Lögmannablaðið - 01.12.2011, Side 8
8 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11
UMfJöllUn
arkitektar samfélaga
Carolyn lamm lögmaður, sem var
formaður bandaríska lögmanna
félagsins (aBa) 20092010, ræddi í
erindi sínu um áhrif hryðjuverka,
heimskreppu og byltinga á réttarríkið
og hlutverk lögmanna og lögmanna
félaga þeirra við að vernda og styrkja
réttarríkið.
Í upphafi skilgreindi hún réttarríkið sem
ákveðið kerfi í samfélagi þar sem enginn
væri hafinn yfir lög. anthony Kennedy,
einn dómara við Hæstarétt banda-
ríkjanna, hefði lýst réttarríkinu þannig
að það byggðist á hlutleysi, þ.e. það
gilti óháð aðstæðum í samfélaginu eða
því hver ætti í hlut. meginreglur réttar-
ríkis grundvölluðust því á loforði um
hlutleysi. Væri það loforð brotið, þannig
að framkvæmd, eftirfylgni og túlkun
laga færi ekki fram af hlutleysi, myndu
lög í þeirri mynd sem við þekkjum,
leggjast af.
Til að styrkja grundvöll réttarríkis á
heimsvísu hefur aba tekið þátt í
verkefninu „The World Justice Project“
en í því hafa grundvallarreglur réttar-
ríkisins verið skilgreindar. Þær eru:
1. Framkvæmdavaldið beri ábyrgð
samkvæmt gildandi/settum lögum.
2. Lög séu skýr og birt opinberlega. Lög
verði að vera traust, sanngjörn og
vernda grundvallarréttindi manna,
þ.m.t. öryggi og eignarrétt.
3. Lagasetning, framkvæmd og eftirfylgni
laga sé sýnileg, sanngjörn og
árangursrík.
4. aðgengi að dómstólum sé tryggt með
hæfum og sjálfstæðum dómstólum.
að auki þurfi dómstólar að vera
skipaðir nægum fjölda vel menntaðra
dómara, sem þekki ekki aðeins lögin
heldur einnig þau gildi sem ríkja í
því samfélagi sem þeir þjóna.
jafnvægið milli öryggis og
frelsis
Carolyn sagði í erindi sínu að hryðjuverk
ógnuðu jafnvæginu á milli öryggis og
frelsis. réttarríkið þyrfti að vera þannig
úr garði gert að það gæti brugðist við
utanaðkomandi ógn. Hryðjuverka-
árásirnar í bandaríkjunum 11. september
2001, lestarsprengingarnar í madrid og
nú síðast fjöldamorðin í noregi hafi
vegið að öryggistilfinningu fólks. Fyrstu
viðbrögð almennings, sem og yfirvalda
við slíkum ógnum, sé einkum krafa um
aukið eftirlit, gjarnan á kostnað
borgaralegra réttinda og réttarríkisins.
Vitnaði hún m.a. í Harold Knoh,
prófessor í lögum, sem sagði að sam-
félagið, og lögfræðingar þar á meðal,
hefðu hunsað réttarríkið eftir atburðina
11. september 2001. réttarkerfið, sem
til hefði orðið á löngum tíma, hefði ekki
staðið þessa ógn af sér.
réttarríkishugtakið í kjölfar
hnattvæðingar
Carolyn sagði að áður hafi verið litið á
hugtakið „réttarríki“ sem innanríkismál
varðandi samskipti þegna og stjórnvalda.
með hnattvæðingunni hefði viðhorf
manna gagnvart réttarríkishugtakinu hins
vegar breyst. nú sé horft til samskipta
þegna og stjórnvalda, inn lendra sem
erlendra, og að auki á samskipti þegna
við alþjóðlegar stofnanir og fyrirtæki.
Þátttakendur í alþjóðlegum viðskiptum
leiti eftir traustu lagaumhverfi sem tryggi
áreiðanleika í viðskiptum, ásamt
sanngirni og heiðarleika. Þannig nái
réttarríkishugtakið einnig til alþjóða-
samninga, til úrlausna deilumála á
grundvelli alþjóðalaga og fyrir alþjóð-
legum gerðardómum. Þetta hafi m.a leitt
til þess að Sameinuðu þjóðirnar hafi
skilgreint hugtakið réttaríki með mun
alþjóðlegri skírskotun en áður tíðkaðist.
efnahagskreppan nú um stundir
gengur þvert á landamæri og ógnar
fjármálastöðugleika sem er undirstaða
nútíma samfélaga. efnahagsörðugleikar
eins ríkis, eins og grikklands, geta
ógnað stöðugleika annarra ríkja og
ríkjasambanda eða myntbandalaga.
Á tímum efnahagsþrenginga er
freistandi fyrir stjórnvöld að skerða
framlög til stofnana sem standa vörð
um réttarríkið og almenningur getur
auðveldlega misst trú á réttarríkið ef
atvinna er ekki í boði og mikill ójöfnuður
með mönnum. Á samdráttartímum skera
ríkisstjórnir gjarnan niður fjárframlög til
stofnana sem mynda stoðkerfi réttar-
ríkisins. Þannig eiga mörg fylki
bandaríkjanna erfitt með að fjármagna
rekstur réttarkerfisins vegna samdráttar.
varðmenn réttarríkisins
breytingar á stjórnarfari einstakra ríkja
og óvissa í samskiptum nýrra valdhafa
við önnur ríki eða alþjóðastofnanir geta
stefnt réttarríkinu þar í hættu. Slíkt getur
hins vegar einnig skapað ný tækifæri
til umbóta á réttarríkinu. Oftar en ekki
ríki þó óvissa um vegferð nýrra valdhafa
eða valdakerfa. Um það má gleggst vísa
til nýorðinna atburða í egyptalandi og
Túnis.
evangelos tsouroulis.
gunnar jónsson.