Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 50
Helgarblað 5.–8. september 201450 Sport
Strákarnir í góðu Standi
n Undankeppni Evrópumótsins hefst n Ekki má vænta mikilla breytinga
Baldur Guðmundsson (baldur@dv.is) og Einar Þór Sigurðsson (einar@dv.is)
Erfiður riðill
Lars Lagerbäck stýrir nú liðinu,
ásamt Heimi Hallgrímssyni í
annarri undankeppninni í röð. Þeir
náðu sögulegum árangri í fyrra
þegar þeir tryggðu liðinu sæti í
umspili um laust sæti á HM. Í riðli
með Íslandi fyrir EM 2016 eru erfiðir
andstæðingar; Holland, Tékkland,
Tyrkland, Lettland og Kasakstan.
Ísland mætir Tyrklandi á
Laugardalsvelli á þriðjudag. Þann
10. október mætir Ísland Lettlandi
ytra en Hollendingar koma í
heimsókn þremur dögum síðar.
Síðasti leikur ársins verður gegn
Tékklandi, ytra, 16. nóvember.
Jóhann Berg
Guðmundsson
Aldur: 23 ára
Hæð/þyngd: 1,78/ekki vitað
Staða: Vængmaður
Landsleikir/mörk: 31/5
n Jóhann Berg skaust upp á stjörnu-
himininn með íslenska landsliðinu
í 4–4 jafnteflinu gegn Sviss í
undankeppni HM þar sem hann gerði
sér lítið fyrir og skoraði þrennu. Jóhann
réri á önnur mið í sumar eftir að hafa
verið í herbúðum hollenska liðsins AZ
í fimm ár. Jóhann samdi við Charlton
sem leikur í Championship-deildinni
á Englandi og hefur hann leikið alla
fimm leiki liðsins í deildinni. Charlton
hefur farið vel af stað og situr í 6.
sæti deildarinnar eftir fimm umferðir.
Jóhann ætti því að vera í góðu standi
og skyldi enginn útiloka að hann hæfi
leik á öðrum hvorum vængnum gegn
Tyrkjum á þriðjudag.
Ari Freyr Skúlason
Aldur: 27 ára
Hæð/þyngd: 1.75/70
Staða: Vinstri bakvörður
Landsleikir/mörk: 22/0
n Ari Freyr Skúlason átti mjög góða
leiki með landsliðinu í undankeppni
HM og virðist enginn geta ógnað stöðu
hans í byrjunarliðinu. Ari er fastamað-
ur í liði OB í Danmörku og hefur þessi
fjölhæfi leikmðaur leikið alla sex leiki
liðsins í dönsku úrvalsdeildinni sem
fór af stað á dögunum. Gengi OB hefur
þó ekki verið upp á marga fiska. Liðið
situr í 10. sæti af 12 liðum með 5 stig
eftir fyrstu 6 leikina. Ari ætti þó að
vera í góðu leikformi sem eru góðar
fréttir fyrir íslenska landsliðið.
Eiður Smári
Guðjohnsen
Aldur: 35 ára (verður 36 ára 15. sept.)
Hæð/þyngd: 1.85/89
Staða: Miðjumaður
Landsleikir/mörk: 78/24
n Eiður Smári er án félags eins og sak-
ir standa, og því ekki í landsliðshópn-
um. Landsliðþjálfararnir hafa þó sagt
að ekki sé loku fyrir það skotið að Eiður
Smári verði aftur valinn í landsliðið,
komist hann í gott form, enda sýndi
hann frábæran leik með landsliðinu á
köflum í síðustu undankeppni. Eiður
lýsti því yfir eftir seinni leikinn gegn
Króötum að hann væri hættur með
landsliðinu en það er aldrei að vita
nema hann endurskoði þá ákvörðun.
Það væri sannarlega liðstyrkur að fá
hann aftur í bláu treyjuna.
Ragnar Sigurðsson
Aldur: 28 ára
Hæð/þyngd: 1,87/85
Staða: Varnarmaður
Landsleikir/mörk: 37/0
n Ragnar gekk í raðir rússneska liðsins Krasnodar í janúar, frá danska
liðinu FC Kaupmannahöfn. Í Rússlandi hefur Ragnar unnið sér fast sæti
í byrjunarliði liðs síns. Liðið er nokkuð öflugt og sló til að mynda Real
Sociedad út úr Evrópukeppninni í ágúst. Ragnar er því væntanlega klár í
slaginn í leikinn gegn Tyrklandi, og í fínu leikformi.
Birkir Már Sævarsson
Aldur: 29 ára
Hæð/þyngd: 1,87/71
Staða: Hægri bakvörður
Landsleikir/mörk: 42/0
n Birkir Már er á sínu sjötta tímabili með Brann.
Liðinu hefur gengið afar illa og er sem stendur í
fallsæti. Birkir hefur spilað 13 leiki af 22 í deildinni á
tímabilinu, þar af verið níu sinnum í byrjunarliðinu.
Þrátt fyrir það hefur Birkir Már ekki byrjað leik með
Brann frá því í apríl. Hann ætti því ekki að vera í
góðri leikæfingu og það er spurning hvort hann
haldi stöðu sinni í byrjunarliði landsliðsins.
