Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Side 28
28 Umræða Helgarblað 5.–8. september 2014
Vel tímastillt viðspyrna Umsjón: Henry Þór Baldursson
T
ryggvi Þór Herbertsson,
verkefnisstjóri skuldaleið-
réttingarinnar, setti fram
efasemdir um fjármögnun
afskriftanna í Ríkisútvarp-
inu í vikunni. Ef ekki næst að fjár-
magna aðgerðirnar, meðal annars
með bankaskattinum á þrotabú
föllnu bankanna þriggja, þá kann
að vera að hætt verði við þær. „Ég
held að varaplanið sé alltaf það að
afturkalla hluta aðgerðanna, þetta
er háð fjármögnun á hverju ári,“
sagði Tryggvi Þór.
Stærsta kosningaloforð Fram-
sóknarflokksins, eða stórlega
milduð útgáfa þess, mun því ekki
komast til framkvæmda nema að
litlu leyti. Þetta hlýtur að þýða að
ríkið þarf að bíða með það að fram-
kvæma 80 milljarða skuldaleið-
réttinguna á næstu fjórum árum.
Annars verður ríkið búið að leggja
út í 80 milljarða útgjöld í formi höf-
uðstólslækkana sem ekki er víst að
fjármögnun fáist fyrir.
Bankaskatturinn er lagður á –
hann á að skila ríkissjóði um 23
milljörðum á ári næstu fjögur árin
– og svo verður séð til hvort hann
heldur fyrir dómstólum, fari svo
að slitastjórnir föllnu bankanna
höfði dómsmál gegn ríkinu til að
sjá hvort skatturinn sé lögmætur.
Steinunn Guðbjartsdóttir, formað-
ur slitastjórnar Glitnis, hefur alltaf
sagt að bankinn muni láta reyna á
lögmæti skattsins. Nánast má full-
yrða að þetta verður gert. Einungis
einn af föllnu viðskiptabönkunum
þremur þarf að fara í mál gegn rík-
inu til að láta reyna á réttmæti skatt-
heimtunnar. Hafi sá banki betur er
komið fordæmisgildi sem hinir
bankarnir geta þá grundvallað mál-
sókn, eða kröfugerð, gegn ríkinu á.
Ef slíkt dómsmál verður höfðað
og klárað á næstu mánuðum, og ef
þrotabúin hafa betur, getur kom-
ið til þess að íslenska ríkið þurfi að
endurgreiða þrotabúum bankanna
umræddan bankaskatt til baka
með vöxtum. Dragist dómsmál út
af bankaskattinum á langinn kann
að vera að þrotabú föllnu bank-
anna verði aftur rukkuð um skatt-
inn að ári. Þannig mun hugsanleg
skuld ríkisins við þrotabú bank-
anna vaxa ár frá ári, komi til þess að
dómstólar dæmi bankaskattheimt-
una ólöglega. Hvað gerist svo í kjöl-
farið er óljóst. Íslenska ríkið mun
þá að minnsta kosti þurfa að taka
á sig þær skuldbindingar sem fel-
ast í þeirri upphæð sem höfuðstóll
skulda hefur verið lækkaður um í
leiðréttingunni. Hvernig svo sem
ríkið fer að því. Alveg ljóst er að rík-
isvaldið mun ekki geta krafið þá um
endurgreiðslu sem sótt hafa um og
fengið höfuðstólslækkun.
Hvað gengur Tryggva Þór eig-
inlega til með þessum orðum sín-
um? Hann er einfaldlega að benda
á þann möguleika, þann sannleika,
að hugsanlega sé fjármögnun leið-
réttingarinnar enn þá „í skógi“, svo
notað sé orðalag Bjarna Benedikts-
sonar um fjármögnun kosninga-
loforðs Framsóknarflokksins í apr-
íl í fyrra. Ætli ekki sé rétt að þakka
Tryggva Þór fyrir hreinskilnina.
Vigdís Hauksdóttir, þingkona
Framsóknarflokksins, var hins
vegar ekki sátt við þessi orð Tryggva
Þórs. Hana má skilja sem svo að að-
gerðirnar verði fjármagnaðar úr rík-
issjóði ef ekki næst að fjármagna
þær með bankaskattinum, ef hann
verður dæmdur ólögmætur það er
að segja. „Við framsóknarmenn og
ríkisstjórnin öll stöndum að þess-
um aðgerðum og það verður ekki
dregið til baka eins og Tryggvi er
að smeygja að. Raunverulega skil
ég ekki hvaðan Tryggvi hefur þess-
ar hugmyndir.” Lét Vigdís einnig í
veðri vaka að spurningin um fjár-
mögnunina á skuldaniðurfell-
ingunni væri pólitísk og að Tryggvi
Þór ætti ekki að blanda sér í póli-
tík sem verkefnisstjóri skuldaleið-
réttingarinnar. Miðað við þessi orð
Vigdísar virðist ríkisstjórnin ekki
vera með plan B: Hvað gerist ef
bankaskatturinn heldur ekki fyr-
ir dómi? Vigdís virðist fullviss um
að ríkissjóður standi þá undir leið-
réttingunni án bankaskattsins.
