Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Side 6
föstudagur 15. ágúst 20086 Fréttir DV
Sandkorn
n Þegar sá kvittur fór á kreik að
nýr meirihluti væri í smíðum í
borginni byrjuðu blaðamenn
að hringja í alla þá sem tengjast
borgarstjórnmálum á nokkurn
hátt. Svo
virðist sem
flétta sjálf-
stæðismanna
hafi verið
vandlega
hulin því fáir
vissu hvað
átti sér stað á
bak við tjöld-
in á þriðjudaginn. Það vakti þó
kátínu að þegar haft var samband
við Dag B. Eggertsson og hann
spurður út í hugsanlegar hreyf-
ingar vissi hann ekkert, enda var
hann að grafa holu í garðinum
heima hjá sér. Hvort það hafi ver-
ið fyrirboði þess að Óskar sveik
Tjarnarkvartettinn er ómögulegt
að segja.
n Þungavigtarmennirnir Egill
Helgason og Andrés Jónsson
voru í þungum þönkum í Íslandi
í dag á miðvikudaginn þegar
við þá var rætt um hugsanlegar
hræringar í borgarstjórn. Báðir
slógu á létta strengi og spáðu og
spekúleruðu í brjálæðislegum
borgarmálum Sjálfstæðisflokks-
ins og Ólafs F. Magnússonar.
Andrés var uppnuminn af stemn-
ingunni og sagði þá skemmtisögu
að Ólafur F. Magnússon hefði
legið á gólfi bíls þegar borgarfull-
trúar flýðu ágang fréttamanna í
Ráðhúsinu á miðvikudaginn.
n Athygli vekur að Óskar Bergs-
son býr nálægt Vilhjálmi Þ. Vil-
hjálmssyni en sagan segir að þeir
félagar hafi hist fyrir þó nokkru
í grillveislu í hverfinu. Þar hafi
þeir rætt saman um stjórnmál
og stöðu meirhluta Sjálfstæðis-
flokksins og Ólafs F. Magnússon-
ar. Speking-
ar láta að
því liggja að
hugmyndin
um hugsan-
legt samstarf
hafi kviknað
með grill-
kjötinu. Það
er þó ekki
staðfest þó að margt geti gerst í
hverfinu.
Tæplega þrítug kona hefur kært mann á sextugsaldri fyrir nauðgun. Atburðurinn
mun hafa átt sér stað heima hjá manninum en konan mun hafa rifið sig lausa að lok-
um og flúið. Hún kærði manninn umsvifalaust og var í kjölfarið send til Akureyrar
þar sem hún gekkst undir læknisrannsókn. Maðurinn var handtekinn og hefur verið
yfirheyrður. Unnustinn segir verknaðinn óhugnanlega skipulagðan.
á róandi eftir meinta
nauðgun unnustu
„Mér fannst þetta mjög skipulagt og
ásetningslegt,“ segir unnusti stúlku
á Skagaströnd sem hefur kært
mann á sextugsaldri fyrir nauðg-
un í heimahúsi. Lögreglan handtók
manninn á þriðjudagskvöldið eft-
ir að kona á þrítugsaldri leitaði til
lögreglunnar á Blönduósi. Hún var
færð undir læknishendur í bænum
og þaðan var hún, ásamt unnusta
sínum, send á Fjórðungssjúkrahús-
ið á Akureyri. Maðurinn er fyrrver-
andi vinnuveitandi konunnar og að
sögn unnustans á maðurinn að hafa
fengið hana til þess að koma heim
til sín undir því yfirskini að hún gæti
fengið vinnu aftur hjá honum.
Ginnti konuna
„Það var hringt í hana og logið,“ seg-
ir unnusti konunnar en maðurinn hitti
hana á þriðjudagskvöldinu. Þegar hún
kom til hans á hann að hafa sagt við
hana að það væri enga vinnu að hafa.
Síðan í kjölfarið sakar stúlkan hann
um að hafa ráðist á sig og nauðgað sér.
Hún komst að lokum undan og flúði þá
til unnusta síns. Þau fóru beint til lög-
reglunnar og kærðu manninn. Að sögn
unnustans sótti lögreglan manninn og
yfirheyrði. Maðurinn á að hafa verið
mjög ölvaður þegar verknaðurinn átti
sér stað.
Ber að ofan og fullur
„Hann lamdi hana ekki,“ segir
unnustinn sem var verulega brugð-
ið. Hann sagði hana vera tilfinn-
ingalega sterka en þau fóru bæði til
Akureyrar þar sem konan var skoð-
uð og tekin sýni vegna nauðgun-
arrannsóknar. Hann sagðist sama
kvöld og maðurinn er sakaður um
að hafa nauðgað konunni hafa í
bræði sinni farið heim til hans.
„Hann kom ber að ofan til dyra og
sagði við mig áður ég kom upp orði
að ég myndi ekki klína þessu á hann,“
segir unnustinn reiður og bætir við
að maðurinn hafi verið verulega ölv-
aður. Aðspurður hvort þeir hafi lent
í átökum segir hann svo ekki vera.
Eitthvað hafi haldið aftur af honum.
