Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Síða 24
24 Fréttir Erlent Helgarblað 5.–8. september 2014
ísfötuáskorunin?
Hverju skilaði
n Milljarðar söfnuðust fyrir ALS- og MND-samtökin n Milljónir manna tóku þátt
F
jöl- og samfélagsmiðlar hafa
að undanförnu birt ótal mynd-
skeið og myndir af fólki sem
hellir yfir sig heilli fötu af
ísköldu vatni. Uppátækið fór
sem eldur í sinu vestanhafs í ágúst.
En hverju hefur það áorkað fyrir sam-
tökin sem hugmyndin var að styrkja;
MND-samtökin?
BBC greinir frá því á vefsíðu sinni
að 2,4 milljónir myndbanda tengd-
um ísfötuáskoruninni hafi verið hlað-
ið inn á Facebook. 28 milljónir manna
hafa ýmist hlaðið upp myndbönd-
um, skrifað athugasemd eða „lækað“
innlegg í tengslum við ísfötuáskor-
unina. Til að skýra fyrirbærið í stuttu
máli, hafi einhver ekki orðið þess var,
þá snýst ísfötuáskorunin um að hella
yfir sig ísköldu vatni, úr fötu, og taka
það upp á myndband. Í kjölfarið skor-
ar sá blauti á nokkra aðra að leika at-
riðið eftir.
Milljónir tóku þátt
Svo tölulegum staðreyndum af sam-
félagsmiðlunum sé haldið til haga þá
hefur 3,7 milljónum myndbanda ver-
ið hlaðið inn á Instagram undir myllu-
merkjunum AlSicebucketchallenge
og icebucketchallenge. Tónlistarmað-
urinn kanadíski Justin Bieber er lík-
lega sá sem mest viðbrögð hefur feng-
ið. Um milljón manns hafa „lækað“
myndbandið hans.
Söfnuðu 11,5 milljörðum
Ísfötuáskoruninni var ýtt úr vör með
það að markmiði að styrkja og vekja
máls á MND-samtökunum, eða ALS.
ALS stendur fyrir amyotrophic later-
al sclerosis. Og það hefur sannarlega
gengið eftir. Á tímabilinu frá 29. júlí
til 28. ágúst voru samtökin styrkt um
11,5 milljarða króna. Á sama tíma í
fyrra söfnuðust 317 milljónir króna. Á
venjulegum mánuði safnast samtök-
unum tæplega 100 milljónir. Eins og
fyrr segir fengu samtökin 11,5 millj-
arða í ágúst, eða tíu ára innkomu á
einu bretti. BBC greinir frá því að í
Bretlandi hafi fleiri samtök notið góðs
af ísfötuáskoruninni, svo sem Water
Aid og Macmillan Cancer Support.
Water Aid var styrkt vegna þess að ein-
hverjum blöskraði sú sóun á hreinu
vatni sem ísfötuáskorunin hefur í för
með sér.
Markmiðið með ísfötuáskoruninni
var einnig að vekja fólk til vitundar um
ALS. „Heldur þú að Anna Wintour,
Kate Moss og Victoria Beckham hafi
verið að velta ALS fyrir sér fyrir um
mánuði? Ég efast stórlega um það,“
hefur BBC eftir leikkonunni og rithöf-
undinum Shannon Murray, sem stýrt
hefur ýmsum herferðum fyrir góð-
gerðasamtök. Hún bendir á að frægir
einstaklingar hafi verið mjög dugleg-
ir að taka þátt. „Margir setja flest það
sem þeir gera inn á samfélagsmiðla.
Sumir hafa ákveðið að gera þetta á
sundfötum en aðrir meira klæddir.
Það gildir einu þótt fólk noti þetta til
að vekja á sér athygli. Það sem skiptir
máli er að fólk talar núna um ALS, eitt-
hvað sem það gerði ekki fyrir mánuði.“
Lygileg aðsókn
Súluritið yfir það hversu oft fólk leit-
aði af ALS og Ice Bucket á Google lítur
út eins og ókleift fjall. Oftast var leitar-
orðunum slegið inn frá upp úr miðj-
um ágúst og fram undir mánaðamót
ágúst/september en þá má einnig
greina aukningu þegar litið er á upp-
flettiorðið MND.
