyttan notendahóp.“
Fjöldi karla kom ekki á óvart
Thelma segir það ekki hafa komið sér
á óvart hve margir karlmenn hafi leit-
að til þeirra. Það hafi hins vegar kom-
ið henni á óvart hve fljótt þeir komu
og undan hvers konar ofbeldi. „Ég er
að miklu leyti „alin“ upp í Kvenna-
athvarfinu og Stígamótum og þar
var áhersla lögð á að það væru fyrst
og fremst karlar sem beittu konur og
börn ofbeldi, og ég var sjálf talsmað-
ur þess á sínum tíma. Mér fannst þó
alltaf vera einhver skekkja í þessu.“
Hún hugsaði mikið um hvað gæti
verið að valda því að karlar beittu
frekar ofbeldi en konur. Og setti mjög
snemma spurningarmerki við hvort
sú kenning stæðist yfirhöfuð. „Það
komu svo mörg mál inn á borð til
mín þar sem mér fannst þessi kenn-
ing ekki ganga upp. Mér fannst eitt-
hvað vanta í hana,“ útskýrir Thelma.
„Ég vissi að mörgum karlmönnum
hafði þótt erfitt að koma inn í Stíga-
mót vegna þessa viðhorfs. Þannig að
það var þörf á stað með víðari hug-
myndafræði.“ Hún var sannfærð um
að mikið af málum kæmu ekki upp
á yfirborðið því umræðan bauð ein-
faldlega ekki upp á það. Það virðist þó
hafa breyst með tilkomu Drekaslóðar.
Beita forræðinu sem vopni
Aðspurð hvernig ofbeldi konur beiti
karlmenn aðallega, segir Thelma allan
gang vera á því, en gjarnan sé um and-
legt ofbeldi að ræða. „Ofbeldi á milli
náinna einstaklinga byggist ekki mik-
ið á mismun á aflsmunum, heldur
frekar andlegu niðurbroti. Konur eru
ekkert síður færar um að brjóta nið-
ur andlega en karlmenn. Ef karlmað-
ur er brotinn niður andlega þá er hann
ekkert að bera hönd fyrir höfuð sér. Þá
er algengt að honum líði eins og hann
eigi það skilið að vera barinn, eins og
konur upplifa.“ Að sögn Thelmu hafa
þeir karlmenn sem leita til þeirra líka
talað um að þeir svari ekki fyrir sig
af því þeir vilji ekki vera sá sem lem-
ur konuna sína. „Konur eru líka yfir-
leitt mun sterkari hvað varðar forræði
barna og það er óspart notað gegn
karlmönnum. Ef maðurinn gerir ekki
það sem konan vill þá hótar hún því
að fara með börnin.“ Ofbeldi sem kon-
ur beita er þó ekki eingöngu andlegt,
eins og fram hefur komið. Því í sum-
um tilfellum er um mjög gróft líkam-
legt ofbeldi að ræða.
Eflaust enn fleiri karlmenn
Aðspurð segist Thelma ekki efast um
að mun fleiri karlmenn séu beittir of-
beldi af hendi kvenna heldur en töl-
ur Drekaslóðar gefi til kynna. „Ég held
að það sé mjög mikið af málum þarna
úti sem eiga eftir að koma upp á yf-
irborðið. Og ég hef þá persónulegu
trú, að á meðan umræðan er svona
kynbundin, þá eru hin málin ekki að
koma jafn mikið upp á yfirborðið.“
Thelma er sannfærð um að ef um-
ræðan um ofbeldi kvenna væri auk-
in, sem og umræða um ofbeldi gegn
karlmönnum yfirhöfuð, þá myndu
fleiri karlmenn og þolendur kvenna
stíga fram. Hún segir karlmenn vinna
á svipaðan hátt úr ofbeldinu og kon-
ur, en þeir eigi þó erfiðara með suma
hluti. „Konur hafa einhvern veginn
miklu meira leyfi til að vera þolend-
ur, á meðan samfélagið setur karl-
menn frekar í það box að þeir eigi að
vera sterkir og harðir.“ Hjá Drekaslóð
starfa einnig karlmenn svo ef karl-
mönnum finnst þægilegra að ræða
við einhvern af sama kyni þá er það
ekki vandamál. Thelma segir marga
karlmenn hins vegar frekar vilja ræða
við konur. Karlmennirnir sem leita til
Drekaslóðar eru á öllum aldrei, frá 18
ára og upp úr, líkt og konurnar.