Alveg sama hvernig málið fer
þá bendir Tryggvi Þór á mikilvægt
atriði. Ef bankaskatturinn held-
ur ekki fyrir dómi og ekki er hægt
að fjármagna skuldaleiðréttinguna
með honum þá þarf annaðhvort að
finnna aðra fjármögnunarleið eða
hætta við aðgerðirnar. Þau Tryggvi
Þór og Vigdís deila bara um hvað
muni gerast ef bankaskatturinn
verður dæmdur ólögmætur. Vigdís
segir að skuldaafskriftirnar muni
eiga sér stað jafnvel þó svo verði á
meðan Tryggvi Þór efast um það.
Ef Vigdís heldur því til streitu
sem hún segir mun það því meðal
annars hvíla á henni sem formanni
fjárlaganefndar og meðlimi í hag-
ræðingarhópi ríkisstjórnarinnar að
finna fjármagnið sem ríkissjóður
ætlar að nota í verkið. Hvar það fjár-
magn verður klipið saman er erfitt
að segja auðvitað. Sama hvernig
á málið er litið þá er ekki hægt að
segja að fjármögnun leiðréttingar-
innar sé í hendi. n
80 milljarða fugl í skógi
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ingi@dv.is
Kjallari
„Við framsóknar-
menn og ríkis-
stjórnin öll stöndum að
þessum aðgerðum og
það verður ekki dregið til
baka eins og Tryggvi er
að smeygja að.
1 „Loforð ykkar eru einskis virði“ „Vonandi
hefur þetta einhver áhrif – en ég á ekki
von á því,“ segir Agla Þyri Kristjánsdóttir
í samtali við DV en mynd sem hún deildi
á Facebook-síðu sinni á sunnudag, af
greiðsluseðli vegna íbúðaláns frá árinu
2006, hefur vakið talsverða athygli.
52.868 hafa lesið
2 Hótaði á gamlárskvöld: „Það styttist í helvítið
Ásdís. Þú valdir þetta“ Erlendur
Þór Eysteinsson, 64 ára, var í júlí
dæmdur í átta mánaða fangelsi fyrir
grófar hótanir og brot á nálgunarbanni
sem lagt hafði verið á hann. Líkt og DV
hefur greint frá var fyrrverandi
sambýliskona hans, Ásdís H. Viðars-
dóttir, brotaþoli í málinu, en hún steig
fram í maí síðastliðnum og sagði sögu
sína í Kastljósi.
51.140 hafa lesið
3 Skelfileg viðbrögð fjölskyldu eftir að ungur
maður kemur út úr skápnum:
„Þú ert helvítis hommi“ Daniel
Ashley Pierce er tvítugur Bandaríkja-
maður sem kom út úr skápnum í október
síðastliðnum. Á þeim tíma sýndi faðir
hans engin viðbrögð og stjúpmóðir hans
virtist sýna honum stuðning.
43.767 hafa lesið
4 Áttaði sig eftir að hafa horft á Titanic Park Yeon-mi
áttaði sig á því að eitthvað var bogið við
fæðingarland sitt, Norður-Kóreu, eftir
að hafa laumast til að horfa á
bandarísku stórmyndina Titanic.
41.925 hafa lesið
5 Mikið álag á fjölskylduna sem
skiptir á milli sín vöktum Fyrir
rúmum fjórum árum var Margrét
Stefánsdóttir að
hjóla heim til sín úr
miðbænum í
vesturbæinn. Hún
féll af hjólinu og
höfuðið slengdist
utan í gangstéttarbrún. Slysið breytti lífi
Margrétar og fjölskyldu hennar.
41.179 hafa lesið
6 „Ég vil bara
græða á
þessu“ „Ég er
hamingjusöm og
geri þetta vegna
þess að ég vil gera
þetta. Ekki vegna
þess að ég er
neydd til þess og
ég er ekki beitt ofbeldi,“ segir kona á
sextugsaldri sem búsett er í úthverfi
Reykjavíkur og stundar vændi.
40.874 hafa lesið
Ósammála Tryggvi Þór Herbertsson og Vigdís Hauksdóttir eru ósammála um hvað muni
gerast ef ekki næst að fjármagna skuldaleiðréttinguna með bankaskattinum.