Lögmannablaðið - 01.12.2011, Page 49

Lögmannablaðið - 01.12.2011, Page 49
lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 49 ViðtAl í sjó- og verslunardóms- og landhelgis- málum voru litríkir og eftir minnilegir karakterar, sem ánægjulegt var að kynnast og starfa með. Ég var skipaður fulltrúi við Sakadóm reykjavíkur haustið 1953 og starfaði þar til nóvemberloka 1959, þegar ég hóf lögmennsku. Ég opnaði skrifstofu á 4. hæð Klapparstígs 26. Hafði tekið hálfa hæðina, alls sex herbergi, á leigu og látið teppaleggja allt horna á milli. Daginn sem ég hafði komið fátæklegum húsbúnaði, bókum og tækjum fyrir í tveimur herbergjum, sem ég ætlaði mér sjálfum og ritara þegar þar að kæmi, þá hringdi ég í Hannes Sigurðsson hjá Sjóvá til að tryggja allt heila gumsið fyrir bruna- og vatnstjóni. Þá var klukkan að verða fimm um daginn en nóttina eftir flæddi heitt vatn úr snyrtiherbergi á gang framan við herbergi mín og þaðan í þrjú af herbergjum mínum. Klukkan 9:15 morguninn eftir hringdi ég aftur í Hannes og spurði hvort hann hefði gengið frá tryggingunni daginn áður. Hann sagði svo vera og ég bað hann þá um að senda skoðunarmenn að bragði til að taka út og meta tjónið. ekki minnist ég annarra lögmannsstarfa þann daginn. Ég hefi hins vegar ekki séð ástæðu til að skipta um tryggingafélag síðan. eiNs og „geNeral PraCtitioNer“ Var nóg að gera í lögmennskunni? Í byrjun árs 1960 tók ég að mér að vera framkvæmdastjóri Kaupmanna- samtakanna meðfram lögmennskunni og var það þar til í desember 1964. Samtökin höfðu þá verið í þröngu húsnæði á Laugavegi 22 b, Klappar- stígsmegin. Ég leigði þeim síðan tvö herbergi á hæðinni með okkur á Klapparstígnum árið 1961. Þetta var í byrjun viðreisnaráranna og stórfelld gengisskerðing krónunnar var gerð þegar í upphafi. Var því mjög erilsamt starf að stýra samtökunum á þessum tíma, erindisrekstur við stjórnvöld og löggjafarsamkunduna, kjarasamningar og samskipti við önnur stéttarfélög, systurfélög á norðurlöndum o.fl. Sam- tökin héldu úti tímaritinu „Verzlunar ­ tíðindum“, þau beittu sér fyrir stofnun Verzlunarbanka Íslands hf. og voru stofnfélagar að Lífeyrissjóði verslun- arinnar. Starfsemi samtakanna óx gífurlega á þessum árum og félögum fjölgaði. Vegna starfa fyrir Kaup manna samtökin hafði ég orðið að hafna stöðugt fleiri lögmanns störfum fyrir aðra. Sagði ég því lausu starfi mínu með góðum fyrirvara og hafði á því tímabili meðal göngu um kaup veglegs húsnæðis á marargötu 2. Flutti starfsemin þangað seint á árinu og var Knútur bruun þá ráðinn fram- kvæmdastjóri í minn stað. eftir það hafði ég venjulega mátulega mikið að gera. Sérhæfðir þú þig í ákveðnum málum? nei, ég var eins og heimilislæknir og fannst gott að vera ekki of einhæfur. Ég var í öllu mögulegu. Og þó, ég get ekki neitað því, að ég kom allmikið að samningagerð og hvers konar erindis rekstri á sviði út- og innflutnings viðskipta og flutninga. Þú rakst stofuna í félagi við fleiri lögmenn lengst af? Ári eftir að ég hætti í sakadómi hóf guðmundur ingvi Sigurðsson að reka lögmannsstofuna í félagi við mig en svo bættust Jónas a. aðalsteinsson og Jóhannes L.L. Helgason í hópinn. Stofuna rákum við í „kontorfælleskab“ og var um reksturinn sameignarfélag undir heitinu Lex. Við rákum stofuna fyrst á Klapparstíg 26, svo á Laufásvegi 12 og síðast í Lágmúla 7. Ég seldi minn hlut í stofunni árið 1996 eftir að ég gekkst undir hjáveituaðgerð á hjarta. Þá fór ég að taka því rólega og vann þá að mestu fyrir opinberar stofnanir til ársins 2001 er ég hætti í lögmennsku. Þú varst í stjórn LMFÍ árin 1966­1968. Hvernig fór starfsemi félagsins fram á þeim tíma? Við vorum þá búnir að fá skrifstofu á Óðinsgötu en engan starfsmann svo öll vinnan lenti á okkur stjórnarmönnum. Við þurftum meðal annars að innheimta félagsgjöldin og ég var settur í það. Það sveinn fer hvern morgun í golf, sumar jafnt sem vetur, en hann kynntist íþróttinni í vestmannaeyjum árið 1952 og varð strax heillaður. Hann var í stjórn golfklúbbs reykjavíkur 1954­1961 og forseti golfsambands íslands 1961­1970. á þeim tíma fór hann í „trúboð“ til að breiða út golfíþróttina sem heppnaðist svo vel að golfklúbbum landsins fjölgaði úr þremur í 14. á myndinni er sveinn í hópi golfara á meistaramóti lmfí árið 2007.

x

Lögmannablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.