Lögmannablaðið - 01.12.2011, Side 56

Lögmannablaðið - 01.12.2011, Side 56
56 lögmaNNaBlaðið tBl 04/11 UMfJöllUn málum er til hagsbóta horfðu fyrir húsmæður, berjast gegn áfengisböli og auka samstarf milli kennara og heimila.16 rannveig var í útvarpsráði 1953-1956 og 1959, í happdrættisráði Háskóla Íslands 1951-1977 og fulltrúi Íslands á ráð- gjafarþingi evrópuráðsins 1951-1964.17 rannveig nýtti lögfræðiþekkingu sína meðal annars til að berjast fyrir jafnrétti og skrifaði greinar sem vörðuðu réttarstöðu kvenna í blaðið 19. júní á árabilinu 1953-1959. einnig samdi hún bók um félagsmál og fundarstjórn ásamt Svöfu Þórleifsdóttur sem Kvenfélaga- samband Íslands gaf út 1972. Í grein um launajafnrétti sem hún skrifaði í 19. júní 1955 segir m.a.: „Nú er það víst, að þótt engin almenn lagaákvæði séu til um það hér á landi, að konum skuli goldin sömu laun og körlum fyrir sams konar störf, þá eru engin lög sem banna það, og má jafnvel líta svo á, að lagaákvæði þau, sem sett hafa verið varðandi konur, sem eru starfsmenn ríkisins, bendi mjög í þá átt, að almennt skuli gilda á Íslandi jafn réttur kvenna og karla til starfa og reglan um jöfn laun fyrir jafnverðmæt störf.“18 fyrsta konan í málflutningi rannveig öðlaðist rétt til málflutnings fyrir héraðsdómi árið 1952 en hún opnaði málflutningsskrifstofu í reykjavík árið 1949 sem hún rak til 1974. Hún öðlaðist réttindi til málflutnings fyrir Hæstarétti árið 1959, fyrst kvenna, og tók virkan þátt í störfum Lögmannafélagsins. Hún var kjörin heiðursfélagi LmFÍ árið 1979 og var eina konan þar til Þórunn guðmunds dóttir hlaut þann heiður í tilefni aldarafmælis félagsins árið 2011.19 Í blaðinu 19. júní 1959 var viðtal við rannveigu í tilefni þessað hún var orðin hæstaréttarlögmaður. Þar var hún spurð að því hvort karlar væru ófúsari að fela konum að reka mál fyrir sig og kvað alþýðublaðið 26. október 1949, bls. 4. stærsta atriði kvenna baráttunnar Árið 1953 skrifaði rannveig grein í 19. júní um konur í ábyrgðarstöðum og gætti nokkurrar óþolinmæði vegna þess hversu fáar íslenskar konur væru í ábyrgðar stöðum á Íslandi. „Hvernig getur staðið á því, að konur hafa svo lítið verið kallaðar til ábyrgðarstarfa hér á Íslandi, þrátt fyrir það, að þær hafa um rúmlega 40 ára skeið haft sama rétt og karlar til menntunar og embætta?“ spurði rannveig og velti fyrir sér hvort orsökin væri löggjafans, þeirra sem veittu stöðurnar eða kvenna sjálfra. Sagði hún löggjöf á Íslandi vera eins frjálslega og best þekktist en þar sem giftar konur fengju enga hjálp við heimilisstörfin þá væru þær bundnar heima. Skattalögin væru einnig þannig að ekki væri gert ráð fyrir kostnaði vegna heimilishjálpar þegar konur færu að vinna frá heimili og bæði konur sem og vinnuveitendur gerðu ekki ráð fyrir konum við störf í mörg ár. „Þetta og fleira orsakar það, að konur almennt ganga ekki að því með alvöru að gera sig hæfar á sviði framkvæmda­ og stjórnmálalífs, og þótt tækifæri komi fyrir konur, þá eru þær oft ekki reiðubúnar, hafa ekki aflað sér þeirrar þekkingar og þjálfunar, sem á þarf að halda.“ rannveig sagði þetta hin mestu vonbrigði en þótt konur hefðu kosningarétt og kjörgengi þá hefði jafnréttið aldrei náð lengra. Konur störfuðu mest innan heimilis og þær sem ynnu utan þess hefðu með höndum minni háttar störf og lág laun. Stærsta atriði kvenréttindabaráttunnar væri að konur veldust til eða væru valdar til virðulegra og vandasamra starfa meðal íslensku þjóðarinnar. Þrátt fyrir óþolinmæði rannveigar þokaðist lítið í jafnréttisátt næstu áratugina og hún mátti bíða lengi eftir vitundarvakningu í jafnréttismálum.26 Húsmæður á alþingi rannveig flutti tillögu til þingsályktunar um undirbúning löggjafar um vinnuhjálp húsmæðra haustið 1949 með sama hætti og tíðkaðist annars staðar á norður löndum. Um ástæðu þessa sagði rannveig að erfitt hefði reynst að fá hjálp við heimilisstörf síðustu ár og því yrði að koma skipulagi á vinnuhjálp húsmæðra í sérstökum neyðartilfellum. með slíku fyrirkomulagi myndu stúlkur vera ráðnar af opinberum aðila til aðstoðar. Tillagan var samþykkt.27 enn fremur kom hún með breytingartillögu við frumvarp til laga um tekju- og eignarskatt á þá leið að ef kona framteljanda ynni utan heimilis mætti draga frá kostnað vegna stjórnar heimilis sem sannanlega væri greiddur ráðskonu. Það var ekki samþykkt.28

x

Lögmannablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögmannablaðið
https://timarit.is/publication/1132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.