Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Blaðsíða 20
Helgarblað 5.–8. september 201420 Fréttir
Hafa ekki greitt
börnunum laun
n Kvikmyndin Sumarbörn var tekin upp 2013 n Ellefu hafa leitað til lögfræðings
S
vokölluð mínútumynd
klipparans Stefaníu Thors
hefur vakið athygli víða á
netinu og verið dreift yfir
þrjátíu sinnum á Facebook.
Í myndinni talar Kristjana Thors,
aðalleikkona kvikmyndarinn-
ar Sumarbarna, við áhorfandann
og spyr einfaldrar spurningar. „Ég
var að spá, hvenær fæ ég eiginlega
greitt fyrir mína vinnu?“ Kristjana
er sjö ára gömul og er í hópi fjórt-
án barna sem léku í kvikmyndinni
Sumarbörnum, en myndin var tek-
in upp á Reykjanesi í september í
fyrra. Ekkert barnanna hefur feng-
ið greitt fyrir vinnu sína í myndinni
en myndin fékk 90 milljóna króna
styrk úr Kvikmyndasjóði Íslands
árið 2012, einn þann hæsta sem
hefur verið veittur úr sjóðnum. Ell-
efu manns, sem allir eru meðlim-
ir í Félagi kvikmyndagerðarfólks,
hafa leitað til lögfræðings vegna
vangoldinna launa í tengslum við
myndina. DV ræddi við nokkra sem
unnu að gerð myndarinnar en hafa
ekki fengið greitt nema að hluta til.
Þeir vildu ekki koma fram undir
nafni. „Þetta er náttúrlega bara vont
fyrir allan iðnaðinn,“ sagði einn við-
mælandi. „Þetta er mjög skrítið mál.
Okkur finnst þetta öllum mjög skrít-
ið mál,“ segir Hulda Helgadóttir, að-
stoðarmaður leikmyndahönnuð-
ar, en hún er í hópi þeirra sem hafa
ekki fengið greitt fyrir vinnu sína.
Framleiddu Okkar eigin Osló
Fyrirtækið Ljósband ehf., sem var
stofnað árið 2006 af þeim Önnu
Maríu Karlsdóttur og Hrönn
Kristinsdóttur, sér um framleiðslu
Sumarbarna. Áður hefur Ljósband
framleitt myndirnar Okkar eigin
Osló, árið 2011, og Desember, árið
2009. Sumarbörn fjallar um tvíbura-
systkinin Eydísi og Kára, sem eru
send á Silungapoll vegna heimilis-
erfiðleika og fátæktar. Börnin trúa
því statt og stöðugt að dvölin verði
stutt, en biðin veldur þeim síendur-
teknum vonbrigðum. Dagarnir líða
en Eydís, með sinn sterka lífsvilja og
lífsgleði, yfirstígur hverja hindrunina
á fætur annarri með ráðsnilld, dugn-
aði og umhyggju fyrir bróður sínum.
Með aðalhlutverk í myndinni fara
Kristjana Thors, Stefán Örn Eggerts-
son og Brynhildur Guðjónsdóttir.
Vann allt að 14 klukkustundir
á dag
„Það er bara nákvæmlega satt og
rétt að það er ekkert barn búið að
fá borgað,“ sagði Matthías Matthí-
asson tónlistarmaður í samtali við
DV á miðvikudag. Matthías er fað-
ir drengs sem lék í myndinni í fyrra,
þá átta ára gamall. Líkt og aðrir
leikarar og kvikmyndargerðarfólk
gerðu foreldrar drengsins samn-
ing við framleiðendur sem nú er
búið að fara á bak við. Samkvæmt
heimildum DV eru dæmi um að
börn eigi eftir að fá greiddar allt frá
50 þúsund krónum upp í 300 þús-
und krónur fyrir vinnu sína. „Minn
vann þarna í einhverja hátt í tuttugu
tökudaga. Dagar sem eru frá sex á
morgnana til oft sjö, átta á kvöldin
og ekki búinn að fá krónu borgaða,“
sagði Matthías, en þar sem tökur
fóru fram í september þurfti að fá frí
fyrir börnin frá skóla meðan á þeim
stóð. Að sögn Matthíasar hefur ver-
ið fátt um svör frá framleiðendum
en hann segir þá hafa sent foreldr-
um póst fyrir um fjórum mánuðum
síðan. Þar hafi komið fram að það
sé ekki til peningur, að framleið-
endur ætli samt að borga en þeir
viti ekki hvernig eða hvenær.
