Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Blaðsíða 46
Helgarblað 5.–8. september 201446 Lífsstíll
Á forsíðu eins stærsta
dagblaðs Skotlands
Íslenski víkingurinn Heiðar Geirmundsson vekur athygli á Hálandaleikunum í Skotlandi
É
g er búinn að keppa á 21 Há-
landaleik í sumar,“ segir Heiðar
Geirmundsson, eða Heisi eins
og hann er jafnan kallaður, í
samtali við DV. Leikarnir hafa
farið fram víðs vegar um Skotland og
þá hefur hann einnig keppt í Belgíu
og er þessa dagana að undirbúa sig
fyrir stórt mót sem haldið verður í
Bandaríkjunum í lok september. Þá
mun hann keppa á Íslandsmótinu í
Hálandaleikum sem haldið verður
á Ljósanótt í Keflavík um helgina en
þar hefur Heisi titil að verja. Fjögur
ár í röð hefur hann hampað titlinum
Íslandsmeistari í Hálandaleikum.
Blaðamaður sló á þráðinn til Heisa
og forvitnaðist um þessa merkilegu
íþrótt.
Þjóðarstolt Skota
„Á skoskum Hálandaleikum er
keppt í steinkasti, lóðkasti, bæði á
vegalengd og hæð, og svo köstum við
drumbum,“ segir Heisi en sameigin-
legur árangur úr öllu þessu sker úr
um sigurvegara mótsins. „Þessu er
kastað á skoskan máta en löng hefð er
fyrir Hálandaleikum hér úti. Ég keppti
á mínum fyrstu Hálandaleikum fyr-
ir fjórum árum en þetta er fyrsta árið
sem ég geri þetta af einhverri alvöru.
Þá á ég við að ég æfi mig sérstaklega
undir leikana og keppi mjög oft.“
Mikið er fjallað um Hálandaleik-
ana í Skotlandi og nýtur íþróttin mik-
illar virðingar. „Þetta er þjóðarstoltið.
Það eru Hálandaleikar og viskí,“ segir
Heisi og hlær. „Sem dæmi eru menn
teknir í lyfjapróf. Þeir sömu og sjá
um að lyfjaprófa á Ólympíuleikum
og heimsmeistaramótum sjá um Há-
landaleikana. Mér finnst þetta góður
kostur við íþróttina því það heldur
öllum á jöfnum grundvelli.“
Húðflúraði víkingurinn úr norðri
Heisa var boðið á heimsmeistara-
mótið í Hálandaleikum í Skotlandi
sem er svokallað boðsmót. Einungis
þeir bestu í heiminum fá að keppa og
fékk Heisi boð. Mikið var skrifað um
mótið og aðdraganda þess í skoskum
fjölmiðlum og meðal annars fjallað
ítarlega um erlenda keppendur. „Þeir
settu mig á forsíðu eins stærsta dag-
blaðsins hérna úti. Það var mjög gam-
an,“ segir Heisi en bæði hafa blöðin
Scotland Now og The Scotsman fjall-
að um hann. Þar er honum lýst sem
húðflúraða víkingnum úr norðri sem
er í blóð borið að kasta þungum stein-
um enda alinn upp innan um hraun-
breiður vesturhluta Íslands.
Heisi hafnaði í níunda sæti á
heimsmeistaramótinu sem fram fór
í Skotlandi í lok ágúst og segist afar
ánægður með þann árangur. Sérstak-
lega þar sem hann hafi ekki stundað
íþróttina lengur en raun ber vitni. „Ég
bætti mig í nokkrum greinum þannig
að ég get ekki kvartað.“
Raunveruleikastjarna
En það eru ekki aðeins skoskir blaða-
menn sem hafa sýnt Heisa áhuga í
sumar heldur var hann einnig beðinn
um að leika í tveimur bandarískum
raunveruleikaþáttum í sumar, Nitro
Circus og Duck Dynasty. „Það var
bara fyrir tilviljun. Af því að ég er að
keppa í Hálandaleikunum og lít út
eins og ég lít út þá vildu þeir endi-
lega fá mig í þættina. Sjálfur fylgist
ég ágætlega með báðum þáttum og
var því mjög sáttur við að detta óvart
inn í þetta,“ segir Heisi. Þættirnir voru
báðir teknir upp í sumar og hafa enn
ekki verið sýndir í sjónvarpi.
