Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Síða 25
Fréttir Erlent 25Helgarblað 5.–8. september 2014
Vinna berfættir
Við niðurrif skipa
n Skipafélög hætta að senda skip til Bangladess n Vinna við slæmar aðstæður
E
itt stærsta skipafélag heims,
þýska fyrirtækið Hapag-
Lloyd, hefur ákveðið að
hætta að senda úrelt skip til
niðurrifs í Bangladess eins og
félagið hefur gert um árabil. Ástæð-
an er slæmur aðbúnaður verka-
manna sem vinna við niðurrifið.
Breska ríkis útvarpið, BBC, fjallaði
um málið á dögunum.
Skapar þúsundir starfa
Aðbúnaður verkamanna sem vinna
við að rífa niður gömul og ónýt
skip hefur verið aðilum í skipa-
iðnaði hugleikinn undanfarin miss-
eri. Í Bangladess, þá sérstaklega við
strendur næstfjölmennustu borgar
landsins, Chittagong, blómstrar
þessi iðnaður og skapar þúsundum
starf. Eins og gefur að skilja er
það ekki með öllu hættulaust að
rífa niður skip sem vega þúsundir
tonna. Fyrirtæki hafa séð hag sín-
um best borgið með að senda skip-
in til niðurrifs í Bangladess enda er
tilkostnaðurinn lítill. Þess vegna er
það freistandi fyrir stórfyrirtæki að
senda skipin þangað í stað þess að
senda þau á öruggari staði þar sem
tilkostnaðurinn er meiri.
Vinna berfættir
Ákveðin vitundarvakning virðist
þó vera að eiga sér stað enda vinna
þessir verkamenn við mjög hættu-
legar aðstæður og er lítil áhersla
lögð á að tryggja öryggi þeirra. Ekki
er óalgengt að verkamennirnir séu
berfættir og þá er talið að einn af
hverjum tíu sem vinna við niður-
rif skipa í Chittagong sé undir 18
ára aldri. Tveir verkamenn deyja við
störf sín að meðaltali á mánuði, að
sögn samtakanna Young Power in
Social Action sem láta sig aðbúnað
verkafólks í Bangladess sig varða.
Fjórir létust vegna kolsýringseitrun-
ar í apríl síðastliðnum.
Margir gætu misst vinnuna
„Við ákváðum að við vildum ekki
senda skipin okkar þangað,“ segir
talsmaður Hapag-Lloyd og vísar
til Chittagong. Fyrirtækið hefur
ákveðið að senda skipin frekar til
Kína þar sem aðstæður verkafólks
eru mun betri en í Bangladess. Þetta
kostar fyrirtækið stórar fjárhæðir og
segjast forsvarsmenn fyrirtækisins
þurfa að greiða allt að 350 milljónum
króna meira fyrir að senda skipin til
Kína. Þessi ákvörðun Hapag-Lloyd
og danska fyrirtækisins Maersk sem
ákvað slíkt hið sama fyrir nokkru –
auk annarra fyrirtækja sem íhuga
að fylgja fordæmi þeirra – gerir það
að verkum að þúsundir gætu misst
vinnuna í Chittagong. Ekki þarf að
taka fram að þetta er ein helsta at-
vinnugrein íbúa borgarinnar.
470 krónur á dag
„Þessir verkamenn þéna fjóra
dollara á dag. Það er ekki neitt sé
litið til þess hversu hættulegt starf-
ið er. Þetta fólk veikist og deyr,“ seg-
ir Muhammed Ali Shahin sem berst
fyrir auknum réttindum verkafólks
í Chittagong. Fjórir dollarar sam-
svara um 470 krónum á dag og má
því áætla að mánaðarlaun verka-
mannanna á ströndum Chitta-
gong séu um 10–12 þúsund krónur.
Muhammed segir að verkamennirn-
ir séu berskjaldaðir fyrir eiturefnum
og deyi oft langt fyrir aldur fram.
