Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Blaðsíða 53
Helgarblað 5.–8. september 2014 Menning 53
Kveðja sumarið
hjá Hrafni
Í tilefni af sumarlokum fara fram
tónleikar og myndbandssýn-
ing á heimili Hrafns Gunnlaugs-
sonar kvikmyndagerðarmanns á
Laugarnestanga 65 laugardaginn
6. september. Grúska Babúska,
Kira Kira, Kría Brekkan, Lucky
Hymnist og Bláskjár koma fram á
tónleikunum sem hefjast klukkan
20.30 og standa fram eftir kvöldi.
Hlé verður gert á dagskránni til
að kveikja í brennu um klukkan
21.00 og mun brennan loga fram
yfir sólsetur. Pylsur verða grill-
aðar á staðnum og drykkir seldir.
Miðaverð er 1.000 krónur, en frítt
er inn fyrir 12 ára yngri.
Peningalaus útóPía í eyðimörkinni
sólin og sandstormar gera svæðið
einkar óvistvænt. „Þetta er ekki stað-
fest, en ég frétti að það deyi svona
þrír til fimm að meðaltali af ofhitn-
un þarna,“ segir Óli Hjörtur. Sandur-
inn fór að sama skapi illa með hann.
„Við gáfumst upp eftir fimm daga. Ég
fékk alvarlega sýkingu, það fór sand-
ur í tána og hún bólgnaði upp. Ég
var haltur í svona mánuð á eftir. Það
eru engir læknar eða neitt sem geta
hjálpað þér þarna, þú verður bara að
bjarga þér sjálfur eða biðja um hjálp
frá öðrum gestum á svæðinu.“
Þotuliðið mætir
Það kostar bæði mikinn pening
og undirbúning að fara á hátíðina,
en heildarkostnaðurinn hleypur á
hundr uðum þúsunda. Miðinn sjálfur,
sem kostar 44 þúsund krónur, er að-
eins lítill hluti af kostnaðinum. „Þetta
er rosalega dýrt, ekki bara ein flugvél
og fara. Þú þarft alveg að plana með
nokkurra mánaða fyrirvara,“ Hann
sér þó ekki eftir ferðinni og segir klárt
mál að hann muni fara aftur. „Ef þú
ferð einu sinni þá ferðu aftur. Það er
alltaf þannig.“
Kostnaðurinn gerir það hins vegar
að verkum að ekki geta allir sem
vilja fengið aðgang að þessari eyði-
merkurútópíu.
Á tæplega 30 árum hefur hátíð-
in breyst úr því að vera lítil samkoma
lítils vinahóps hippa og furðufugla
yfir í að vera tæplega 70 þúsund
manna risasamkoma sem þotuliðið í
Los Angeles elskar – rappstjarnan P
Diddy hefur til dæmis sagt að Burning
Man hafi breytt lífi sínu. Það hugnast
ekki öllum þróunin, því með athygl-
inni sækjast frægir einstaklingar, sér-
staklega frumkvöðlar úr Kísildalnum,
Silicon Valley, í hátíðina og setja sitt
mark á stemninguna. Milljarðamær-
ingar á borð við Mark Zuckerberg,
eiganda Facebook, mæta á einka-
þotum og Chip Conley, háttsettur yf-
irmaður hjá Airbnb situr í stjórn há-
tíðarinnar. „Kapítalisminn er smám
saman að teygja sína anga þarna inn
á þennan stað sem á að vera einhver
hippaútópía,“ segir Óli Hjörtur. Aðr-
ir eru jákvæðir fyrir breytingunni og
halda því fram að upplifun af frjálsu,
peningalausu samfélagi í eyðimörk-
inni hafi langvarandi áhrif á Kísildals-
frumkvöðlana, sem muni breiða út
boðskap brennandi mannsins – að
annars konar skipulag sé mögulegt. n
Varðeldurinn Á síðasta
kvöldi hátíðarinnar er haldinn
risastór varðeldur þegar hof
og timburlíkneski eru brennd.
Erfiðar aðstæður Sandurinn smýgur inn
um öll vit í eyðimörkinni.
Róttæk sjálfstjáning Það er engin
takmörk á Burning Man-hátíðinni.
Sindri Eldon
gerir tónlistar-
myndband
Frumraunin Bitter & Resentful
kemur út í haust
Tónlistarmaðurinn Sindri Eldon
og hljómsveit hans, The Ways,
hafa gefið frá sér myndband við
lagið Honeydew. Lagið verður
á fyrstu breiðskífu Sindra, Bitter
& Resentful, sem hefur verið tvö
ár í vinnslu en kemur loks út nú
á haustmánuðum. Sindri hefur
áður leikið með hljómsveitum
á borð við Dáðadrengi, Dyna-
mo Fog og Slugs. Sindri leikstýrir
myndbandinu sjálfur ásamt Rúti
Skæringi N. Sigurjónssyni. Fagur-
fræði myndbandsins virðist vera
undir áhrifum frá rokkkúltúr tí-
unda áratugarins eins og tónlist
hljómsveitarinnar, sem er metn-
aðarfullt en grípandi popprokk.