Kári Árnason
Aldur: 31 árs
Hæð/þyngd: 1,90/87
Staða: Varnarmaður
Landsleikir/mörk: 34/2
n Kári hefur að vanda verið fasta-
maður í byrjunarliði Rotherham. Þar
leikur hann lykilhlutverk en liðið spilar
í þriðju efstu deild í Englandi. Kári
hefur fyrir löngu unnið sér fast sæti í
byrjunarliði Lars Lagerbäck og hefur
spilað vel með landsliðinu. Kári, sem
hefur spilað fimm heila leiki núna í
ágúst, ætti að vera í toppformi.
Birkir Bjarnason
Aldur: 26 ára
Hæð/þyngd: 1,82/75
Staða: Miðjumaður
Landsleikir/mörk: 37/6
n Birkir Bjarnason var einn af lykilmönnum Íslands í
undankeppni HM þar sem hann skoraði þrjú mikilvæg
mörk. Birkir, sem hefur spilað á Ítalíu undanfarin miss-
eri, hefur verið á talsverðu flakki. Hann lék sem kunn-
ugt er með Sampdoria á síðustu leiktíð en gekk illa að
festa sig í sessi. Í sumar sneri hann aftur til Pescara,
þar sem hann lék tímabilið 2012/2013, og spilaði Birkir
allar 90 mínúturnar um síðustu helgi þegar liðið gerði
markalaust jafntefli gegn Trapani. Aðeins ein umferð
er búin í ítölsku deildinni. Birkir leggur sig ávallt 100%
fram fyrir landsliðið og ætti að vera klár í slaginn gegn
Tyrkjum.
Vissir þú …
… að Emre Belözoglu er leikja-
hæsti leikmaðurinn í
hópi Tyrkja. Þessi
33 ára leikmaður
Fenerbache hefur
leikið 91 landsleik.
Hann hefur leikið
með liðum eins og Inter
og Newcastle á ferli sínum.
… að markahæsti
leikmaðurinn með
landsliði Tyrkja
er fyrirliðinn Arda
Turan, leikmaður
Atletico Madrid.
Hann hefur skorað 14
mörk í 73 landsleikjum og er næst-
leikjahæstur í landsliðinu.
… að Ísland og Tyrkland hafa
mæst sjö sinnum áður. Íslendingar
hafa unnið fjórum sinnum, tvisvar
hefur orðið jafntefli en Tyrkir hafa
aðeins unnið einn leik.
… að langt er liðið frá síðasta
landsleik þjóðanna. Liðin mætt-
ust síðast árið 1995 á Laugar-
dalsvelli í undankeppni EM og
endaði leikurinn með markalausu
jafntefli.
… að stærsti sigur Ís-
lands á Tyrkjum var
5–1 sigur á Laugar-
dalsvelli árið 1991.
Arnór Guðjohnsen
skoraði fernu í leiknum.
Í marki Tyrkja stóð enginn annar
en Engin Ipekoglu. Var Bjarna
Felixsyni sem lýsti leiknum á RÚV
tíðrætt að „Engin(n)“ væri í marki
Tyrkja.
… að Tyrkir enduðu í 4. sæti D-
riðils í undankeppni HM.
Liðið fékk 16 stig
en Ungverjar (17),
Rúmenar (19) og
Hollendingar (28)
urðu fyrir ofan þá
í riðlinum.
… að tyrkneska liðið
skoraði 16 mörk
í undankeppni
HM. Buruk Yilmaz
og Umut Bulut
skoruðu helming
markanna, eða
fimm mörk hvor.
… að tyrkneska liðið fékk á sig 9
mörk í leikjunum 10 í undankeppni
HM.
… að landsliðsþjálfari Tyrkja er
Fatih Terim. Terim
er sextugur og lék
hann 51 landsleik
í vörn Tyrkja á
árunum 1975 til
1985. Hann hefur
þjálfað mörg lið á ferli sínum, má
þar nefna Fiorentina, Milan og
Galatasaray.
… að landsleikjahæsti
leikmaður Tyrkja
frá upphafi er
markvörðurinn
Rustu Recber.
Rustu lék 120
landsleiki á ferli
sínum en hann lagði hanskana á
hilluna árið 2012. Hann lék lengst
af í Tyrklandi en átti stutt stop á
Spáni tímabilið 2003–2004 þegar
hann lék með Barcelona.
… að markahæsti leikmaður
Tyrkja frá upphafi er
Hakan Sukur sem
kemur kannski
lítið á óvart. Sukur
skoraði 51 mark á
landsliðsferli sínum
í 112 leikjum. Hann hætti
í fótbolta árið 2008 eftir glæstan
feril með liðum á borð við Inter
Milan, Parma og Blackburn auk
Galatasaray þar sem hann lék
lengst af.
… að besta árangri sínum á stór-
móti náðu Tyrkir árið 2002 þegar
liðið hafnaði í 3. sæti HM.
… að besta árangri sínum í loka-
keppni EM náðu Tyrkir árið 2008
þegar þeir komust í undanúrslit.
Þar töpuðu Tyrkir fyrir Þjóð-
verjum, 3–2.