Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2008, Page 33
DV Helgarblað Föstudagur 15. ágúst 2008 33
EllismEllasumarið 2009
Neil Young
Kanadíski tónlistarmaðurinn Neil Young er
þessa dagana að túra eins og hann eigi lífi
ð að
leysa við gríðarlega góðar undirtektir. Þrát
t fyrir
að vera orðinn sextíu og þriggja ára rokka
r hann
betur en margir af ungu folum tónlistarbra
ns-
ans. Hinn síungi Young ætti að ná til talsve
rt
breiðs hóps þar sem hann spilar djass,
rokkabillí, blús, grunge og ekta elektró gíta
r
rokk. Með frægustu lögum Neil Young má
nefna til dæmis Heart of gold og rockin‘ In
the
Free World. Ef Neil Young kæmi til Íslands e
r
bókað að útvarpsmaðurinn Óli Palli yrði
fremstur uppi við sviðið og myndi öruggle
ga
redda sér líka baksviðspassa til að fara í
eftirpartí með gamla.
Lionel Richie
Lionel richie er fæddur árið 1949. Hann var vinsælastur á árunum 1981-1985.
Lögin Endless Love, truly, all Night Long, Hello og say You, say Me voru spiluð
nánast á hverjum degi á þessum árum. richie er þessi rómantíski söngvari sem
flestar konur hafa áhuga á að hlusta á. Þó það sé orðið langt síðan richie var
vinsæll lifir hann enn í hjörtum margra. Ef hann kæmi til landsins og héldi
tónleika myndi húsið fyllast af kvenfólki með tár í augunum.
Neil Diamond
Neil diamond er án efa ein af þessum gömlu kempum sem myndu vekja mikla lukku meðal miðaldra fólks. diamond er orðinn sextíu og sjö ára gamall og enn að túra en hann er einn söluhæsti söngvari/lagasmiður síðan sölutölur byrjuðu að birtast en árið 2005 hafði demanturinn selt hundrað og tuttugu milljón plötur um heim allan. Frægasta lag diamond er að öllum líkindum hinn undurfagri poppsmellur, sweet Caroline. Forsetafrúin dorrit Moussaieff er nú öll í gimsteinunum svo hún myndi örugglega draga Ólaf ragnar með sér á Neil diamond-tónleika.
Aretha Franklin
sálardrottningin aretha Louise Franklin er fædd árið
1942 og er því komin á besta aldur. Þá má segja að
aretha hafi komið, séð og sigrað tónlistarheiminn árin
1967 og 1968 en hún átti níu þekkt lög á þeim tíma.
Lög sem hún hefur samið hafa lifað lengi og hrærst í
tónlistaheiminum og enn í dag má heyra lög á borð
við respect, I say a Little Prayer og You Make Me Fell
Like a Natural Woman í útvarpi og víðar. Þeir
tónlistarmenn sem væru líklegir til að mæta á
tónleikana eru Margrét Eir og ragnheiður gröndal.
Billy Joel
Píanómaðurinn Billy Joel ver
ður sextugur á næsta ári og
á hvaða betri hátt er hægt að
halda upp á það en með
því að halda tónleika á Ísland
i. Kappinn varð heims-
frægur á einni nóttu þegar la
gið Piano Man kom út á
samnefndri plötu árið 1973 o
g fylgdi hann því skoti upp
á stjörnuhimininn vel eftir m
eð lögum á borð við Just
the Way You are, My Life og
It‘s still rock & roll to Me. Í
seinni tíð hefur hins vegar fa
rið minna fyrir kappanum.
Joel og Elton John eru stund
um spyrtir saman, en við
skulum vona fyrir hönd þess
fyrrnefnda að ef hann
kæmi til Íslands á næsta ári m
yndu tónleikarnir ekki
vera jafn misheppnaðir og þ
eir sem Elton hélt hér um
árið. Frægustu píanóleikarar
þjóðarinnar myndu
vafalítið mæta á tónleikana,
til að mynda Jón Ólafs og
Maggi Kjartans, og jafnvel ei
nhverjir úr klassíska
geiranum eins og Jónas Ingi
mundar og Víkingur Heiðar.
Dolly Parton
ameríska sveitasöngkonan dolly Parton er svo sannarlega ellismellur sem mætti fá
til landsins. Þrátt fyrir að halda sér unglegri með bótoxi, sílíkoni og túperuðu hári er
Parton orðin sextíu og tveggja ára gömul og er án efa allra heitasta kántrísöngkona
í heimi. Eftir að hafa náð tuttugu og sex lögum á toppinn á vinsældarlistum og
komið fjörutíu og tveimur plötum inn á topp tíu vinsældarlista ætti barmmikla
söngkonan svo sannarlega að geta skemmt Íslendingum og troðfyllt Egilshöllina.
Kántrýstjarna Íslands, Hallbjörn Hjartarson yrði án efa fremstur á tónleikunum,
jafnvel að „crowd-surfa“ ef hann væri í stuði. Einnig er nokkuð líklegt að dóra
takefúsa myndi fljúga heim frá Kaupmannahöfn þar sem hún rekur barinn Jolene
sem heitir í höfuðið á einu frægasta lagi dolly Parton.