Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Síða 14
Helgarblað 5.–8. september 201414 Fréttir
Vilja vera góðir foreldrar
n FMB-teymi sinnir foreldrum með alvarleg geðræn vandamál og fíknivanda n Mikilvægt að vandinn flytjist ekki milli kynslóða
É
g held ég geti fullyrt að lang-
flestar, ef ekki allar, konur vilji
fá hjálp. Ég man ekki eftir því að
einhver hafi ekki viljað hjálp-
ina. Foreldrar vilja í eðli sínu
vera góðir foreldrar. Þeir búa bara
ekkert alltaf við þær aðstæður að þeir
geti það,“ segir Gunnlaug Thorlacius
teymisstjóri FMB-teymisins (foreldr-
ar – meðganga – barn) á vegum geð-
deildar Landspítalans. Meðferðar-
úrræðið er ætlað foreldrum sem
eiga von á barni eða eru með barn
á fyrsta ári og glíma við margþættan
eða alvarlega geðrænan vanda, fíkni-
vanda eða hafa áhyggjur af tengsla-
myndun við barn sitt. Um er að ræða
samstarfsverkefni kvennadeilda og
geðdeilda Landspítalans, en teymið
samanstendur af læknum, hjúkr-
unarfræðingum, félagsráðgjöfum
með fjölskyldumeðferðarnám og
ljósmóðir. Allir starfsmenn eru þó
í hlutastarfi því aðeins er um fimm
stöðugildi að ræða. Í vikublaði DV
sem kom út á þriðjudag var fjallað
um ýmis úrræði sem eru í boði fyrir
foreldra sem glíma við geðsjúkdóma
og börn þeirra. Meðferðin sem FMB-
teymið býður upp á er hins vegar
hugsuð sem fyrsta forvörn í geðheil-
brigðismálum.
Taka við erfiðustu málunum
Blaðamaður og ljósmyndari hittu
þær Gunnlaugu teymisstjóra og El-
ísabetu Sigfúsdóttur aðstoðarteym-
isstjóra í notalegu húsnæði FMB-
teymisins sem staðsett er rétt við
Klepp. „Við reynum að skilgreina
okkur hér í þriðju línu,“ útskýr-
ir Gunnlaug. Með því á hún við að
FMB-teymið taki á móti einstak-
lingum sem eru efst í pýramídan-
um og eru þar af leiðandi minnsti
hópurinn, en jafnframt sá erfiðasti.
„Þyngsti vandinn er hér og erfiðustu
tilfellin eru sannarlega fíknivandinn.
Þetta eru í raun ekki svo margar kon-
ur en málin eru flókin og þung. Síð-
an eru það alvarlegir geðsjúkdómar,
geðrofssjúkdómar eins og geðklofi
og geðhvörf. Langvarandi djúpt
þunglyndi sem þarfnast lyfjameð-
ferðar og innlagnar, það kemur til
okkar. Vægara þunglyndi og kvíða er
hægt að vinna með víða annars stað-
ar og það er ágætt að reyna það fyrst,“
segir Gunnlaug. Til þeirra koma um
200 konur á ári og segir Gunnlaug
það spegla ágætlega erlendar töl-
ur yfir þá sem þurfi á slíkri hjálp að
halda.
Hafa gjarnan misst af lífinu
Meirihluti þeirra sem FMB-teymið
sinnir eru ungar konur á aldrin-
um 18 til 27 ára. Að sögn Elísabetar
eru þær sumar að koma úr margra
ára neyslu og hafa ákveðið að hætta
þegar þær urðu þungaðar. „Þetta eru
konur sem gjarnan hafa misst svo-
lítið af lífinu. Lífið hefur gengið út á
að ná sér í næsta skammt og annað
sem fylgir þessum harða heimi. Þær
þurfa því oft bara almennar leið-
beiningar um það hvernig á hafa
samskipti við barnið og lesa í það,
og hvernig á að halda rútínu. Þetta
eru konur með mjög erfiða reynslu
að baki, hafa lítinn stuðning og
koma jafnvel af svipuðum heimilum
sjálfar,“ segir Elísabet. En það reyn-
ist mörgum þessara kvenna erfitt að
byrja nýja tilveru edrú og með lítið
barn, enda þekkja konurnar oft lítið
annað en neysluheiminn og vinirn-
ir eru allir í neyslu. Alltaf er reynt
að hafa báða foreldra með í með-
ferðinni, sé þess kostur. Að sögn
Gunnlaugar og Elísabetar eru feð-
urnir yfirleitt mjög ánægðir með að
það sé yfir höfuð gert ráð fyrir þeim
og taka þátt af fullum krafti.
