Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Side 26
Helgarblað 5.–8. september 2014
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður: Elín G. Ragnarsdóttir • Ritstjóri: Reynir Traustason • Aðstoðarritstjóri: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir Ritstjórnarfulltrúi: Ingi
Freyr Vilhjálmsson • Umsjónarmaður innblaðs: Viktoría Hermannsdóttir • Umsjónarmaður helgarblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir • Framkvæmdastjóri
og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson • Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéttASkot
512 70 70FR jál S t, ó Háð DAg b l Að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AðAlnÚmeR
RitStjóRn
áSkRiFtARSími
AUglýSingAR
Sandkorn
26 Umræða
Reynir Traustason
rt@dv.is
Leiðari
Bréf til áskrifenda
Á
þessari stundu er ekki vit-
að hvort ég er að skrifa
minn síðasta leiðara á sjö
ára starfsferli í DV. Þessi
leiðari minn er eins konar skýrsla
til áskrifenda sem hafa í hrönn-
um yfirgefið DV eftir að auðmað-
ur með vafasamt orðspor upplýsti
um raunverulegan tilgang með yf-
irtöku á DV. Yfirlýst stefna Björns
Leifssonar hluthafa og fleiri í
eigendahópnum er sú að reka mig
úr starfi. Sumir þeirra hafa fjár-
fest sérstaklega í því skyni að losna
við ritstjórann. Þeirri afstöðu ræð-
ur pirringur sem einna helst má
rekja til umfjöllunar um þá sjálfa,
lekamálið og Framsóknarflokk-
inn. Sterkir skuggaeigendur í DV
hafa gert athugasemdir við fræki-
lega framgöngu blaðamannanna
tveggja sem fengu verðlaun Blaða-
mannafélags Íslands fyrir um-
fjöllun sína. Undanfarnir mánuð-
ir hafa einkennst af átökum vegna
þessa máls þar sem Þorsteini
Guðnasyni hefur verið teflt fram í
einhverri ömurlegustu refskák ís-
lenskrar fjölmiðlasögu.
Átökin um DV hafa ekki far-
ið framhjá nokkrum manni. Til-
raun til fjandsamlegrar yfirtöku
hefur staðið mánuðum saman.
Þorsteinn Guðnason, fyrrverandi
stjórnarformaður, hefur farið víða
í bandalagi við lögmanninn Sigurð
G. Guðjónsson. Ítarlegt og vand-
að lögfræðiálit sem stjórn lét vinna
sýnir fram á lögbrot Þorsteins sem
stjórnarformanns á þessu ári þar
sem hann reyndi að láta verðlausa
eign inn í félagið í skiptum fyr-
ir hlutafé. Þær sakir eru á dagskrá
aðalfundar DV þar sem Þorsteinn
ætlar líklega í krafti meirihluta að
sópa málinu undir teppið. Fram-
an af voru þeir félagar undir yfir-
borðinu en skömmu fyrir verslun-
armannahelgi spurðist út að Lilja
Skaftadóttir, sem kom eignarhlut
sínum inn í einkahlutafélagið Tart,
hefði í laumi selt Þorsteini 13 pró-
senta hlut sinn sem þá fór langt
með að tryggja umbjóðendum
Þorsteins meirihluta í félaginu.
Lilja staðfesti sjálf opinberlega og
í samtölum við starfsmenn DV að
hún hefði selt hlut sinn til Þor-
steins og þegar fengið greitt. Sagði
hún að ekki yrði til baka snúið.
Seinna sagðist hún í svari til stjórn-
ar fara sjálf með umrædd hlutabréf
og lét í veðri vaka að salan hefði
ekki átt sér stað. Það undarlega er
að kaupandi bréfa hennar á enga
sjóði til að ganga í og er í miklum
fjárhagserfiðleikum.