„Þverbrotið á fólki“
Muhammed segist telja að farsæl-
ast væri að stór skipafyrirtæki fjár-
festu í og byggðu niðurrifsstöðv-
ar í Bangladess. „Það ætti að færa
þessa starfsemi af ströndinni,“
segir hann en bætir við að fyrst og
fremst ætti að tryggja betur að-
búnað og réttindi verkafólks. „Það
er þverbrotið á þessu fólki. Hér er
unnið í 12 til 16 tíma á dag og fólk
fær engan öryggis búnað. Verka-
fólk deyr hér á hverjum degi,“ seg-
ir hann. n
Chittagong Hér sjást þrír
starfsmenn með öryggis-
hjálm. Skipaniðurrif er stór
iðnaður í Chittagong.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
„Hér er unnið í
12 til 16 tíma á
daga og fólk fær engan
öryggisbúnað.
Erfiðar aðstæður Langflestir verkamenn sem vinna við skipaniðurrif í Chittagong nota
ekki öryggisbúnað.
Berfættir Eins og sést á þessari mynd nota verkamenn ekki skó með stáltám eins og
eflaust myndi tíðkast annars staðar en í Bangladess. Þeir eru berfættir.
Mjög veikir
eftir sveppaát
Fimm manns voru fluttir alvar-
lega veikir á sjúkrahús í Noregi
eftir að hafa borðað reifasvepp.
Reifasveppir, einnig þekktir
undir nafninu Serkir, eru mjög
eitraðir og er talið að þeir verði
valdir að 95 prósent dauðsfalla
vegna sveppaeitrunar í heim-
inum. Norskir fjölmiðlar greina
frá því að allir sjúklingarnir hafi
verið fluttir á Gjövík-sjúkrahús-
ið en flytja hafi þurft þrjá þeirra
á Ulleval-sjúkrahúsið í Ósló
þar sem ástand þeirra var talið
mjög alvarlegt. Eitrið í svepp-
unum getur haft mjög skaðleg
áhrif á líffæri og eyðilagt lifrina
og nýrun. Hálfur til einn svepp-
ur getur verið banvænn.
Saklausir í
fangelsi í 30 ár
Þrjátíu árum eftir að hafa verið
dæmdir vegna nauðgunar
og morðs á ellefu ára stúlku,
Sabrinu Bui, eru hálfbræðurn-
ir Henry McCollum og Leon
Brown lausir úr fangelsi. Þetta
ákvað dómari í vikunni eftir
að DNA-sönnunargögn leiddu
í ljós að annar maður framdi
glæpinn. McCollum, sem er
50 ára, hlaut dauðadóm en
Brown, sem er 46 ára, lífstíðar-
fangelsi.
Talið er að lögregla hafi beitt
þá miklum þrýstingi og þving-
að þá til að játa á sig morðið
á sínum tíma. Þetta var gert
jafnvel þó að annar grunaður
einstaklingur, Roscoe Artis,
sem bjó skammt frá staðnum
þar sem lík stúlkunnar fannst,
hefði játað að hafa framið sam-
bærilegan glæp á svipuðum
tíma. Artis, sem er 74 ára, situr
bak við lás og slá vegna þess
máls, morðs og nauðgunar á
18 ára stúlku sem fannst látin
innan við mánuði eftir að lík
Sabrinu fannst.
DNA-rannsóknin leiddi
einmitt í ljós að allar líkur séu
á að Artis hafi framið glæpinn.
Erfðaefni hans fundust á sígar-
ettustubbi sem fannst skammt
frá líkinu. Bræðurnir eru báðir
þroskaskertir og sagði dómar-
inn, sem kvað upp úrskurðinn
að þeim skyldi sleppt, að það
væri skelfileg tilhugsun að
hægt væri að fangelsa menn
fyrir glæp sem þeir komu ekki
nálægt. Lögmaður McCollums
sagði að það hefði fengið mik-
ið á skjólstæðing sinn að sitja á
dauðadeild. Hann hefði kynnst
mörgum föngum sem síðar
voru teknir af lífi. „Það er ekki
hægt að koma orðum að því
hvað þessir menn hafa gengið
í gegnum og hversu miklu þeir
hafa misst af,“ sagði verjandi
hans.