Munum leita allra leiða
Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formað-
ur Félags kvikmyndagerðarmanna,
staðfesti í samtali við DV á þriðju-
dag að ellefu félagsmenn væru með
mál sitt hjá lögfræðingi félagsins, er
varða vangoldnar verktakagreiðslur
vegna Sumarbarna. „Ég þekki ágæt-
lega til málsins og mér bara þyk-
ir þetta alveg gríðarlega leiðinlegt
en auðvitað stöndum við vörð um
hag félagsmanna. Svona lítur ekki
vel út fyrir bransann. Þeim til máls-
bóta skilst mér að myndin hafi farið
þrem dögum fram úr tökum en það
hins vegar virðist ekki alveg útskýra
málið,“ sagði Hrafnhildur. Að henn-
ar sögn hafa þær Anna María og
Hrönn frest til föstudags til þess að
svara bréfi lögfræðings ellefumenn-
inganna. Spurð hvort það sé venju-
legt að svona langur tími líði án þess
að fólk fái greitt vegna vinnu við
kvikmyndir segir Hrafnhildur þetta
því miður ekki vera einsdæmi. Fyr-
ir henni sé þó alltaf mikilvægast að
greiða fólkinu. „Þær hafa sýnt það
og sannað að þær geta alveg fram-
leitt myndir en það er bara eins og
það hafi eitthvað farið úrskeiðis
og þá fara hlutirnir svona. En það
er samt okkar krafa að þessi laun
verði greidd og við munum leita
allra leiða til þess að tryggja það að
okkar félagsmenn fái þetta fé,“ segir
Hrafnhildur.
Leikstjórinn svarar ekki
Sumarbörn er fyrsta kvikmynd leik-
stjórans Guðrúnar Ragnarsdóttur
í fullri lengd, en Guðrún skrifaði
einnig handritið að myndinni. Hún
sagðist ekki vilja svara því hvort hún
hefði sjálf fengið greitt frá fram-
leiðendum fyrir vinnu sína vegna
myndarinnar, þegar DV ræddi við
hana á þriðjudaginn. „Það eru
margir búnir að fá borgað, aðrir
eiga eftir að fá borgað og þeir munu
fá borgað,“ sagði Guðrún. Að öðru
leyti kvaðst hún ekki geta svarað
fyrirspurnum um málið og vísaði á
framleiðendur myndarinnar.
„Mjög erfið mynd“
„Þetta var mjög erfið mynd. Bæði
að vinna með svona ungum börn-
um og svo ýmislegt sem kom upp
á á leiðinni, þannig að það hefur
dregist hjá okkur að greiða. Hins
vegar stendur til að greiða öllum og
við erum í sambandi við þá sem við
skuldum. Þannig að auðvitað er fólk
orðið langþreytt, maður skilur það
alveg, en þetta hefur ekki getað tek-
ist öðruvísi,“ sagði Hrönn Kristins-
dóttir, framleiðandi Sumarbarna, í
samtali við DV á miðvikudag. Hrönn
sagðist vonast til þess að búið yrði
að greiða öllum að fullu í þessum
mánuði. Áformað sé að frumsýna
myndina öðru hvorum megin við
áramót. Hrönn segir myndina hafa
kostað 214 milljónir en að hún sé
fjármögnuð með styrknum frá Kvik-
myndamiðstöð, eigin framlagi, auk
þess sem norskur meðframleiðandi
komi að henni. Að hennar sögn
hafa þær Anna María svarað bréfi
lögfræðings kvikmyndagerðar-
mannanna ellefu og lýst yfir „full-
um greiðsluvilja um leið og pening-
ur kemur inn“ en Hrönn segir að í
bréfinu felist áskorun til þeirra um
að greiða launin að fullu. Hún seg-
ir fjármagn raðast inn eftir því sem
verkinu vindi fram en að hennar
sögn hafa um 80 prósent af laun-
um verið greidd. DV fékk hvergi
staðfestar upplýsingar um upphæð
vangoldinna launa vegna Sumar-
barna, né fjölda manns sem eiga
óuppgert. Hins vegar sökum þess
að engu af börnunum fjórtán hef-
ur verið greitt laun og þessir ellefu
kvikmyndagerðarmenn hafa aðeins
fengið greitt að hluta til eða engu
leyti, verður það að teljast ólíklegt
hlutfall. Ekki náðist í Önnu Maríu
Karlsdóttur við vinnslu fréttarinnar.