Eftir að Lilja seldi eða seldi
ekki hófst Þorsteinn handa við að
bjóða í bréf annarra. Boðið var í
hlutabréf fyrirtækisins Gagnsæ-
is en fyrirsvarsmenn þess félags
sýndu þann drengskap að bjóða
starfsmönnum DV að ganga inn
í kaupin fremur en að hjálpa yfir-
tökuhópi Þorsteins og Sigurðar G.
við að loka inni smærri hluthafa og
fara með félagið eins og þeim sýn-
ist. Og liðsmenn Sigurðar héldu
áfram að bjóða í hluti. Björn Leifs-
son, kenndur við World Class, náði
með gylliboðum að laða til sín litla
hluthafa sem féllu fyrir boði um
að selja á himinháu gengi, líklega
2,2. Björn lýsti í framhaldinu yfir
að ritstjóri DV væri „stórhættuleg-
ur mannorðsmorðingi“ sem hann
ætlaði með innkomu sinni að
koma úr starfi áður en hann sneri
sér aftur að hefðbundnum störfum
sínum. Hann reiddi af hendi hátt í
10 milljónir króna í þeim eina til-
gangi að láta reka starfsmann DV.
Í þessu felst það siðleysi sem all-
ir sjá. Auðmenn eiga ekki að kom-
ast upp með að nota fjárhagslega
yfirburði sína til að koma höggi á
þá sem ekki hafa úr slíkum fjár-
munum að spila. Í þessu ljósi ætti
fólk að íhuga að það eru tvær leið-
ir. Þú getur farið inn í fyrirtæki til
að skaða það eða starfsmenn þess.
Þú getur líka farið út úr fyrirtæki
og hafnað því að styðja reksturinn.
Það sorglega er að innkoma Björns
Leifssonar í DV hefur hrakið hund-
ruð áskrifenda á flótta. Það snertir
hann örugglega ekki neitt. Bíllinn
hans kostar þrefalt það sem hann
lagði í DV. Aftur á móti ættu þeir
sem átta sig á siðleysinu að íhuga
hvort þeir vilja skipta við svona
mann, yfirhöfuð.
Sigurður G. Guðjónsson lög-
maður hefur farið víða og dreift
sögum í því skyni að koma höggi
á þá sem hann telur andstæðinga
sína í hópi starfsmanna og hlut-
hafa DV. Lán mín til hlutafjár-
kaupa hafa verið gerð tortryggileg
þótt þau séu skilmerkilega skráð
og engin vísbending um að þau
hafi haft áhrif til góðs fyrir lán-
veitendur. Það er ekkert ósagt í
þeim efnum. En eignarhald um-
rædds meirihluta er hulið myrkri.
Hvaðan fékk Þorsteinn peningana
til að kaupa hlut Lilju og skulda-
bréf hennar? Þar er líklega um 30
milljónir króna að ræða. Hvaðan
fékk Þorsteinn hátt í 10 milljónir
til að „kaupa“ út Björn Leifsson?
Hvaðan fékk hann það hlutafé
sem Tryggvi Geir ehf. lagði fram?
Það blasir við að yfir 40 milljónir
króna hafa streymt upp úr vösum
Þorsteins Guðnasonar á undan-
förnum vikum. Það er algjörlega
útilokað að sjálfur hafi hann átt
þessa fjármuni. Ýmsir eru nefndir
til sögunnar sem hugsanlegir bak-
hjarlar Þorsteins. Björn í World
Class er einn þeirra sem grunað
er að sé inni í myrkviðunum. Og
það eru fleiri skjólstæðingar Sig-
urðar G. Guðjónssonar sem koma
til greina. Hann fór með mál á
hendur DV fyrir hönd Bakkavarar-
bræðra. Þá hefur Sigurður verið í
langvarandi viðskiptasambandi
við Jón Ásgeir Jóhannesson. All-
ir þessir menn hafa til þess burði
að henda inn peningum í því skyni
að svipta smærri hluthafa áhrifum
og reka óþæga blaðamenn og rit-
stjóra. Það er skýlaus krafa að Þor-
steinn og Sigurður upplýsi hver
á milljónirnar í myrkrinu. Sjálfur
hef ég ekki hugmynd um það um-
fram það sem snýr að mínum eig-
in fjárfestingum þar sem koma við
sögu sem lánveitendur Guðmund-
ur Kristjánsson, kenndur við Brim,
og Gísli Guðmundsson, kenndur
við B&L. Við lifum nú á söguleg-
um tíma. Auðmenn með lepp eru
að ná undir sig fjölmiðli sem hef-
ur verið frjáls og óháður. Sjálfur
kvíði ég engu. Hótanir Sigurðar G.
um að koma mér á kné fjárhags-
lega skipta mig litlu. Ég mun mæta
á blóðvöllinn í dag og taka slaginn.
