Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 35

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Page 35
33 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Þáttabygging kennslukönnunar við Háskóla Íslands 0,81 (Verkfræðideild; Félagsvísindadeild) til 0,89 (Læknadeild). Umræða Í kennslukönnuninni sem notuð er til að meta gæði kennslu í grunnnámi við H.Í. eru þrír þættir. Með hliðsjón af inntaki þessara þátta gætu lýsandi heiti þeirra verið kennsla (þáttur I)), kennsluaðstaða (þáttur II) og vinnuálag (þáttur II). Flestar staðhæfingar kennslukönnunarinnar (14 af 21) tilheyra kennsluþættinum (þáttur I). Annar þáttur kennslukönnunarinnar inniheldur fimm staðhæfingar en sá þriðji tvær. Efni fyrsta þáttar (kennsla) lýtur að kennslu, skipulagi námskeiðs, samskiptum kennara og stúdenta, námsmati og afrakstri námskeiðs. Inntak annars þáttar (þáttar II) lýtur að aðstöðu til verklegrar kennslu og þess þriðja að vinnuálagi og þyngd námskeiðs. Þáttabygging kennslukönnunarinnar er stöðug í þeim skilningi að sömu þættir koma fram í tveimur óháðum úrtökum (2. tafla) og einstökum háskóladeildum (4. tafla). Jafnframt koma sömu þrír þættirnir fram óháð því hvort einstök svör stúdenta eru þáttagreind (2. tafla) eða meðaltal staðhæfinga í námskeiðum (3. tafla). Niðurstöðurnar undirstrika að hægt er að túlka kennslukönnunina í grunnnámi við H.Í. út frá þremur þáttum. Þar af er einn sem metur ágæti kennslu og námskeiðs (þáttur I) og annar vinnuálag í námskeiði (þáttur III). Ef niðurstaða kennslukönnunarinnar er notuð við ráðningu kennara eða framgang þeirra í starfi ætti að styðjast við þessa þætti en þó aðallega fyrsta þáttinn (kennsla) þar sem hann er mun breiðari að inntaki en þátturinn vinnuálag. Áreiðanleiki kennsluþáttarins er mikill. Áreiðanleiki þáttarins vinnuálag er viðunandi þó hann sé minni en kennsluþátt- arins. Þátturinn kennsluaðstaða (þáttur II) gagnast tæplega til að meta frammistöðu einstakra kennara í kennslu. Inntak þessa þáttar er þröngt og vísar fyrst og fremst til aðbúnaðar í verklegri kennslu. Kennari getur auðvitað stuðlað að því að kennsluaðstaða sé viðunandi í tilteknu námskeiði en það eru aðrir sem bera meginábyrgð á að svo sé. Af þessum sökum er álitamál hvort þessi þáttur eigi að vera í kennslukönnuninni. Í kennslukönnunum við erlenda háskóla er fremur sjaldgæft að hliðstæður þáttur sé notaður þegar sama könnunin er notuð í öllum háskóladeildum. Önnur rök fyrir því að endurskoða þennan þátt í kennslukönnuninni við H.Í. er að það er eftirsóknarvert að fjölga þáttum í kennslukönnuninni. Ein leið til að gera það án þess að lengja hana um of er að fella brott þær fimm staðhæfingar sem mynda þennan þátt og bæta öðrum við í staðinn sem gætu myndað sjálfstæðan þátt eða þætti með staðhæfingum úr þætti I (kennsla). Væri þetta gert myndi notagildi kennslukönnunarinnar við H.Í. aukast. Þegar kennslukönnunin við H.Í. er notuð af einstökum kennurum til að bæta kennslu sína er gagnlegast fyrir þá að styðjast við þátt I (kennsla) og þátt III (vinnuálag). Þó einhverjum kennurum kunni að þykja gagnlegt að skoða svör við einstökum staðhæfingum kennslukönnunarinnar til að bæta kennslu sína er aftur á móti ekki hægt að verja ákvarðanir um framgang eða ráðningu kennara út frá túlkun á einstökum staðhæfingum. Áreiðanleiki og réttmæti einstakra staðhæfinga ber ekki uppi slíkar ákvarðanir. Í þessari rannsókn var áreiðanleiki einstakra staðhæfinga kennslukönnunarinnar ekki reikn- aður sérstaklega. Aftur á móti er hægt að fá hugmynd um neðri mörk áreiðanleikastuðla með því að skoða þáttaskýringu (h2; 2. tafla) einstakra staðhæfinga. Ef gengið er út frá því að sérhæfni (specificity) einstakra staðhæfinga sé engin jafngildir þáttaskýring einstakra spurninga áreiðanleikastuðli þeirra. Með öðrum orðum er gengið út frá því að þáttaskýring endurspegli eiginlega eða áreiðanlega dreifingu en önnur dreifing sé villudreifing. Þegar þáttaskýring staðhæfinga í 2. töflu er skoðuð með þetta í huga sést að áreiðanleiki flestra staðhæfinganna er of lítill til að gagnast í ákvarðanatöku af hvaða tagi sem er. Þetta þýðir að staðalvilla mælingar (standard error of measurement) er há og óvissa
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.