Upphefja sportið á Íslandi
Heisi segir langa hefð fyrir Há-
landaleikum á Íslandi en Jón Páll Sig-
marsson hafi meðal annars keppt í
íþróttinni á sínum tíma. Hins vegar
hafi lítið farið fyrir leikunum og þeir
einhverra hluta vegna hafðir bak
við tjöldin. „Núna er verið að reyna
að blása smá lífi í þetta aftur og eru
margir góðir strákar að keppa hverju
sinni. Vonandi verður því meira gert
úr þessu á Íslandi í framtíðinni. Pétur
Guðmundsson, þjálfari hjá ÍR, heldur
alfarið utan um þetta er að reyna að
upphefja sportið. Hann á svo sannar-
lega hrós skilið fyrir það. Hann hefur
meðal annars hjálpað mér mjög mik-
ið við að komast áfram í íþróttinni og
á ég honum mikið að þakka.“
Þá segir Heisi íþróttina ekki að-
eins vera fyrir karla – konur keppi
einnig í Hálandaleikum. „Það er ein
íslensk stelpa að keppa í þessu sem
ég hitti reglulega hérna úti á stórmót-
unum,“ segir Heisi.
Komst áfram á útlitinu
Heisi hefur áður æft bæði kraftlyft-
ingar og aflraunir. Þar áður æfði
hann frjálsar íþróttir af miklum
móð en hann segir Hálandaleikana
í raun bara „aðeins öðruvísi út-
gáfu af frjálsum“. Aðspurður hvern-
ig hann hafi fyrst komist í kynni við
Hálandaleika segir Heisi: „Ég fékk
bara símtal frá Skotlandi þar sem
ég var spurður hvort ég gæti keppt í
Hálandaleikum og var boðið út. Fé-
lagi minn hringdi sem sagt í mig en
hann hafði verið að keppa í þessu og
mælti mér þarna úti. Hann sagði að
ég liti út eins og víkingur og það yrði
flott að hafa mig með. Það má því
eiginlega segja að ég hafi dottið inn
í þetta vegna þess hvernig ég lít út.
Þannig fékk ég tækifærið.“
En hvað er svona heillandi við
Hálandaleikana umfram til dæmis
kraftlyftingarnar? „Mér finnst þetta
einhvern veginn heilbrigðara,“ svarar
Heisi. „Maður er bara að kasta og
þetta er ekkert alltof þungt. Meiri
áhersla er lögð á tækni einhvern
brjálaðan styrk. Það er líka einhvern
veginn léttara yfir mönnum. Þó svo
að menn séu á heimsmeistaramót-
um þá eru allir spjallandi og að djóka.
Kannski af því að líkamlega áherslan
er ekki jafn gífurleg. Maður verður
allavega ekki jafn lúinn eftir þetta og
kraftlyftingarnar. Ég held að ég muni
allavega endast lengur í þessu sporti
líkamlega séð,“ segir hann.
Fjölskylduvæn íþrótt
Heisi býr úti í Perth í Skotlandi og
stundar þar nám í flugvirkjun. Um
helgar keppir hann í Hálandaleikum.
Eiginkona Heisa er Oddný Assa Jó-
hannsdóttir og saman eiga þau
tveggja ára son, Óðin. Eins og stað-
an er í dag eru þau í fjarbúð þar sem
Óðinn er á leikskóla á Íslandi. Heisi
segir það ekkert mál enda sé stutt að
fljúga á milli. Fjölskyldan fylgir Heisa
iðulega á Hálandaleikana enda eru
þeir afar fjölskylduvænir að sögn
Heisa. „Það er nóg að gera fyrir alla.
Þetta eru ekki bara karlar að kasta.
Sem dæmi er einnig keppt í Hálanda-
glímu og sérstökum Hálandadansi.
Óðinn fílar þetta í botn,“ segir Heisi
og líkir þessu við bæjarhátíðirnar
sem haldnar eru víðs vegar um Ís-
land á sumrin. „Það eru hátíðir í öll-
um bæjunum hérna og á sama tíma
eru haldnir Hálandaleikar. Ég ferðast
í raun bara á milli hátíðanna.“
Heisa líður mjög vel í Skotlandi
og getur vel hugsað sér að setjast þar
að eftir nám. „Hér er ódýr matur og
ódýrt húsnæði og allir eru bara eitt-
hvað svo kurteisir og þægilegir,“ segir
hann að lokum. n
Áslaug Karen Jóhannsdóttir
aslaug@dv.is
Feðgar í skotapilsum
Heisi ásamt syni sínum
Óðni. Mynd ÚR einKaSaFni
Víkingurinn úr norðri Heisi var nýlega á
forsíðu eins stærsta dagblaðs Skotlands.
Staurakast Þetta er líklega sú grein sem
flestir tengja við Hálandaleikana.
Mynd ÚR einKaSaFni
Lóðkast Reglur Hálandaleika segja til um
að keppendur verði að vera í skotapilsum og
hnéháum sokkum. Mynd ÚR einKaSaFni
„Þetta er þjóðar-
stoltið. Það eru
Hálandaleikar og viskí.