Og það verður eins og í Valhöll
forðum. Við, sem viljum dreifða
eignaraðild, munum hugsanlega
falla í valinn en rísa upp að kveldi.
Og þá skulum við spyrja að næstu
leikslokum. Kæru áskrifendur.
Fjölmargir ykkar hafa lýst yfir að
þeir muni segja upp blaðinu í ljósi
yfirtökunnar. Ég bið ykkur að bíða
og sjá. Barátta okkar sem stönd-
um í andófinu snýst um að eignar-
aðild að DV verði dreift eins og lagt
var upp með í upphafi. Þónokkuð
hefur miðað í þá átt undanfarið en
betur má ef duga skal. Óvissan er
algjör. n
Hanna Birna sterk!
Björn Bjarnason, fyrrverandi
dómsmálaráðherra, er einn
tryggasti aðdáandi Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, fráfarandi ráð-
herra dómsmála. Hanna Birna
virðist búin að vera pólitískt þótt
enginn viti hvað framtíðin beri
í skauti sér. Innan flokks ligg-
ur hún lágt á meðan formað-
urinn fer með himinskautum
í vinsældum. Nú hefur Björn
komist að þeirri niðurstöðu að
fylgisaukning Sjálfstæðisflokks-
ins sé öflugri málsvörn Hönnu
að þakka.
Útskúfaður
Brátt hefjast réttarhöld í máli
Snorra Óskarssonar í Betel sem
rekinn var úr starfi kennara
vegna bloggfær-
slu. Snorri fór
mikinn og fjall-
aði um samkyn-
hneigð með
þeim afleiðing-
um að bærinn rak
hann úr vinnu
frá Brekkuskóla. Innanríkisráðu-
neytið hefur úrskurðað að brott-
reksturinn hafi verið ólögmætur
en Akureyrarbær ákvað að fara í
mál. Fyrir Snorra er afleiðingin
sú að hann er útskúfaður frá
skólum bæjarins og fær hvergi
vinnu sem kennari.
Stefán horfinn
Brotthvarf Stefáns Hilmarsson-
ar, fjármálastjóra 365 og áður
Baugs, frá fjölmiðlasamsteyp-
unni vekur
athygli. Stef-
án hefur ver-
ið einn nánasti
samstarfsmað-
ur Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar,
skuggastjórnanda
365, og hefur sem slíkur haft
mikil áhrif. Brotthvarf hans þykir
vera vísbending um að Jón sé að
missa tökin. Haft er eftir Stefáni í
Viðskiptablaðinu að hann sé að
hverfa til starfa annars staðar í
mengi Jóns Ásgeirs en hann fæst
ekki til að upplýsa hvar.
Meðbyr Ámunda
Ámundi Ámundason útgefandi
hefur verið að færa út kvíarn-
ar undanfarið og koma á kopp-
inn vikublöðum
úti um allt land.
Þetta eru fríblöð
og þykir mörgum
vera aðdáunar-
vert hversu harðri
blaðamennsku
er haldið þar úti.
Þannig er það með Akureyrarút-
gáfuna sem hefur skekið himin
og jörð. Nú búast menn við mikl-
um látum á Vestfjörðum þegar
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrver-
andi þingmaður, tekur að sér
ritstjórn nýs blaðs. Búist er við
hamfaraskrifum þegar „Sleggj-
an“ fer af stað.
„Ég mun mæta á
blóðvöllinn í dag
og taka slaginn.
Það voru engin vandamál
Snædís Rán Hjartardóttir er hreyfihömluð en sigldi um Úlfavatn í Kanada. - DV.
Tónlist á sér mörg líf Ég vil bara græða
Íslensk vændiskona segist hafa gaman af kynlífi. - DV.Svavar Pétur Eysteinsson á eitt vinsælasta lag landsins. - DV.