Greinilega skipulagt
„Þetta var greinilega skipulagt,“
segir unnustinn en hann telur þá að-
ferð að ginna unnustu hans heim til
mannsins hafa verið ígrundaða. Það
hafi hann gert með því að ljúga að
henni að vinnu væri að fá en konan
vann eitt sinn hjá honum en er núna
hætt því. Hún hefur hins vegar komið
í íhlaupavinnu þegar slík hefur staðið
til boða. Kvöldið örlagaríka átti að vera
eitt slíkt.
Unnustinn á róandi
„Hún er sterkari en ég,“ segir unn-
ustinn um líðan þeirra og segir hana
bera sig eins og hetja. Sjálfur fékk
unnustinn mikið áfall og hefur leit-
að til læknis vegna þess. Þá er hann á
róandi lyfjum. Reiðin er mikil en þau
voru á leiðinni heim frá Akureyri þeg-
ar við þau var rætt. Hann sagðist ein-
faldlega vona að hann myndi ekki sjá
manninn aftur. „Ég veit ekki hvað ég
myndi gera ef ég myndi sjá helvítið,“
segir hann reiðilega.
Enn í haldi
„Við erum með mann í haldi grun-
aðan um kynferðisbrot,“ segir Daní-
el Kristjánsson, yfirlögregluþjónn á
Akureyri, um málið. Maðurinn hef-
ur verið í haldi lögreglunnar síðan
á þriðjudagskvöldið. Daníel sagði
ótímabært að gefa það upp hvort
maðurinn hefði játað brotin en rann-
sókn er í fullum gangi og gengur vel.
Skútahrauni 11
220 Hafnarfjörður
S: 565 2727
www.hraunbt.is
Fligel 4 Öxla vélavagn með 2
beygjuöxlum 2,70 áb ferí 3,25
Fligel Malarvagnar 2 öxla á 2 földu
með lyfti hásingu segli og fl
Fligel Malarvagnar 3 öxla á 1 földu
með lyftihásingum og segli og fl
Möguleiki á 100% fjármögnun
valUr GrEttisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Það var
hringt í hana
og logið.“
skagaströnd Nauðgunin átti
sér stað í heimahúsi á
skagaströnd.
reif sig lausa konan, sem er tæplega þrítug, reif sig lausa og komst frá árásarmann-
inum. Myndin tengist greininni ekki.
Misþroska hjónin í Grindavík halda til Akureyrar í dag með tveggja vikna prinsessu:
Barnið fer norður í dag
Ungu misþroska hjónin í
Grindavík eru staðráðin í því að
halda norður til Akureyrar í dag
með tveggja vikna gamla dóttur
sína. Ættingjar og vinir hjónanna
vilja fyrir alla muni koma í veg fyrir
að það gerist.
Fyrir þremur árum fæddist þeim
hjónum sonur. Sá var tekinn frá
þeim og settur í fóstur. Ættingjar
misþroska hjónanna óttast um líf
ungu stúlkunnar. Þeir telja að for-
eldrar hennar ráði ekki við upp-
eldi hennar vegna lífernis síns. Þau
vilja því halda litlu prinsessunni í
Grindavík.
„Opinbera leiðin er í raun að
koma upplýsingum til viðkomandi
barnaverndarnefndar. Ef þau ætla
að búa á Akureyri, þá er okkar ráð
að þeir sem hafa áhyggjur af velferð
barnsins hafi samband við barna-
verndaryfirvöld á Akureyri. Gefa
eins glögga mynd af aðstæðum og
þeir þora,“ segir Hrefna Friðriks-
dóttir hjá Barnaverndarstofu.
Fyrsta barni þeirra hjóna var
komið í fóstur. Hrefna segir að hvert
mál sé einstakt fyrir sig. Staða for-
eldranna sé hugsanlega betri í dag
en hún var áður og því sé ekki fylgst
með kynforeldrum eftir að barn sé
farið í fóstur.
„Það er mikill munur á því að
fólk óski eftir því að barn fari í fóst-
ur eða það sé tekið af fólki með
dómsúrskurði. Aðstæður fólks geta
líka hafa breyst. Ef barni er komið
í fóstur er ekki fylgst með kynfor-
eldrunum. Það er fylgst með barn-
inu og þegar barn er farið í varan-
legt fóstur er ekki lengur fylgst með
kynforeldrunum.“
„Ef barnið fer með þeim er ekki
spurning um hvort heldur hvenær
eitthvað hræðilegt gerist. Og hver
ætlar þá að taka á sig ábyrgðina?“
spyr viðmælandi DV.
Viðmælandinn vildi ekki koma
fram undir nafni en sagði það vera
neyðarúrræði að fara með söguna
í fjölmiðla. Þetta mun ekki vera
gert í samráði við fjölskyldur fólks-
ins sem munu hafa reynt allt sem
í þeirra valdi stendur til að koma í
veg fyrir ferðina norður yfir heiðar.
Það eina sem væri óreynt væri að
fjölmiðlar gengju í málið og segðu
söguna.
benni@dv.is
lítil prinsessa Ættingjar seinþroska
hjóna deila við þau um framtíð nýfæddrar
dóttur þeirra. aðstandendurnir telja ljóst
að hjónin séu ekki fær um að annast
barnið. Myndin tengist fréttinni ekki.