Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 44
Helgarblað 5.–8. september 201444 Lífsstíll
Tjóðraðar barbIEdúkkur og playmo-karlar
n Vilja opna á umræðuna um BDSM og blæti n Berjast gegn fordómunum
V
ið viljum minnka fordóma
og fræða fólk. Opna á um
ræðuna þannig að fólk
þurfi ekki að vera í felum
með þetta og skammast
sín,“ segja stjórnarmenn í BDSM á
Íslandi. DV fékk innsýn inn í heim
félaga í BDSM samtökunum sem
stjórnarmenn segja í vera regnhlíf
arsamtök fyrir fólk með hin ýmsu
blæti. „Hér eru allir velkomnir og
fjölbreytileikinn er ótrúlegur,“ segir
einn stjórnarmanna þegar við hitt
umst einn eftirmiðdag í miðri viku.
Blæti af öllum toga
Um 60–70 manns borga árgjald í
samtökin en þau segja mun fleiri
vera virka innan „senunnar“ eins og
þau kalla hana. Senunni svonefndu
er hins vegar ekki haldið úti af sam
tökunum.
Líklega tengja flestir BDSM við
leður, ólar og ýmislegt í þeim dúr
með kynferðislegu ívafi. Stjórnar
mennirnir sem hér eru staddir, og
einn á Skype, nánar tiltekið lands
byggðarfulltrúi samtakanna, segja
þó að BDSM snúist alls ekki að öllu
leyti um kynlíf og innan BDSM sam
takanna sé að finna fólk með alls
konar blæti.
„Þau eru af öllum toga,“ segir
Magnús sem er einn stjórnarmanna
og einn stofnenda samtakanna en
þau voru upprunalega stofnuð árið
1997. Þau lögðust af um tíma vegna
deilna innan félagsins en voru
endurvakin fyrir nokkrum árum og
standa nú að hinni ýmsu fræðslu,
námskeiðahaldi og „hittingum“ fyr
ir félaga innan samtakanna. „Það
eru svona 200 á ári sem eru að mæta
á þessa „hittinga“,“ segir Ólafur sem
einnig er stjórnarmaður samtak
anna. Þeir segja tilgang samtakanna
vera að hjálpa þeim sem eru að stíga
sín fyrstu skref í BDSM, fræða og
vera til staðar. „Margir eru hræddir
við þetta og svo verðum við líka vör
við það að unglingar eru að prófa
sig áfram í ýmsu sem getur beinlín
is verið hættulegt. Við viljum líka
ná til þeirra,“ segir Magnús og nefn
ir þar dæmi um unglinga sem hafi
verið að reyna kyrkja hver annan í
kynlífstengdum tilgangi. „Bara mjög
hættulegt,“ segir hann og ítrekar að
öryggi sé fyrir öllu hjá þeim sem ætli
sér að stunda BDSM.
Tjóðraðar Barbiedúkkur
og Playmo-karlar
Réttindabarátta samtakanna snýst
líka um það að fá BDSM viðurkennt.
„Það eru margir sem segja að BDSM
sé áhugamál eða lífsstíll. Við viljum
að þetta verði viðurkennt hér sem
„sexual identity“ eða kynvitund sem
er reyndar ekki rétta orðið yfir það.
Það hefur verið gert víða í kring um
okkur,“ segir Magnús. Hann segir
marga uppgötva þessa þörf hjá sér
löngu fyrir kynþroskaaldur og þess
vegna sé þetta ekki endilega alltaf
tengt kynlífi.
„Margir eiga til dæmis minningar
af sér að tjóðra Barbiedúkkur og
Playmokarla,“ segir hann. Þau segja
mikilvægt að upplýsa fólk um það
að hér sé ekki um sjúkdóm að ræða.
„Það þarf að afsjúkdómavæða hug
takið. Sumir halda að það sé hægt
að lækna fólk af BDSM en það er
álíka líklegt og að lækna einhvern af
samkynhneigð,“ segir Magnús.
Partur af þeim
„Þetta er bara partur af manni. Þetta
ristir misdjúpt hjá fólki. Fyrir mörg
okkar er þetta virkilega stór partur
af okkar sjálfsmynd en fyrir öðrum
er þetta bara hluti af kynlífi,“ seg
ir landsbyggðarfulltrúinn Margrét.
„Fyrir mig var þetta svolítið eins og
að koma út úr skápnum. Það var
svo frelsandi að leyfa hlið á manni,
sem hafði verið bæld, að koma
fram og hætta að skammast sín fyr
ir einhverjar svona hvatir sem mað
ur fann fyrir,“ segir hún einlæg og
hinir kinka kolli til samþykkis. „Ég
held að þetta sé mjög líkt því sem
samkynhneigðir og transfólk fer í
gegnum þegar það tekur í sátt þenn
an hluta af sér sem manneskju,“ seg
ir Margrét.
Hún segist hafa sagt sínum
nánustu frá þessari hlið sinni og
hafi bara orðið vör við stuðning.
„Þau tóku líka bara eftir svo mik
illi breytingu á mér eftir þetta,“ seg
ir hún.