Rösklega 2,7 milljónir manna
skoðuðu Wikipedia-síðu ALS frá 1.
ágúst til þess 27. Í heilt ár fram að því
höfðu tæplega 1,7 milljónir manna
kynnt sér málið, að því er BBC grein-
ir frá.
Að meðaltali heimsóttu um
17.500 manns heimasíðu ALS dag-
lega áður en til ísfötuáskorunarinn-
ar kom. Heimsóknafjöldinn náði há-
marki 20. ágúst þegar síðan fékk 4,5
milljónir heimsókna. Síðastliðinn
mánuð heimsóttu 30 milljónir manna
heimasíðuna. Vefsíðu MND-samtak-
ann heimsóttu 153 þúsund þann 26.
ágúst, en heimsóknafjöldi fyrir ísfötu-
áskorunina var um 1.400 á dag. Fylgj-
endur MND og ALS á Twitter hafa
margfaldast og samtökin hafa líklega
aldrei fengið viðlíka athygli. Það má
því segja að markmið ísfötuáskor-
unarinnar hafi gengið upp; óhemju
miklir fjármunir söfnuðust og millj-
ónir manna um heim allan hafa kynnt
sér ALS- og MND-samtökin.
Réttmæt gagnrýni?
Þrátt fyrir þetta hafa gagnrýnisradd-
ir látið á sér kræla, að sögn BBC. Því
hefur verið haldið fram að með þessu
muni draga úr styrkjum til annarra
góðgerðamála; fólk verji aðeins tiltek-
inni upphæð á mánuði eða ári í góð-
gerðamál. Með framtakinu hrifsi ALS
og MND peningana til sín. Einnig hef-
ur verið bent á að alls ekki allir sem
taki þátt, eða taki ekki þátt, gefi fé. Að-
eins hluti sé virkir þátttakendur. Þá
hefur einnig verið bent á að auðkýf-
ingar eins og Mark Zuckerberg og Bill
Gates hafi aðeins gefið 100 dollara,
eins og aðrir. Menn sem gætu gef-
ið mun meira. Fáir hafi farið að for-
dæmi Charlies Sheen, sem gaf 10.000
dollara.
Veiku fólki gefin von
Euan MacDonald blæs á gagnrýnis-
raddir sem þessar. „Ég er búinn að
vera með MND í tíu ár. Að fylgjast með
ísfötuáskoruninni vekja athygli á sjúk-
dómnum hefur verið stórfenglegt,“
hefur BBC eftir MacDonald, sem er
stofnandi Euan‘s Guide, vefsíðu sem
hann setti á laggirnar til að fræða fólk
um ýmsa sjúkdóma í Bretlandi. „Það
er fáheyrt að MND fái viðlíka athygli
og stuðning og ég er þakklátur öll-
um þeim sem tóku þátt. Það er ekkert
slæmt við að fólk noti samfélagsmiðla
til að vekja athygli á viðfangsefninu.
Fólki sem glímir við þessa illvígu sjúk-
dóma hefur verið gefin von.“ n
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Að fylgjast með
ísfötuáskoruninni
vekja athygli á sjúkdómn-
um hefur verið stórfeng-
legt.
Gaf hraustlega Charlie
Sheen skaut öðrum ríkis-
bubbum ref fyrir rass með
því að gefa 10 þúsund
dollara til málefnisins.
Mynd ReuteRS
Hvað er MND og ALS?
Upplýsingar af vef MND-félagsins á Íslandi
Motor neuron disease (MND) eða hreyfi-
taugungahrörnun, einkennist af minnk-
andi styrk vöðva og rýrnun þeirra. Það
eru til nokkrar tegundir af MND. Ef aðeins
efri hreyfitaugungar eru skaddaðir er það
kallað ágeng hreyfitaugungahrörnun
eða primary lateral sclerosis. Þegar neðri
hreyfitaugungar einvörðungu eru skadd-
aðir er talað um vaxandi vöðvarýrnun,
spinal muscular atrophy eða progressive
muscular atrophy.
