Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Side 18
Helgarblað 5.–8. september 201418 Fréttir
Mótlæti og sigrar
sveins andra
n Ferill Sveins Andra Sveinssonar rakinn n Þjóðþekktur lögmaður
S
veinn Andri Sveinsson hef-
ur verið þjóðþekktur mað-
ur í nærri aldarfjórðung;
fyrst sem umdeildur borg-
arfulltrúi á þrítugsaldri, svo
sem lögmaður sakborninga í mörg-
um þekktari sakamálum síðari tíma.
Fyrir vikið hefur hann verið talsvert
til umfjöllunar í fjölmiðlum. Það
vakti til dæmis eftirtekt þegar hann
tók saman við sér mun yngri konu,
fyrirsætuna Kristrúnu Ösp Bark-
ardóttur. Fyrir mánuði steig síð-
an nítján ára stúlka fram, Rebekka
Rósinberg, og sagði frá ástarsam-
bandi sínu við Svein Andra þegar
hún var sextán ára gömul. Sveinn
Andri hefur nú krafið DV um tíu
milljónir fyrir að birta viðtalið við
Rebekku.
Las Moggaleiðara tíu ára
Á yngri árum Sveins lá leið hans upp
á við. Framan af leit út fyrir að hann
gæti orðið framtíðarleiðtogi Sjálf-
stæðisflokksins. Á síðasta ári sínu
við Menntaskólann í Reykjavík, árið
1983, var Sveinn kosinn inspector
scholae en að menntaskóla loknum
tók við lögfræðinám við Háskóla Ís-
lands. Í viðtali við Fréttablaðið árið
2006 skýrði Sveinn af hverju hann
valdi lögfræði: „Ég held ég hafi bara
farið í lögfræðina af því að pabbi
var þar. Þetta lá bara einhvern veg-
inn í loftinu.“ Árið 1986 hófst þó
stjórnmálaþátttaka Sveins af krafti,
hann tók til starfa sem blaðamaður
Morgunblaðsins og var síðla árs kos-
inn í stjórn Heimdallar, félags ungra
sjálfstæðismanna í Reykjavík, en þá
var Þór Sigfússon formaður samtak-
anna. Í viðtali við Vikuna árið 1994
sagði Sveinn að hann hafi ekki mun-
að eftir sér öðruvísi en hægrisinnuð-
um og tíu ára gamall hafi hann byrj-
að að lesa leiðara Morgunblaðsins.
Úthlutað sæti
Árið 1987 tók Sveinn í fyrsta skipti
þátt í framboði Vökulistans til stúd-
entaráðs. Vöku var þó haldið utan
stjórnar það árið en næsta ár sigraði
Vaka kosningar og varð Sveinn þá
formaður stúdentaráðs. Samhliða
því hélt Sveinn áfram í ungliðastarfi
Sjálfstæðisflokksins og starfaði þá
náið með Ólafi Stephensen, fráfar-
andi ritstjóra Fréttablaðsins, sem þá
var formaður Heimdallar. Tveim-
ur árum síðar bauð Sveinn sig fram
sem formaður Heimdallar en laut í
lægra haldi fyrir Birgi Ármannssyni.
Þrátt fyrir tap í þeim kosningum var
Sveini úthlutað tíunda sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins til borgarstjórn-
arkosninga af uppstillingarnefnd
fulltrúaráðs árið 1990.
Niðurlæging í prófkjöri
Það ár vann Sjálfstæðisflokkurinn
stórsigur og flaut Sveinn því inn í
borgarstjórn aðeins 26 ára gam-
all. Hann varð formaður stjórn-
ar Strætisvagna Reykjavíkur en það
átti eftir að verða eitrað epli, þar
sem helstu deilur þetta kjörtímabil
snerust um einkavæðingu strætis-
vagna. Fyrir næstu kosningar var
haldið prófkjör og stefndi Sveinn þá
á fimmta sætið. Þrátt fyrir að eyða
langmestu fé í auglýsingar af öll-
um frambjóðendum, milljón króna,
fékk Sveinn hörmulega kosningu og
endaði í 18. sæti. Þessi kosning virð-
ist hafa haft talsverð áhrif á Svein.
Nærri tíu árum síðar var Sveini
Andra þetta hugleikið í nærmynd í
Fréttablaðinu. „Ég hef svo sem ver-
ið að vasast í pólitík lengi, en ég hef
bara ekki efni á því áhugamáli,“ sagði
hann þá. Í viðtali við Fréttablaðið ári
síðar minntist hann aftur á tapið og
sagði Sveinn þá að hann hafi lent í
„hakkavélinni og tapaði hressilega“.
