Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 45
Lífsstíll 45Helgarblað 5.–8. september 2014
Tjóðraðar barbIEdúkkur og playmo-karlar
BDSM á Íslandi
n Var stofnað 31. desember 1997.
n Félagið heldur utan um fræðslustarf
og hagsmunamál BDSM-iðkenda á
Íslandi
www.bdsm.is
www.fetlife.com
Grundvallar-
reglur BDSM
Samþykki
Allir aðilar leiksins verða að vera sam-
þykkir því sem þar fer fram.
Meðvitund
Allir þátttakendur verða að vera meðvit-
aðir og gera sér grein fyrir því hvað þeir
eru að gera.
Öryggi
Allir BDSM-leikir þurfa að vera öruggir
þannig að ekki verði varanlegt eða
langvarandi líkamlegt eða andlegt tjón.
Freakout-ball
Freakout var fyrst haldið árið 2006
og 2007, síðan kom hlé til ársins 2013
en þá var það haldið og einnig um þar
síðustu helgi. Viðburðurinn fór fram á
Classic Sport bar í Ármúla og þar komu
saman um hundrað manns sem eiga
það sameiginlegt að vera með einhvers
konar blæti. Þessir hópar fara ekki hátt í
samfélaginu en að sögn eru þó töluvert
margir sem flokkast til þessa menn-
ingarafkima. Blæti er samheiti yfir hluti
eða fyrirbæri sem vekja kynferðislegan
losta hjá fólki en þessir hlutir sem vekja
upp lostann eru alla jafna ekki taldir
lostavekjandi. Mikið fjör var á ballinu og
fólk mætti í alls kyns búningum. Svo-
kallað leikjahorn var á svæðinu þar sem
fylgjast mátti með fólki meðal annars í
bindileikjum. „Á Freakout er mikið lagt
upp úr því að sýna fjölbreytileikann í
sinni allra skrautlegustu mynd og haldið
er upp á alls konar blæti. Viðburðurinn
er á ýmsan hátt ekki ósvipaður Hinsegin
dögum þar sem fólk af öllum tegundum
kynhneigðar, kynvitundar og kynja
kemur saman og gerir sér glaðan dag
á meðal vina og jafningja. Kvöldið hér
hjá okkur er þó með miklu minna sniði
en svipaðar erlendar hátíðir, eins og
Kinkfest í Bretlandi, svo dæmi sé tekið,“
segir í tilkynningu frá samtökunum
vegna ballsins.
ar. Allt frá bindingum, flenging-
um, gúmmíi að fólki sem vill vera í
bleium og bara hvað sem er. Sumir
vilja láta niðurlægja sig, aðrir fíla að
niðurlægja eða stjórna öðrum,“ segir
Ólafur. „Hjá sumum er þetta einmitt
ekkert kynferðislegt. Sumir vilja til að
mynda bara vera búnir að taka allt til
og vera með matinn tilbúinn þegar
makinn kemur heim og þjóna hon-
um þá. Krjúpa svo fyrir framan sjón-
varpið og verða fótskemill fyrir mak-
ann. Sumi frá kikk út úr svona,“ segir
Magnús. Blaðamaður verður nokk-
uð hvumsa og spyr hvort að það sé
ekki bara einstaklingur sem eigi við
einhver andleg vandamál að stríða
og hafi lent í einhverju sem situr á
sálinni. „Nei, þetta tengist því ekki.
Það er ekki merki um að einstak-
lingar sem hafi lent í einhverju sæk-
ist frekar í neitt svona, þetta snýst
ekki um það,“ segir Magnús
Hann segir traust milli aðila líka
skipta heilmiklu máli hvað þetta
varðar. „Sumir fá mjög mikið út úr
því að vera með maka sinn í bandi
og ganga með hann úti eða fara á
einhverja staði,“ segir Magnús og
hlær þegar hann sér undrun blaða-
manns. „Bara ganga á Laugaveg-
inum með makann í bandi?“ spyr
blaðamaður og á erfitt með að leyna
undrun sinni. „Nei, yfirleitt er þetta
nú á afskekktum stöðum en jú, það
kemur alveg fyrir að fólk fari þannig
út að skemmta sér. Þá fá báðir aðil-
ar sitt kikk út úr þessu,“ segir Ólafur.