Aðspurð hvenær þau hafi upp
götvað að þau hefðu þessar kennd
ir segja þau öll það hafa kom
ið snemma í ljós. „Hjá mér var
það í leikskóla, áhuginn þróað
ist svo en ég uppgötvaði þetta fyrst
í leikskóla,“ segir Ólafur sem hef
ur verið ófeiminn við að opna um
ræðuna um blæti. Hans aðalblæti er
pollagallar og birtist hann í viðtali í
Man Magasín þar sem hann talaði
um blætið. „Ég hef hef bara alltaf
verið svona,“ segir Magnús aðspurð
ur hvenær honum hefði orðið ljóst
að hann hefði þess konar kenndir.
Kinkí útgáfa af Facebook
Þau segja marga Íslendinga stunda
BDSM en þó séu ekki allir skráðir í fé
lagið. Um 60–70 manns borga 2.000
króna ársgjald í félagið en mun fleiri
eru þó virkir innan senunnar hér
lendis. „Við hittumst svo einu sinni
í mánuði á svokölluðum „mönch
hittingum“. Það er bara óformlegur
félagsskapur fólks sem hittist á kaffi
húsi og spjallar bara um pólitík, kinkí
hluti og allt hvað eina,“ segir Magnús.
Félagið heldur svo reglulega nám
skeið þar sem fólki er kennt að stunda
BDSM. Sérstök flenginga og bindi
námskeið. „Þar er farið í öll helstu ör
yggisatriði en þau skipta gríðarlega
miklu máli,“ segir Magnús og tekur
upp tölvuna sína. Þar opnar hann
glæruskjal og blaðamaður fær nám
skeið í örmynd og sér ýmislegt fróð
legt sem þar leynist. „Það er mikið
lagt upp úr öryggi og samþykki,“ seg
ir Magmús. Á námskeiðunum er ver
ið að fjalla um hvernig senan er upp
byggð, hvað fólk þarf helst að varast
og svo framvegis,“ segir hann.
Þau segja áherslu félagsins í dag
vera að minnka fordóma gegn BDSM
og blæti af ýmsu tagi. „Áherslan hjá
okkur er alltaf að fræða. Við erum
til dæmis með heilt námskeið bara
í að kynna undirstöðuatriði varð
andi flengingar og hýðingar,“ seg
ir Magnús. Mikilvægast af öllu sé að
kunna undirstöðuatriðin svo að ör
yggið sé í hávegum haft. „Það þarf að
kenna þetta þannig að þú sért ekki
að skaða neinn. Tilgangur til dæmis
með flengingum er svo mismunandi.
Sumir vilja bara létt „sexual spank
ing“ meðan þeir eru að elskast uppi
í rúmi meðan aðrir vilja fá einhverja
aðra útrás. Það getur verið himinn og
haf þarna á milli. Við erum bara að
kenna hvernig þú átt að byrja,“ segir
hann.
Þau segja fólk kynnast í gegnum
félagið, „munch hittingana“ en líka
síðuna Fetlife.com. „Það er svona
einskonar kinkí útgáfa af Facebook
þar sem allt er að finna og það eru
yfir 2.500 íslenskir notendur þar,“
segir Magnús.
Spjall og flengingar
Fólk sem rúmast innan þessarar
svokölluðu senu segir það koma alls
staðar að. Flestir hittist í gegnum
fyrrnefnda síðu Fetlife.com. Félagið
sjálft stendur ekki fyrir „hittingum“
en partí eru haldin reglulega þar sem
fólk hittist í þeim tilgangi að kynnast
öðrum með þessar hvatir. „Það er þá
bara haldið heima hjá einhverjum,“
segir Ólafur. „Þessi partí eru í raun
ekkert öðruvísi en önnur partí. Fólk
spjallar og kynnist, nema kannski
að flestir eru í búningum og svo
kannski fer einhver að flengja ein
hvern. Stundum inni í herbergi eða
bara frammi,“ segir Magnús. Fólkið
sem mætir er líka með þarfir af alls
kyns tagi, sumum hugnast BDSM,
aðrir eru með annars konar blæti
og það rúmast allt þar. „Það sem við
erum að skapa í senunni er öruggt og
frjálst umhverfi. Það kemst enginn
upp með vitleysu. BDSMpartí er
eiginlega öruggasti staðurinn til þess
að prófa sig áfram. Um leið og þú
segir stopp og viðkomandi virðir það
ekki þá er gripið inn í,“ segir Magnús.
„Það hljómar kannski sem öfugmæli
en BDSMpartí er öruggur staður til
að vera á,“ segir Margrét hlæjandi.
Strangar reglur gilda í slíkum
partíum. Allir þurfa að fá samþykki
fyrir því sem fram fer en það er ekki
skylda fyrir eneinn að veita sam
þykki, vera búin að setja sér reglur
varðandi það hvernig eigi að gera
ljóst þegar hætta á leik.
Með makann í bandi
Þau segja í raun allt rúmast innan
þessa heims. „Blætin eru alls kon
Viktoría Hermannsdóttir
viktoria@dv.is
„Við viljum
minnka
fordóma og
fræða fólk
Hulin Þessi er
með grímu og
klædd í latexgalla.
Gallarnir eru sumir
hverjir mjög dýrir.