Gerðir kirkjuþings - 1992, Blaðsíða 54
12. gr.
Rétt til örorkulífeyris eiga þeir menn, sem lögheimili eiga á Islandi, eru á aldrinum
16-67 ára og:
a. hafa átt lögheimili á Islandi a.m.k. þrjú síðustu árin, áður en umsókn er lögð
fram, eða haft óskerta starfsorku, er þeir tóku hér lögheimili;
b. eru öryrkjar til langframa á svo háu stigi, að þeir eru ekki færir um að vinna
sér inn 1/4 þess, er andlega og líkamlega heilir menn eru vanir að vinna sér inn
í því sama héraði við störf, sem hæfa líkamskröftum þeirra og verkkunnáttu og
sanngjamt er að ætlast til af þeim, með hliðsjón af uppeldi og undanfarandi
starfa.
Heimilt er Tryggingastofnuninni, þegar ekki verður séð hver örorka verður til
frambúðar eftir sjúkdóma eða slys, að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að tólf mánuði
eftir að greiðslu sjúkra- og slysadagpeninga lýkur eða þar til unnt er að meta
varanlega örorku, þó aldrei lengur en í 18 mánuði. Skilyrði er að sjúklingur gangist
undir greiningu eða meðferð á sjúkrastofnun eða utan slíkrar stofnunar eftir reglum
sem tryggingaráð setur og ráðherra staðfestir. Endurhæfingarlífeyrir skal nema sömu
íjárhæð og elli- og örorkulífeyrir. Um tekjutryggingu og aðrar tengdar bætur fer eftir
sömu reglum sem um elli- og örorkulífeyri. Sjúkrahúsvist í greiningar- og
endurhæfingarskyni skerðir ekki bótagreiðslur.
Heimilt er Tryggingastofnuninni að veita örorkustyrk þeim sem skortir a.m.k.
helming starfsorku sinnar og uppfyllir skilyrði 1. mgr. að öðru leyti en því er
örorkustig varðar. Örorkustyrkþegi, sem náð hefur 62 ára aldri, skal njóta
örorkustyrks sem jafnan svarar til fulls örorkulífeyris (grunnlífeyris án bóta tengdra
honum). Örorkustyrk má enn fremur veita þeim sem stundar fullt starf, en verður
fyrir verulegum aukakostnaði sökum örorku sinnar. Tryggingaráð setur reglur um
örorkustyrki og skulu þær staðfestar af ráðherra.
Tryggingayfirlæknir metur örorku þeirra, sem sækja um örorkubætur.
Fullur árlegur örorkulífeyrir skal vera 147.948 kr. og greiðist hann eftir sömu
reglum og ellilífeyrir, sbr. þó 6. mgr. Við ákvörðun lögheimilistíma, sbr. 1. mgr. 11.
gr., skal reikna með tímann fram til 67 ára aldurs umsækjanda.
Örorkulífeyri skal skerða ef árstekjur örorkulífeyrisþega eða hjóna, hvors um sig,
sem bæði eru örorkulífeyrisþegar, eru hærri en 871373 kr. Ef tekjur eru umfram
umrædd mörk skal skerða örorkulífeyri um 25% þeirra tekna sem umfram eru uns
hann fellur niður. Til tekna í þessu sambandi teljast hvorki bætur almannatrygginga
né tekjur úr lífeyrissjóðum.
13. gr.
Greiða skal framfærendum fatlaðra og sjúkra bama, sem dveljast í heimahúsi,
styrk, allt að 9.247 kr., eða umönnunarbætur, allt að 47.912 kr. á mánuði ef andleg eða
líkamleg hömlun barns hefur í för með sér tilfinnanleg útgjöld eða sérstaka umönnun
eða gæslu. Tryggingastofnun ríkisins úrskurðar og annast greiðslu styrks og
umönnunarbóta, að fengnum tillögum svæðisstjóma, samkvæmt lögum um málefni
fatlaðra. Greiðsla styrks skal miðuð við 10-40 klst. þjónustu á mánuði en greiðsla
umönnunarbóta 40-175 klst. þjónustu á mánuði, sem tryggingaráði er heimilt að hækka
í allt að 200 klst., mæli sérstakar ástæður með því að mati svæðisstjóma. Dagleg
þjónusta við bara utan heimilis skerðir umönnunarbætur. Um framkvæmd
greinarinnar fer eftir reglugerð sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur í
samráði við félagsmálaráðherra að fengnum tillögum tryggingaráðs.
49