Varði þekkta glæpamenn
Næstu árin eftir prófkjörið bar ekki
mikið á Sveini Andra. Komst hann
helst á síður dagblaða vegna for-
mennsku hjá íþróttafélaginu Fram
en við því embætti tók hann árið
1994. Meðfram formennsku sinnti
hann hefðbundnum lögfræðistörf-
um og var meðal annars verjandi eins
sakbornings í stóra fíkniefnamálinu
um aldamót. Með tíð og tíma urðu
sakamál fyrirferðarmeiri hjá Sveini
Andra og vöktu þau störf þó nokkra
athygli. Árið 2006 fór Sveinn Andri í
viðtal við Fréttablaðið þar sem að-
alumræðuefni var hvernig væri að
hafa skjólstæðinga sem væru þekkt-
ir morðingjar, fíkniefnasmyglarar og
barnaníðingar. „Þetta eru eðlileg-
ir náungar eins og ég og þú. Flestir
þeirra sem eru í afbrotum hafa leiðst
út í þetta út af persónulegum vanda-
málum og þá oftast vegna fíkniefna,“
sagði Sveinn þá. Fljótlega var far-
ið að tala um hann sem „stjörnu-
lögfræðing“ og viðurnefnið iðulega
kirfilega tengt Sveini Andra.
„Frumsýnir kærustuna“
Árið 2007 dregur til tíðinda í einkalífi
Sveins þegar hann skildi við eigin-
konu sína til þrettán ára, Erlu Árna-
dóttur, en saman eiga þau fjögur
börn. Eftir skilnaðinn keypti hann
sér hvítan sportbíl og fór að stunda
líkamsrækt af krafti. Í viðtali við DV
á sínum tíma skýrði Sveinn frá helstu
ástæðunni fyrir dugnaði hans við lík-
amsrækt. „Ég fylgi alltaf markmið-
um mínum og þrjóskast áfram. Ég
er fanatískur í því sem ég geri,“ sagði
Sveinn þá. Á þessu tímabili varð
Sveinn nær vikulegur gestur í „fólki í
fréttum“-síðum dagblaða og kvenna-
mál hans urðu umtöluð. Sagðar voru
fréttir með fyrirsögnunum á borð
við þessa: „Sveinn Andri frumsýndi
kærustuna“. Samband hans við fyr-
irsætuna Kristrúnu Ösp fékk mikla
athygli, ekki síst í ljósi þess að hún
er 27 árum yngri en Sveinn Andri
og einna þekktust fyrir samband sitt
við fótboltamanninn Dwight Yorke.
Samband þeirra stóð stutt, það var
opinberað í apríl árið 2011 en þau
voru hætt saman í júní sama ár. Ári
síðar fæddi Kristrún son en þar sem
vafi lék á faðerni drengsins fór hún í
faðernispróf áður en drengurinn var
eignaður Sveini Andra. n
Rebekka Rósinberg, sem heldur því stað-
fast fram að Sveinn Andri sé faðir eins og
hálfs árs gamals sonar síns, segir í samtali
við DV að hún hafi leitað til lögmanns og
nú sé í vinnslu faðernismál gegn Sveini.
Hún segir sömuleiðis að það komi mjög vel
til greina að hún fari í skaðabótamál gegn
honum. „Ég mun gera það en það er ekkert
ferli hafið. Hann er allavega ekki enn þá
búinn að neita barninu né biðja um DNA.
Það verður líklegast farið fram á meðlag,“
segir Rebekka. Barnið eignaðist hún þegar
hún var 17 ára en hún kynntist Sveini þegar
hún var 16 ára. Hún segist vera mjög brotin
eftir óformlegt samband sitt við Svein
og hafi hún þurft að kljást við kvíða og
þunglyndi í kjölfar þess.
„Eftir að ég fór að vinna í mínum málum fór
ég að átta mig á því hvað þetta hefur haft
mikil áhrif á mig og hvernig hann braut á
mér. Ég var svo
ung og hann nýtti
sér það,“ sagði hún í
viðtali við DV í upphafi
ágústmánaðar. Fyrir þá umfjöllun hefur
Sveinn Andri krafið DV um tíu milljónir
króna en hann telur að vegið hafi verið að
friðhelgi einkalífs síns.
Rebekka telur kröfu Sveins vera „fárán-
lega“. „Ég sendi honum skilaboð í gær
[þriðjudag] og spurði hann hvort hann
vildi hitta mig. Ég sagði honum að hann
skuldaði mér útskýringu þar sem ég hef
alið upp barnið hans í tvö ár. Það minnsta
sem ég á skilið er smá útskýring. Það koma
bara „seen“ og engin svör. Þá sagði ég: „þú
getur líka bara hunsað mig eins og barnið“.
Hann „seen-aði“ það líka og „block-aði“
mig svo,“ segir Rebekka.
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
„Þú getur líka bara hunsað
mig eins og barnið“
Sveinn Andri lokaði á Rebekku á Facebook
2010 2006
2004 2003
1993 1987
Líkamsrækt
Sveinn Andri tók sig á og fór að stunda
líkamsrækt af fullum krafti.
Komið víða við
Sveinn Andri er þekktur
flestum landsmönnum
fyrir stjórnmálaþátttöku
sem og lögmannsstörf.
Hann var borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins á
árunum 1990 til 1994.