Þeir segja margt fyrirfinnast innan
þessa heims sem þeir kannski skilji
ekki en leggi þó engan dóm á. Línan
sé fín og mörgum þyki spennandi að
dansa á henni. „Ég veit til dæmis um
hjón úti sem klæddu svefnherberg-
ið sitt allt í svona Dexter-stemningu,“
segir hann og vísar í þættina frægu.
„Þau plöstuðu allt svefnherbergið,
rúmið og allt og svo skar hann hana
á háls með skurðarhníf. Bara örlítið
þannig að blæddi smá. Þetta er eitt-
hvað sem ég skil ekki að fólk fái neitt
kynferðislegt út úr en þarna snýst
þetta einmitt um traustið og hvað
fólk er til í að ganga langt til að skapa
stemninguna,“ segir Magnús. „Og
það er akkúrat málið. Línan er svo
fín. Þú finnur alltaf einhvern sem
gengur tíu sinnum lengra en þú eða
þér dettur í hug og svo eru alltaf ein-
hverjir sem ganga of langt, við viljum
halda fólki inni á öruggu svæði.“
Samþykki, meðvitund og öryggi
Þau segja mikilvægt að fylgja
ákveðnum reglum þegar kemur að
því að stunda BDSM. Þrjár megin-
reglur eru í hávegum hafðar; sam-
þykki, meðvitund og öryggi. „Það
verða allir að vera samþykkir því sem
fram fer,“ segir Magnús. „Svo er mik-
ilvægt að hugsa vel um sig og vera vel
meðvitaður. Vímuefni og BDSM fara
til dæmis ekki saman, það er mikill
misskilningur,“ segir hann og bendir
á að mikilvægt sé til dæmis að næra
sig vel fyrir og eftir leiki til þess að
koma í veg fyrir blóðsykursfall, sem
sé mjög algengt eftir slíka leiki. Síðan
sé öryggið mikilvægt til þess að all-
ir aðilar séu heilir á húfi eftir leikinn.
Magnús segir síðan mjög mikilvægt
að þekkja vel inn á sig, félaga sinn,
tala saman og kynna sér fræðsluefni
til þess að vera vel undirbúinn.
Frelsi til að vera maður sjálfur
Þremenningarnir segjast fyrst og
fremst vilja opna á umræðuna til
þess að eyða fordómum og hver og
einn fái að lifa eins og hann er. „Við
erum bara venjulegt fólk, ekkert
öðruvísi,“ segir Margrét.
Til þess að opna á þessa umræðu
héldu þau fyrir nokkrum vikum svo-
kallað Freakout-partí þar sem hver
og einn hafði frelsi til þess að vera
hann sjálfur. Ballið var haldið á
Classic Sport bar í Ármúla og mættu
um 100 manns. Ballið hefur áður
verið haldið, árin 2006 og 2007 en
svo kom hlé þar til í fyrra. Á ballinu
mátti sjá fólk í alls konar búningum
en jafnan er lagt mikið upp úr þeim
í BDSM-heiminum auk þess sem
fylgjast mátti með bindingameistur-
um að störfum. „Þetta eru oft dýr-
ir og flóknir búningar,“ segir Magn-
ús. „Einn latex-galli getur kostað
mörg hundruð þúsund,“ segir hann.
Fjölmargir lögðu leið sína á ballið
og segja þau ballið vera lið í því að
opna á umræðuna og gefa fólki stað
til þess að vera það sjálft. Stefnt er að
því að halda ballið aftur að ári og efla
félagsskap hópsins. Þeir sem vilja
vita meira er bent á bdsm.is og Face-
book-síðu samtakanna. n
Bundinn Hér má sjá einn á Freakout-ballinu. Bundinn í leikjahorninu.
Í fjötrum Innan BDSM er rými fyrir alls
kyns blæti. Hér má sjá konu bundna.
Að leik
Leikirnir eru
af ýmsu tagi.