Ef hins vegar bæði efri og neðri taug-
ungar eru skemmdir er sjúkdómurinn
kallaður amyotrophic lateral sclerosis
(ALS) eða blönduð hreyfitaugahrörnun
sem er algengasta form sjúkdómsins
hjá fullorðnum á öllum aldri. Þegar
hreyfitaug deyr, getur hún ekki lengur
sent skilaboð til vöðvanna. Þessi bilun
í flutningi á taugaboðum er það sem
veldur máttleysi hjá MND-/ALS-sjúk-
lingum.
Stjarna Justin Bieber lét ekki sitt eftir
liggja.
Ofboðslega frægur David Beckham
tók þátt.
Afhjúpandi
stutt garðslanga
Starfsmenn sem sjá um viðhald á
Stonehenge-svæðinu á Englandi
komust nýverið að mikilvægri
uppgötvun er varðar fornminjarn-
ar. Fornleifafræðingar og aðrir
fræðimenn hafa löngum horft
til Stonehenge og reynt að koma
böndum yfir ráðgátuna um Sto-
nehenge. Margar kenningar
liggja að baki því hvaða tilgangi
byggingin þjónaði.
Stonehenge-svæðið er stórt
og tilkomumikið hringlanga eða
hálfmána mannvirki úr stór-
um steinum. Um er að ræða
risavaxna, ílanga steina úr sar-
sen, sem er harður sandsteinn.
Steinarnir sem nú sjást á svæð-
inu eru aðeins rústir og mik-
ið af steinunum sem áður voru
þar eru horfnir. Vísindavefurinn
greinir frá því að líklega hafi sum-
ir þeirra verið fjarlægðir á mið-
öldum, en líklega hófst bygging
Stonehenge í kringum 2950 f.
Kr. Það tók margar kynslóðir að
byggja það. Þá var hringurinn
settur upp í áföngum og var ef-
laust mikil þrekraun.
The Guardian greinir frá því að
þurrkatíma á svæðinu í fyrra hafi
fylgt nýjar vísbendingar. Þannig
var það að garðslanga sem not-
uð var á svæðinu reyndist aðeins
of stutt til þess að hægt væri að
vökva hluta svæðisins. Þegar það
gerðist komu í ljós ljótir brúnir
blettir. Blettirnir reyndust vera á
því svæði þar sem vísindamenn
telja að steina vanti í hringinn.
Áttaði starfsmaður Stonehenge
sig á því að blettirnir virtust loka
hringnum og hafði hann strax
samband við vísindamenn.
„Mér finnst eiginlega ótrú-
legast hvernig við komumst að
þessu,“ segir Tim Daw. Loftmynd-
ir voru teknar af svæðinu áður en
rigning gat náð að breyta blett-
unum í grasblett á ný og hófu
rannsóknir sínar. Á miðvikudag
var það svo gert opinbert að lík-
lega sé nú búið að finna hvern-
ig steinum var áður komið fyrir á
svæðinu. „Þetta sýnir okkur bara
hversu mikið við eigum ólært um
Stonehenge,“ segir Susan Greaney
hjá fornleifastofnun Bretlands.
ISIS boða
aftöku
Hryðjuverkasamtökin ISIS hafa
boðað fleiri aftökur. Nú hyggjast
þeir myrða breskan mann sem
samtökin hafa í haldi í Sýrlandi.
Maðurinn er David Haines, 44
ára tveggja barna faðir, og er í
haldi samtakanna. Samkvæmt
umfjöllun The Guardian um
Haines hefur hann lengi starfað
á átakasvæðum í Evrópu, Afr-
íku og Mið-Austurlöndum. Í um
tveggja áratuga skeið hefur hann
unnið hjálparstarf á áðurnefnd-
um svæðum. Sautján ára dóttir
Haines hefur tjáð söknuð sinn á
netinu og hefur Daily Mail með-
al annars eftir henni: „Ég sakna
pabba. Ég myndi gera hvað sem
er til að fá hann heim.“ Kallar hún
föður sinn hetju, en hann starfaði
í flóttamannabúðum í Sýrlandi
og þaðan var hann tekinn hönd-
um í mars í fyrra.