Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Page 54
Helgarblað 5.–8. september 201454 Menning
Úr vegabréfi Sigmundar Ernis
Setið kyrr í
klukkustund
Stundum var haft á orði um
móðurafa minn að hann hefði
verið einstakur rólegheitamað-
ur, úr svip hans hefði alla jafna
mátt lesa slíka yfirvegun og
hægð að ósjálfrátt hefði sæld og
friður færst yfir alla í kringum
hann; nefnilega svo að hvar-
vetna sem hann valdi fótum sín-
um för hefði andrúmið lægt og
dúrað, einna líkast því að tíminn
hefði tekið sér hlé frá eigin gerð
og eðli.
Því er á þetta minnst að kyrra-
líf hefur sjaldnast verið mér að
skapi; ég er eirðarlaus að upp-
lagi, næsta örgeðja og ólmhuga,
fírugur og gustmikill, viðþolslaus
og vanstilltur – og ekki svo að
skilja að ég telji mér þessi ósköp
til gildis og tekna; oftsinnis hefur
mér verið hugsað til Sigfúsar afa
í seinni tíð í þeirri von að minn-
ingin ein geti fært mér sosum
eins og agnarögn af allri hans
innri vægð og þýðu.
Og svei mér þá ef mér tókst ekki
að tengjast þeim gamla einhvern
ágústdaginn að áliðnum slætti,
reyndar öfugum megin við ætt-
jörðina, en það má einu gilda; ég
fann þennan frið. Okkur hafði,
þremur þingmönnum af eld-
landinu í norðri, verið boðið alla
leið til Taívan, eyjunnar fögru
úti af Kína sem í árafjöld hefur
tekist að standa upp í stríðu hári
stóra bróðurins í Bejing, þótt eyj-
an sjálf sé ekki nema hnefafylli
af leir og sandi í samjöfnuði við
meginlandið sjálft.
Og þarna vorum við komnir í
dagsferð á syðsta odda þessa íð-
ilfagra eylands í austurlöndum
fjær og fyrir fótum okkar gat að
líta einhvern skrautlegasta helgi-
dóm sem augu mín hafa litið.
Hlaðvarpinn var prýddur ótölu-
legum fjölda styttna í drjúgri
líkamsstærð, en við enda hans
skaraði hátt upp úr gullfægðu
hofinu gríðarmikið búdda-
líkneski sem glóði af í mjúkri
miðdegissólinni.
Blessunin hún Fo Wei Yun leiddi
okkur um þessa dásemd alla,
svo hægum skrefum reyndar að
mér fannst við varla færast fetið.
Þessi aldna kona, nauðrökuð um
kollinn, hélt að okkur sama bros-
inu allan liðlangan daginn, hvort
heldur hún reiddi fram hægeld-
að grænmeti á undnu eikar-
bretti, ellegar sýndi okkur lysti-
garðinn inn af líkneskinu stóra.
Og svo kom að því að hún hugð-
ist leiða okkur inn í ótruflaða
heima taoismans; berfætt-
ir sátum við flötum beinum í
fagurgylltum sal og áttum að
hlusta á eigin hjartslátt með lóf-
ana opna mót einum og sönn-
um alheimskrafti. Þarna var þá
loksins komið að því; ég hafði
fengið það verkefni að sitja kyrr í
klukkustund. Og það tókst! Eins
og opin sál framan við sælu-
brosið á Fo Wei Yun, einhverja
rólegustu manneskju sem lífið
hafði fært mér, fann ég það bæði
á líkama og sál hversu mikilvægt
það er að losna á stundum und-
an sjálfum sér, en fylla jafnóðum
tómið af óútskýrðri þögn sem er
umvafin hlýrri birtu og angan af
myntu. Já, friðmælast við sjálf-
an sig.
Ekkert af þessu breytti þó því
að næstu daga var ég friðlaus af
harðsperrum.
H
versu miklu testósteróni er
hægt að koma í eina kvik-
mynd? Expendables-serían
hefur undanfarin ár reynt að
svara þessari spurningu með því að
troða eins mörgum hasarhetjum í
eina mynd og hægt er, en þó verður að
reikna með því að testósteron-fram-
leiðsla per haus hafi eitthvað minnk-
að því sumir eru á áttræðisaldri.
Og eitt af því mest heillandi við
þessa seríu er að sjá hvernig menn
eldast. Fordarinn, sem tók sig vel út
sem Indiana Jones fyrir sex árum,
er nú orðinn gamall, enda 72 ára.
Sömuleiðis Arnie, sem hefur orðið
mjúkur á árum sínum sem ríkisstjóri.
Sly sjálfur, þrátt fyrir að vera orðinn
fremur ónáttúrulegur í útliti, virðist
20 árum yngri en sín 68 ár. Kannski er
það um sjötugt eins og á unglingsár-
um að nokkur ár til eða frá hafa afar
mikið að segja.
