Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 43
Helgarblað 5.–8. september 2014 Skrýtið 43
Nokkrar magNaðar
staðreyNdir um texas
n Tvöfalt stærra en Þýskaland n Væri 13. stærsta hagkerfi heims ef það væri sjálfstætt
Þ
að er allt stærra í Texas,“ er
orðatiltæki sem gjarnan er
haft um hið ógnarstóra Texas-
ríki í Bandaríkjunum – og ekki
að ástæðulausu. Þó að Texas
sé í raun aðeins eitt 50 ríkja Banda-
ríkjanna er íbúafjöldi þess 26,5 millj-
ónir og er það því rúmlega 80 sinnum
fjölmennara en Ísland. Flestir íbú-
anna búa í borgum á borð við Hou-
ston, Dallas og Austin þó að vitanlega
séu þeir á víð og dreif um ríkið eins
og gengur og gerist. Vefritið Business
Insider tók á dögunum saman nokkrar
athyglisverðar staðreyndir um Texas. n
Auðugt af olíu Talið er að
hráolíubirgðir sem finna má innan ríkismarka
Texas nemi 9,6 milljörðum tunna. Þetta
jafngildir 31,5 prósentum af öllum hráolíubirgð-
um sem finna má í Bandaríkjunum. Hægt væri
að fylla 1.459 Empire State-byggingar með
hráolíunni sem finna má í Texas.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
Houston Houston
er fjölmennasta borg
Texas með um tvær
milljónir íbúa.
Ólöglegir innflytjendur Ríkismörk Texas teygja sig ansi langt og á
ríkið landamæri að fjölda annarra ríkja; má þar nefna Nýju-Mexíkó, Oklahoma, Arkansas og
Louisiana. En Texas á líka landamæri að Mexíkó og hafa ófáir reynt að komast yfir
landamærin til Bandaríkjanna einmitt frá Mexíkó – hvort sem þeir koma upprunalega frá
Mexíkó eða öðrum ríkjum Mið- eða Suður-Ameríku. Talið er að í Texas séu um 1,6 milljónir
ólöglegra innflytjenda, eða allt að sjö prósentum íbúa. Til samanburðar er íbúafjöldi
Philadelphiu, fimmtu fjölmennustu borgar Bandaríkjanna, rúmlega 1,5 milljónir.
Margir glíma við offitu Bandaríkjamenn eru margir
hverjir of feitir og eru íbúar Texas þar engin undantekning. Talið er að 65,9 prósent
fullorðinna í Texas séu of þung og rúmlega 30 prósent glími við offitu. Þetta þýðir
að um 5,6 milljónir fullorðinna einstaklinga í Texas glíma við offitu. Til samanburð-
ar má geta þess að íbúar Danmerkur eru jafn margir, 5,6 milljónir.
Forsetarnir koma frá
Texas Frá árinu 1963 hefur þriðjungur allra
kjörinna forseta Bandaríkjanna komið frá Texas.
Þetta eru þeir Lyndon B. Johnson, George Bush
(eldri) og George W. Bush (yngri).
Tvöfalt stærra en
Þýskaland Texas er stærsta ríki
Bandaríkjanna, eða tæplega 700 þúsund
ferkílómetrar. Ísland er 103 þúsund
ferkílómetrar og Þýskaland er 357 þúsund
ferkílómetrar. Stærð Texas svarar til um 7,4
prósenta af heildarstærð Bandaríkjanna í
ferkílómetrum.
Obama vinsæll Þó að
Texas sé eitt helsta vígi Repúblikanaflokks-
ins í Bandaríkjunum kusu 41,4 prósent íbúa
Barack Obama, forsetaefni demókrata, í
forsetakosningunum árið 2012. Þetta
jafngildir því að 3,3 milljónir íbúa Texas hafi
kosið Obama. Þess má geta að íbúafjöldi
Connecticut er tæplega 3,6 milljónir.
Treysta á vindorku
Texas er leiðandi á sviði vindorkufram-
leiðslu í Bandaríkjunum og má víða sjá
vindmyllur úti í óbyggðum. Stærsta
vindorkubú Texas er 4,5 sinnum stærra en
Manhattan í New York. Framleiðslugetan
er 781 megavatt sem dugar til að veita 230
þúsund heimilum rafmagn.
Ef Texas væri sjálf-
stætt ríki … væri það 13 stærsta
hagkerfi heims með tilliti til vergrar
landsframleiðslu. Hún nemur um 1,43
billjónum (e. trillion) dala, en þess má geta
að ein billjón er milljón milljónir. Þetta þýðir
að hagkerfi Texas er stærra en hagkerfi
Spánar, Suður-Kóreu og Mexíkó sem eru 13.,
14. og 15. stærstu hagkerfi heims í dag.
Vélbyssuvæðing
Byssueign er mjög almenn í Texas eins og
flestir vita. Samkvæmt Business Insider eru
28.690 vélbyssur (já, vélbyssur) skráðar í
ríkinu en það myndi duga til að vopna alla
þá nemendur sem skráðir voru til náms í
UCLA-háskólanum haustið 2013. Og ef við
viljum heimfæra þetta á Ísland myndi það
duga til að vopna nánast alla íbúa
Akureyrar og Garðabæjar.
n Judith var 15 ára þegar hún kynntist Alvin n Saman fetuðu þau glæpastigu