Byrjaði sem grasrót
FMB-teymið hefur verið form-
lega starfandi í þrjú ár, en í nú-
verandi húsnæði síðan í janúar á
þessu ári. Áður fór starfsemin fram
í einu litlu herbergi á Landspítalan-
um við Hringbraut. Starfið byrjaði
sem grasrót fólks sem hafði áhuga
á þessum málum, starfsfólk á geð-
deildum, ljósmæður og fleiri sem
voru að sinna sama hópnum en
vantaði sameiginlegan flöt. Flestir
skjólstæðinganna koma inn í gegn-
um bráðageðdeild Landspítalans
og áhættumæðravernd á kvenna-
deildinni. Frá heilsugæslunni koma
aðallega skjólstæðingar sem eiga sér
langa sögu um þunglyndi og kvíða.
Þá vísa félagsþjónustan, barna-
vernd og sjálfstætt starfandi sér-
fræðingar skjólstæðingum einnig
til þeirra. Eins og áður sagði er ljós-
móðir hluti af teyminu og sinnir hún
mæðravernd í húsnæði teymisins.
Gunnlaug og Elísabet segja það gert
til þess að skjólstæðingar þurfi ekki
að leita á marga staði eftir þjónustu,
enda eiga margir erfitt með það.
Útsettari fyrir alvarlegum
geðsjúkdómum
En hvert er markmið teymisins?
„Það sem við erum fyrst og fremst
að hugsa um er að reyna að forðast
að vandamál færist frá einni kynslóð
til annarrar, að svokallaður millikyn-
slóðaflutningur eigi sé stað,“ útskýr-
ir Gunnlaug. „Það eru vissir áhættu-
þættir fyrir vanlíðan á meðgöngu og
vandræðum með tengsl við ungbarn
eftir fæðingu. Þessir áhættuþætt-
ir eru saga um geðsjúkdóma, saga
um fíknivanda eða virkur fíknivandi
og slakt tengslanet,“ bætir hún við.
„Rannsóknir hafa sýnt að börn sem
eru útsett fyrir tengslaskaða í frum-
bernsku, þau eru í aukinni hættu á
því að þróa með sér persónuleik-
araskanir og jafnvel alvarlega geð-
sjúkdóma. Þá hafa rannsóknir líka
sýnt að þau eiga í aukinni hættu á að
fá sykursýki og hjartasjúkdóma síðar
á lífsleiðinni. Það tengist streitu sem
þau verða fyrir í móðurkviði og eftir
fæðingu. Ungbarn er algjörlega óvar-
ið fyrir umhverfinu og ef það verð-
ur fyrir mikilli streitu þá getur það
haft mjög alvarlegar afleiðingar fyrir
það, bæði andlega og líffræðilega, til
frambúðar,“ segir Elísabet.
Streitan flyst yfir til barnsins
Það sem Gunnlaug og Elísabet eiga
við, er svokallað „toxic stress“ sem
hækkar kortisólið, eða streituhorm-
ónið í líkamanum. Slíkt getur gerst
þegar móðirin er undir miklu álagi,
verður fyrir ofbeldi og glímir við
innri erfiðleika. Gerist þetta hjá kon-
um á seinnihluta meðgöngu, getur
streituhormónið flust yfir til barns-
ins með fylgjunni. Að sögn Gunn-
laugar geta í raun öll áföll valdið því
að streituhormónið hækkar í líkam-
anum. Slæmar tilfinningar geta til
að mynda vaknað í kringum með-
göngu og fæðingu hjá konum sem
hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og
það getur valdið mikilli streitu. „Það
er þetta sem við erum að reyna að
koma í veg fyrir hér. Þetta teymi sinn-
ir fyrstu forvörnum í geðheilbrigðis-
málum. Svo koma inn aðrar forvarn-
ir síðar, eins og Fjölskyldubrú sem
miðar að því að sinna börnum sex
ára og upp úr,“ segir Gunnlaug.
Meðferð hefst á meðgöngunni
Svokölluð „Parent infant pshyco
therapy“ er meðferð foreldra og
barns og getur hafist strax á öðrum
þriðjungi meðgöngu. „Það er gott að
byrja þá að auka tengslin. Auka með-
vitund mömmu um tilfinningalíf
þessa litla barns sem hún ber. Síð-
an höldum við áfram út fyrsta árið.