Melurinn kemur ágætlega út,
minna sætur en meira töff en áður,
og eftir alla skandalana virkar hann
best sem vondur kall. En sá sem kem-
ur mest á óvart er Antonio Banderas,
sem er líklega besti leikarinn af þeim
öllum og kemur inn með þá kímni
sem skort hefur í fyrri myndir. Og það
besta við Ex þrjú er að hún tekur sjálfa
sig mátulega alvarlega og gerir grín að
mönnum sem þykjast yngri en þeir
eru.
Gallinn er hins vegar sá að hasar-
atriðin eru öll afar hefðbundin. Hin-
ar öldruðu hetjur standa flestar kyrrar
og munda stórar byssur, Ford fer ekki
úr þyrlunni og Arnie varla heldur. Það
er helst unglambið Statham sem eitt-
hvað fær að hreyfa sig, sem og Snipes
sem ekkert hefur elst. Skemmtilegra
er að sjá hetjurnar bonda, ekki síst
Arnie og Jet Li sem hér eru eitt fyrsta
samkynhneigða par hasarmyndanna.
Og samsöngurinn undir lokin heillar
mun meira en rútínusprengingar.
Helsti galli myndanna er sá að
þær standa ekki undir nafni. Á tím-
um Game of Thrones, þar sem engin
persóna er örugg, finnst manni sem
myndin mætti splæsa í einhver dauðs-
föll góðu gæjanna. Með allar þess-
ar hasarhetjur samankomnar myndi
það gefa myndunum aukna vídd eða
að minnsta kosti spennu. Þegar hver
og einn er eins manns her er þreyt-
andi til lengdar að horfa á þá salla
niður Austur-Evrópumenn sem allir
lærðu að skjóta í Stormtrooper-skól-
anum. Það er því synd að með allar
þessar hetjur samankomnar að ekki
sé lögð ögn meiri vinna í handritið,
sem hefði getað skapað fyrsta flokks
hasarmynd fremur en miðlungs. n
Testósterón-veisla
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Dómur
The Expendables 3
IMDb 6,3
Leikstjóri: Patrick Hughes
Leikarar: Sylvester Stallone, Arnold
Schwarzenegger, Harrison Ford og fleiri.
126 mínútur
Hörkutól Það er synd með allar þessar hetjur að ekki hafi verið meira lagt í handritið.
V
ið erum öll bara mann-
leg,“ segir edrú hasshaus-
inn Richard á þriggja
manna AA-fundi á Flat-
eyri. Eftir þónokkra íhugun
hef ég komist að þeirri niðurstöðu
að París norðursins fjalli um þetta
– það að vera manneskja. Það að
vera mennskur er að vera í sífelldri
glímu við að hemja langanir sínar
og tilfinningar, í sífelldri glímu við að
breyta rétt í heimi þar sem hið rétta
er aldrei svo augljóst. Að vera mann-
eskja er að mistakast, að misstíga sig,
detta og standa upp aftur. Hvort sem
það er varðandi reykingar, áfengi eða
samskipti við annað fólk. Enginn er
fullkomlega góður né slæmur, það
eru allir að gera sitt besta til að láta
sér líða vel. En það er bara svo djöf-
ulli flókið í kringum annað fólk.
Bældar tilfinningar og
krossfjölskyldutengsl
París norðursins er tregablandin
gamanmynd, létt meinfyndið gam-
andrama um bældar tilfinningar og
krossfjölskyldutengsl í örlitlu sam-
félagi. Hugi er tæplega fertugur mis-
heppnaður grunnskólakennari á
Flateyri, óvirkur alkóhólisti í útlegð
eftir sáran skilnað og drykkju í kjöl-
farið. Hann lifir regluföstu lífi, fer út
að hlaupa, hangir með 10 ára nem-
anda sínum og syni fyrrum ástkonu,
og mætir á fámenna AA-fundi í fé-
lagsheimilinu (með pabba og barns-
föður þessarar sömu konu). Hann
virðist samt ekki enn hafa tekist á við
vandamál sín, ekki komist yfir gömlu
kærustuna, heldur leitar skjóls frá
freistingum heimsins í smábænum.
Þegar pabbi Huga, Veigar, ábyrgðar-
laus drykkjurútur mætir óboðinn
á svæðið er reglusömu lífsmynstri
sonarins ógnað og hann þarf að taka
afstöðu gagnvart lúmskri stjórnsemi
föður síns og þar með reyna að öðl-
ast raunverulega stjórn á eigin lífi.