Heimilt að krefjast uppgjörs
Í 13. grein í þriðja kafla reglugerð-
ar um Kvikmyndasjóð, um greiðsl-
ur styrkja, uppgjör og fleira, seg-
ir að uppgjöri vegna styrkveitinga
skuli skilað innan sex mánaða
frá þeim tíma að verki telst lokið
samkvæmt úthlutunarsamningi.
Þá sé Kvikmyndamiðstöð heim-
ilt að krefja styrkþega um uppgjör
staðfest af löggiltum endurskoð-
anda. Verði verulegar breytingar
á handriti, fjármögnun eða kostn-
aðaráætlun frá umsókn ber styrk-
þega að tilkynna það Kvikmynda-
miðstöð án tafar. Í slíkum tilvikum
tekur forstöðumaður endanlega
ákvörðun um hvort krefjast eigi
endurgreiðslu styrks, að hluta eða
öllu leyti, eða hvort lækka beri fjár-
hæð styrks sem veittur hefur verið
en er ógreiddur.
„Mjög sárt ef rétt er“
Laufey Guðjónsdóttir, forstöðu-
maður Kvikmyndamiðstöðvar,
sagði í samtali við DV á miðviku-
dag ekki komið að því gagnvart
sjóðnum og samkvæmt samningi
sem sjóðurinn gerði við framleið-
endur Sumarbarna, að aðhafast
eitthvað í málinu. „En hann mun
koma og maður bara vonar að það
sé hægt að kippa þessu í liðinn,“
segir hún. Að sögn Laufeyjar er al-
gengur vinnslutími kvikmynda eitt
til eitt og hálft ár. Hún segir Sum-
arbörn ekki hafa verið óeðlilega
lengi í vinnslu, eða um það bil ár
eftir að tökum lauk. „En hins vegar
þá er þetta náttúrlega mjög sárt ef
rétt er, að fólk hafi ekki fengið neitt
greitt eða ekki greitt að fullu,“ seg-
ir Laufey. Til samanburðar má
nefna að árið 2012, þegar Sumar-
börn fékk styrkinn frá Kvikmynda-
sjóði, fengu myndirnar Vonarstræti
og París norðursins einnig úthlutað
úr sjóðnum, sú fyrri 66 milljónir og
seinni 65 milljónir. Líkt og kunnugt
er voru báðar þessar myndir frum-
sýndar á árinu. n
Erla Karlsdóttir
erlak@dv.is
Munu fá borgað „Það eru margir búnir að fá borgað, aðrir eiga eftir að fá borgað og þeir munu
fá borgað,“ sagði Guðrún Ragnarsdóttir, leikstjóri Sumarbarna, í samtali við DV. Mynd VEFur rÚV
Átta ára fékk ekki greitt Matthías
Matthíasson, eða Matti í Pöpunum eins
og hann er gjarnan kallaður, segir átta ára
gamlan son sinn ekki hafa fengið greidd
laun fyrir vinnu sína í Sumarbörnum.
Mynd Hörður SVEinSSOn
Úr myndinni Að sögn Hrannar Kristinsdóttur, framleiðanda Sumarbarna, kostaði myndin
214 milljónir og var erfið í tökum. Þetta er skjáskot úr sýnishorni myndarinnar, sem birt var í
október í fyrra. Mynd SKjÁSKOt Úr StiKLu
„Minn vann
þarna í einhverja
hátt í tuttugu tökudaga.
Dagar sem eru frá sex á
morgnana til oft sjö, átta
á kvöldin og ekki búinn
að fá krónu borgaða.