Palestínskar
konur, býflugur
og blómin
Um býflugurnar og blómin nefn-
ist sýning Helgu Sigurðardóttur
sem verður opnuð á laugar-
daginn klukkan 15 í Anarkíu gall-
erí sem er til húsa í Hamraborg
3 í Kópavogi. Helga beinir sjón-
um sínum að frjósemi og æxlun í
gegnum ljósaskúlptúra, gerða úr
pappamassa, og vatnslitaverk. Í
efri sal Anarkíu verður opnuð á
sama tíma málverkasýning Mar-
grétar Kristjánsdóttur, Síðasta
ólífutréð – óður til palestínskra
kvenna. En þar veltir hún fyrir
sér konunni undir slæðunni með
andlitsmyndum þar sem hún
notar meðal annars blaðgull sem
skírskotar til helgimynda grísk-
katólsku kirkjunnar. Sýningarnar
standa til 28. september.
Bjóða upp á meðferð við lífinu
Kviss búmm bang hafa sett upp hæli í Borgarleikhúsinu
Þ
átttökuleikritið Flækjur, hæli
í Borgarleikhúsinu, eftir Kviss
búmm bang er eitt þeirra nýju
íslensku verka sem er sýnt í
Borgarleikhúsinu um þessar mundir.
Verkið var frumflutt á leiklistarhátíð-
inni Lókal í lok ágúst en síðasta sýn-
ing verður sunnudaginn 7. septem-
ber.
Eins og í fyrri sýningum framand-
verkaflokksins Kviss búmm bang
taka gestir virkan þátt í sýningunni
sem stendur yfir frá klukkan 18.00
til miðnættis. Gestir eru losaðir við
samskiptatæki og -tól. Þeir eru síð-
an lagðir inn á leikhúshælið og eru
þar hvattir til að horfast í augu við
þær flækjur sem lífið hefur lagt þeim
á herðar.
„Áhorfendur verða virkir þátttak-
endur og fara í gegnum þennan heim
sem við erum búin að hanna. Þetta er
hæli sem er rekið samhliða annarri
starfsemi í Borgarleikhúsinu. Fólk
verður að dvalargestum á heimilinu
og fer í gegnum hinar ýmsu meðferð-
ir við lífinu,“ segir Eva Björk Kaaber,
einn meðlima hópsins. „Okkur finnst
spennandi hvað það getur verið
áhrifaríkt að setja fólk í skapaðar að-
stæður. Þá upplifir það, er virkt og fær
líka pínu fjarlægð á sjálft sig í aðstæð-
um sem að það er kannski ekki endi-
lega vant að velta mikið fyrir sér.“
Hún segir að þegar hópurinn hafi
verið að byrja hafi einhverjir verið
smeykir við að taka þátt en það hafi
breyst í gegnum árin. „Fólk sér að
það þarf ekki að óttast að vera sett í
sviðsljósið, það eru engir áhorfend-
ur, hver og einn fer í þetta fyrir sjálf-
an sig.“
Tinna Ottesen leikmynda-
hönnuður vann með Kviss búmm
bang að uppsetningu sýningarinn-
ar og stórleikararnir Hilmir Snær
Guðnason, Guðjón Davíð Karlsson,
Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Sigrún
Edda Björnsdóttir og fleiri koma við
sögu. „Við höfum mjög sjaldan unnið
með leikurum áður, en við höldum
bara okkar striki. Þau eru bara leik-
ararnir í leikhúsinu sem eru að taka
vaktir á hælinu. Þannig að þetta eru
bara Gói og Sissa og Hansa og Tóta
– og þau gera það alveg listilega vel.“
Borgarleikhúsið kynnti vetrar-
dagskrá sína fyrir um tveimur vikum,
en þar kennir ýmissa grasa. Í sept-
ember hefjast meðal annars sýn-
ingar á barnaleikriti um Línu Lang-
sokk, leikritinu Kenneth Máni sem
er byggt á samnefndri persónu úr
Fangavaktinni, Gaukum, eftir Huld-
ar Breiðfjörð, og Gullna hliðinu,
Grímuverðlaunasýningu Leikfélags
Akureyrar. n
kristjan@dv.is
Flókið að vera manneskja Flækjur er
nýjasta verk Kviss Búmm Bang, en þar býður
hópurinn upp á ýmis meðferðarúrræði við
lífinu.