Þó að sögusviðið sé stærra en í fyrri
mynd Hafsteins, Á annan veg, er það
enn svo þröngt og persónufjöldi svo
smár að það gæti nánast verið um
leikhúsverk að ræða. Hér eru allir
skyldir öllum, flestir eru furðufuglar
og það er bara ein sæt stelpa í plás-
sinu (halló, Bechdel-prófið). Þetta
gerir öll samskipti örlítið flóknari
og býður upp á margar kímnar að-
stæður, AA-fundirnir eru til dæmis
dásamlegir. París norðursins veitir
manni innilokunarkennd. Há fjöll-
in umkringja bæinn sem lifir í skjóli
risavaxins snjóflóðagarðs. Það má
reyndar velta því fyrir sér hvort að
hér sé ekki verið að viðhalda útjösk-
uðum staðalímyndum um lands-
byggðina.
Geldi faðirinn
Umfjöllunarefnið er enn fremur það
sama og í Á annan veg: tilfinninga-
flækjur nútímakarlmanna, tregða
þeirra og vonleysislegar tilraunir til
að tjá þær. Bestu brandararnir fel-
ast í þögninni og hikinu sem segir
miklu meira en orðin. Takturinn er
hægur og andrúmsloftið ljúfsárt. Hér
eru það sonurinn, leikinn af Birni
Thors, og ábyrgðarlausi pabbinn,
leikinn af Helga Björns, sem þurfa
að gera upp skuldir sínar. Tvö lífs-
viðhorf takast á, áhyggjulaust „þetta
reddast“-viðhorf pabbans andstætt
alvörugefnum tilraunum sonarins
til að ná stjórn á eigin lífi. Báðir eru á
einhvers konar endastöð. (Eru nöfn-
in Hugi og Veigar ekki of bókstafleg
í þessu samhengi: of mikil hugsun,
of miklar veigar?) Á einhvern hátt
hefur hvor það upp á að bjóða sem
hinn vantar, en það er kannski ekki
fyrr en nautnafullt lífernið leiðir loks
til geldingar föðurins, bæði táknrænt
og bókstaflega, sem þeir geta loksins
sæst við hvor annan og byrjað að tak-
ast á við sjálfa sig.
Huldar Breiðfjörð handritshöf-
undur og Hafsteinn Gunnar Haf-
steinsson leikstjóri teikna upp
skrautlegt persónugallerí sem lífgar
upp á dauft umhverfið. Sagan skilur
mann samt eftir svolítið ringlaðan.
Hvað er verið að reyna að segja mér
með þessari sögu? Það er enginn
augljós sigurvegari, enginn sterkur
boðskapur sem ég get tekið frá París
norðursins nema smámynd af mein-
fyndni mannlegrar tilveru.
Stórkostlegur Helgi
Leikararnir fannst mér frábærir og
týpurnar skemmtilega ýktar. Björn
Thors, Nanna Kristín Magnúsdóttir
og Haki Lorenzen eru góð, en Helgi
Björnsson ber af í hlutverki sem er
eins og sniðið fyrir hann. Hann er
gjörsamlega óþolandi á einhvern
heillandi hátt sem afdankaði ei-
lífðarunglingurinn. Þá er Sigurður
Skúlason frábær sem skilningsríki,
fyrrverandi, verðandi tengdapabb-
inn Svanur og Jón Páll Eyjólfsson
drepfyndinn sem Richard.
Kvikmyndatakan er stórkostleg.
Falleg löng skot sem hreyfast með
treganum í sálarlífi Huga. Frábær
tónlistin sem er eftir Prins Póló spilar
svo stórt hlutverk í sköpun andrúms-
loftsins. Ég skemmti mér vel á París
norðursins en hún hafði engin djúp-
stæð áhrif á mig. Hún skildi mig samt
eftir með fallegan sting í maganum.
Sting sem mætti lýsa með örlitlum
snúningi á einkunnarorð Ragnars
Kjartanssonar: „Það er svo sorglegt
og fyndið að vera manneskja.“
p.s. Ég skil ekki enn þá til hvers tit-
ill myndarinnar vísar. n
Sorglegt og fyndið
að vera manneskja
n Rýnt í París norðursins
Vitnar í Lao-tse Sigurður
Skúlason er frábær í hlutverki
Svans, hins skilningsríka,
fyrrverandi, verðandi tengda-
föður Huga.MynD SkjáSkot Úr StIkLu ParíS
norðurSInSParís norðursins
IMDb 7,4
Leikstjóri: Hafsteinn Gunnar Sigurðsson
Leikarar: Björn Thors, Helgi Björnsson, Nanna
Kristín Magnúsdóttir, Sigurður Skúlason, Jón
Páll Eyjólfsson og Haki Lorenzen.
98 mínútur
kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Dómur
„Þetta gerir öll
samskipti örlítið
flóknari og býður upp á
margar kímnar aðstæður,
AA-fundirnir eru til dæm-
is dásamlegir