Dagblaðið Vísir - DV - 05.09.2014, Qupperneq 62
62 Fólk Helgarblað 5.–8. september 2014
Á glæsilegum Range Rover
Björn Leifsson á einn flottasta Range Rover landsins
A
thafnamaðurinn Björn
Leifs son, betur þekktur
sem Bjössi í World Class,
fjárfesti nýlega í glænýjum
og glæsilegum Range Rover Au-
tobiography TDV6 3,0d.
Bíllinn, sem er árgerð 2014,
kostaði rúmar 27 milljónir en með
aukahlutum rúmar 30 milljónir.
Bíllinn er sjálfskiptur, 258 hestafla
dísilbíll og hlaðinn aukahlutum. Á
meðal aukahluta er litað gler í aft-
urrúðum, svartar felgur, upphit-
að leðurviðarstýri og fjarhitun auk
þess sem búnaður hjálpar öku-
manni að leggja í stæði.
Samkvæmt sölustjóra BMW og
Range Rover hjá BL ehf. seljast á
milli fjórir til sex slíkir bílar á ári en
sölustjórinn segir fæsta þeirra fara
þó yfir 25 milljóna króna mark-
ið. Það er því ljóst að Bjössa bíll er
með þeim flottari á landinu.
Sölustjórinn sagði mikla auk-
ingu í sölu á öllum bílum en vildi
ekki tjá sig um þennan tiltekna bíl.
„Það er alveg sama hvaða bíla við
skoðum. Að fara úr engu í eitthvað,
það er aukning.“
Sérstakur bílasérfræðingur DV
segir bílinn einn af flottustu jepp-
um landsins. „Þú færð ekki flottari
bíl en þetta. Range Rover með öllu.
30 kúlur. Það toppar það ekkert.“
Björn neitaði að ræða við blaða-
mann þegar leitað var eftir því. n
Alvöru kaggi
Range Rover
Autobiography
TDV6 3,0d
Flottur á því Nýi bíllinn hans Bjössa
hlýtur að þykja einn sá flottasti í dag.
Hlaðinn aukahlutum
Á meðal aukahluta er
upphitað leðurviðarstýri.
Frægir á
frumsýningu
Fjöldinn allur mætti á frumsýn-
ingu myndarinnar París Norð-
ursins í Háskólabíói á mið-
vikudagskvöld. Aðstandendur
myndarinnar buðu kannski held-
ur til mörgum því svo fullt var í
salnum að nokkrir þurftu frá að
hverfa. Fjölmargir frægir mættu
á frumsýninguna og mátti þar
meðal annars sjá Egil Ólafsson,
Þórunni Antoníu, Mikael Torfa-
son ásamt spúsu sinni, leikkon-
unni Elmu Stefaníu Ágústsdóttur,
Erp Eyvindarson, Sigríði Hagalín
fréttakonu, Hallgrím Helgason,
Svanhildi Hólm og Loga Berg-
mann, svo einhverjir séu nefnd-
ir, auk auðvitað allra leikaranna í
myndinni og aðstandenda þeirra.
Myndinni var vel tekið og stóðu
áhorfendur upp og klöppuðu
ákaft að henni lokinni fyrir að-
standendum myndarinnar.
Sátu að sumbli
á Hellu
Knattspyrnumaðurinn og
athafnamaðurinn Hermann
Hreiðarsson drakk bjór með ein-
um besta fótboltamarkmanni
allra tíma, Dananum Peter Sch-
meichel, á Hellu í vikunni. Sch-
meichel hjólar þessa dagana um
landið ásamt 30 manna hópi
frá Manchester, en hópurinn
gisti á Stracta-hótelinu sem er í
eigu Hermanns og föður hans.
„Við tókum eina könnu í gær-
kvöldi. Hann er ambassador fyr-
ir Manchester United og er að
fara að hjóla upp á hálendið. Þau
þurftu að fara vel étin og vel út-
hvíld í þennan túr og það var frá-
bært að geta hjálpað,“ skrifaði
Hermann á Facebook.
Fjallið komið
með kærustu
n Kraftajötunninn og fegurðardrottningin að rugla saman reytum
S
amkvæmt öruggum heim-
ildum DV er kraftajötunn-
inn Hafþór Júlíus Björnsson
að deita fegurðardrottn-
inguna Ingibjörgu Egils-
dóttir. Um eitt heitasta og glæsileg-
asta par landsins er að ræða sem á
fyllilega skilið nafnbótina „ofurpar“
eins og tíðkast í stjörnufréttum er-
lendra tímarita.
Ingibjörg var um árabil með
athafnamanninum Þorsteini M.
Jónssyni, oft kenndum við kók, en í
nýjasta tölublaði Séð og heyrt kem-
ur fram að hann og Ingibjörg séu
skilin.
Kynþokkafyllsta konan
Hafþór Júlíus, sem er nýkrýnd-
ur sterkasti maður Evrópu, vakti
mikla athygli fyrir frammistöðu sína
sem risinn Gregor „The Mountain“
Clegane í vinsælu þáttunum Game
of Thrones. Ingibjörg er hins vegar
fyrirsæta og ein fallegasta kona
landsins enda hlaut hún titilinn feg-
urðardrottning Íslands árið 2009.
Hún komst einnig í topp 15 í keppn-
inni Miss Universe sem fram fór á
Bahamas-eyjum sama ár.
Sambandið er splunkunýtt af
nálinni en turtildúfurnar hafa ver-
ið að draga sig saman og hafa til að
mynda spilað saman golf og not-
ið góðs matar saman. Á Facebook-
síðu sinni birtir Hafþór Júlíus fallega
mynd af Ingibjörgu undir yfirsögn-
inni: „Kynþokkafyllsta kona Íslands
að mínu mati!“
Ingibjörg er fædd árið 1985 en
hann þremur árum seinna eða árið
1988. Bæði eiga þau hvort sitt barnið
úr fyrri samböndum.
Var ekki að leita
Hafþór Júlíus vildi ekkert tjá sig
um málið þegar til hans var leit-
að en í viðtali við DV í júní sagðist
hann ekki vera að leita sér að kær-
ustu. „Ef hún er skemmtileg, góð og
ekki í rugli þá skoða ég allt. Ef hún
heillar mig, fílar mig og ég fíla hana
þá er aldrei að vita. Annars er ég
svo rólegur í þessum málum enda
svo upptekinn. Ég er nánast aldrei
heima og hef því lítið verið að spá
í konur,“ sagði Hafþór Júlíus í við-
talinu en þar kom einnig fram að út-
litið skiptir hann litlu máli.
„Ég elska allar konur; grannar,
feitar, dökkhærðar, ljóshærðar. Mér
finnst þær allar æðislegar. Ef ég hitti
frábæra konu sem mig langar að
eyða lífinu með væri það frábært en
eins og staðan er í dag er ég alveg
slakur í þeim málum. Mig langar þó
í eðlilegt fjölskyldulíf einhvern tím-
ann í framtíðinni.“ n