Finnst þeir vera einir
Þrátt fyrir að konur og karlar vinni
á svipaðan hátt úr ofbeldi, þá hefur
Thelma tekið eftir því að undanfari
vinnunnar sé oft lengri þegar einstak-
lingar koma út af ofbeldi kvenna.
„Til dæmis hvernig fólk segir frá of-
beldinu. Fólk kemur oft út af öðru of-
beldi og svo kemur þetta fram þegar
það er búið að vera hjá okkur í svolít-
inn tíma. Mér finnst líka meiri tregða
við að nota orðin sem við erum orðin
þaulvön að nota í garð karlmanna.
Þegar kemur að konum þá vill fólk
síður nota þessi orð og það er miklu
meira um að reynt sé að útskýra
orsakahegðun konunnar.“ Með því á
Thelma við að það komi fram afsaknir
á borð við að konan hafi sjálf átt erfitt
og að maðurinn hafi verið leiðinlegur
við hana. „Fólk er vantrúaðra og sum-
ir sem koma undan ofbeldi kvenna,
þeim líður eins og þeir séu algjör-
lega einir á Íslandi. Að enginn ann-
ar hafi verið beittur ofbeldi af konu.“
Þrátt fyrir að Thelmu þyki umræðan
um ofbeldi oft einum of kynbundin,
þá vill hún ekki gagnrýna hana sem
slíka. Hún telur að einhvers staðar
hafi þurft að byrja og umræðan hafi
hugsanlega þurft að vera kynbundin
í upphafi. „Mér finnst við hins vegar
svolítið hafa fest okkur í henni.“ n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
Karlar
Konur
Börn (allir
undir 18 ára) Engin
ofbeldis-
persóna
Ekki vitað
Fjöldi gerenda
Af fullorðnum gerendum voru 71 kona, eða 37 prósent, og 122 karlar, eða 63 prósent. Þá
voru 44 gerendur börn (undir 18 ára). Í 24 tilfellum var ekki um neina ofbeldismanneskju
að ræða og í 53 tilfellum var ekki ljóst hver ofbeldismanneskjan var, en þær tölur ná einnig
yfir aðstandendur sem leituðu til samtakanna. Í skýrslunni kemur fram að margir þeir
sem leiti til Drekaslóðar hafi verið beittir ofbeldi af fleiri en einum. Þá kemur engin skýr
ofbeldismanneskja í sumum tilfellum, eins og í vanrækslumálum. Því ríma tölurnar ekki
við fjölda þeirra einstaklinga sem komu í einstaklingsviðtöl.
Fjöldi einstaklinga
sem komu í viðtöl
hjá Drekaslóð
n Alls komu 217 einstaklingar í viðtöl
hjá Drekaslóð á árinu 2013.
51 karl og 166 konur.
Konur
77%
Karlar
23%
„Karlmenn
eru stundum
beittir það grófu
líkamlegu ofbeldi
af konum að þeir
lenda á sjúkrahúsi
Kynferðislegt
ofbeldi af öllu tagi
Einelti
Andlegt ofbeldi annað en
einelti og í parasamböndum
Ofbeldi
í para-
sambandi Líkamlegt ofbeldi annað
en í parasamböndum
Vanræksla
Annað
97 72 51 21 14
Skjólstæðingar Drekaslóðar hafa orðið
fyrir ofbeldi af ýmsu tagi, en kynjaskipt-
ar upplýsingar um tegund ofbeldis liggja
þó ekki fyrir. Margir koma vegna margs
konar ofbeldis og því er samtalan hærri
en fjöldi þeirra sem nýttu sé einstak-
lingsviðtöl.
Að sögn Thelmu hefur orðið mikil
aukning á því að fólk leiti til þeirra út af
ofbeldi foreldra, þá ekki bara kynferð-
islegu ofbeldi, heldur líka andlegu og
líkamlegu. Í þeim tilfellum eru mæður
oft gerendur og ofbeldið beinist bæði
gegn drengjum og stúlkum.
Tegundir
ofbeldis
49 37
122 71 44 24 53
Taka á
móti öllum
Hjá Drekaslóð
er ekki unnið eft-
ir þeirri feminísku
hugmyndafræði
að kynferðis-
legt ofbeldi
og ofbeldi í
parasambönd-
um sé grófasta
birtingarmynd
kynjamisréttis.
Mynd SigTRygguR ARi
„Ofbeldi á milli náinna
einstaklinga byggist ekki
mikið á mismun á aflsmunum,
heldur frekar andlegu niðurbroti