Langflestir fá einstaklingsmeðferð
en síðan erum við líka með hópmeð-
ferð,“ segir Gunnlaug, en að jafnaði
eru um sex konur og sex börn í hóp-
meðferð einu sinni í viku. Þá eru í
boði sérstakir bumbuhópar í umsjón
hjúkrunarfræðings frá heilsugæslu
og ljósmóður frá kvennadeild
Landspítalans. Fyrir þær sem þurfa
minna inngrip er boðið upp á með-
gönguhópa þar sem stílað er inn
á fræðslu um einkenni, líðan, af-
leiðingar og orsakir. „Ef það er full-
reynt hjá okkur í meðferð, við náum
ekki inn og fíknivandi er til staðar,
þá tilkynnum við það og málið fer í
farveg. Það eru heimildir til þess að
þvinga konur til þess að leggjast inn.
Oft þurfa þær bara tíma til að hætta
og lenda og koma svo aftur,“ segir El-
ísabet.
Sex vikna barn getur gefist upp
Hún bendir á að barnið og þroski
þess geti ekki beðið og því sé mikil-
vægt að meðferðin hefjist sem fyrst.
„Fyrstu tvö árin í lífi barnsins eru
svo mikilvæg og þess vegna eyðum
við tíma í að kalla til einstaklinga
sem geta staðið að baki móðurinni
og aðstoðað hana við að leysa fé-
lags- og húsnæðisvanda. Við getum
ekki leyst allan vandann, en til þess
að við komumst að til að vinna með-
ferðina þá þarf að vera utanaðkom-
andi ró. Við viljum vanda okkur og
vera málsvari barnsins, vera rödd
þess, því ómálga barn gleymist svo-
lítið,“ útskýrir Elísabet. „Barnið get-
ur ekki gengið út, það er kannski
bara þriggja mánaða og liggur inni
í öllu saman,“ bætir Gunnlaug við.
„Svo sér maður að barnið fer að
loka af, eða frjósa, vera mjög stillt
og sofa mikið. Það er meira hættu-
merki heldur en barn sem græt-
ur mikið. Ég hef séð sex vikna gam-
alt barn byrja að loka af vegna skorts
á samspili móður og barns. Þá er
barnið búið að gefast upp. Það er al-
veg hægt að koma því aftur á rétta
braut. Þetta gerist svo snöggt, þetta
er svo viðkvæmur heili og fáar tauga-
tengingar sem við erum með. Það er
því svo mikilvægt að hlúa að þeim
þannig þær vaxi og dafni,“ segir El-
ísabet. Gunnlaug bendir á að margar
gamlar kenningar um tengslamynd-
un og taugaþroska barnsins hafi ver-
ið sannreyndar með viðurkenndum
vísindalegum hætti á síðustu árum
og áratugum. „Við getum staðfest
þessar kenningar í dag með mjög
óyggjandi hætti.“
Vanrækt börn þroskast illa
Börn sem fæðast við eða inn í streitu-
valdandi aðstæður geta verið langt
fram eftir aldri mjög viðkvæm fyrir
áreiti, hita, kulda, hávaða og rödd-
um. Og eiga það til að verða óvær-
ari en önnur börn. Að sögn Gunn-
laugar og Elísabetar er þessi skaði
þó yfirleitt ekki óafturkræfur sé grip-
ið inn í með réttum hætti. „Alvar-
legustu tilfellin eru þegar ekkert er
að gert í mörg ár,“ segir Gunnlaug
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrun@dv.is
„Rannsóknir
hafa sýnt að
börn sem eru útsett fyrir
tengslaskaða í frum-
bernsku, þau eru í aukinni
hættu á því að þróa með
sér persónuleikaraskanir
og jafnvel alvarlega geð-
sjúkdóma.
Hefur reynst vel Að
þeirra mati hefur meðferðin
gefið góðan árangur, en nú
er að fara af stað árangurs-
mat sem þær gera ráð fyrir
að skili jákvæðri niðurstöðu.
Mynd SigTRygguR ARi
Eitt af herbergjunum Gunnlaug og Elísabet segjast nokkuð viss um að þetta sé eina
geðdeildin í heiminum þar sem fari fram mæðraskoðun.