Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 48

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Síða 48
46 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 segir Kennedy – og ekki loku fyrir það skotið að hún opni þeim nýja heima og nýja möguleika í starfi. Ég tek undir þetta og vísa þá til eigin reynslu. Fyrir allmörgum árum skrifaði ég grein í Ný menntamál sem ég nefndi Raungreinar – til hvers? (Hafþór Guðjónsson, 1991). Þar greini ég frá athugunum sem ég gerði á forhugmyndum nemenda minna um loft. Ég var þá framhaldsskólakennari að kenna efnafræði og hafði kynnst rannsóknum á forhugmyndum barna eða „children’s preconceptions“ eins og það var kallað í fræðibókum sem ég aflaði mér (Driver, 1983; Driver, Guesne og Tiberghien, 1985; Osborne og Freyberg, 1985). Áður en ég kynntist slíkum rannsóknum hafði ég lítið leitt hugann að námi nemenda minna, hvernig þeir hugsuðu eða hvernig þeir lærðu. Ég kenndi einfaldlega mína efnafræði og lagði síðan fyrir próf til að gá að því hvort nemendur hefðu „náð þessu“ eins og maður orðaði það. Hvað væri að gerast í kollinum á þeim áleit ég utan minnar lögsögu. Hlutverk mitt var að koma námsefninu til skila og hlutverk nemenda að taka við því. Það var allt og sumt. Gengi það illa var helst við nemendur að sakast, að þeir væru annaðhvort ekki nógu gáfaðir eða ekki nógu iðnir nema hvorttveggja væri. Fræðibækurnar sem nú rak á fjörur mínar sögðu aðra sögu af nemendum. Þeir eru ekki viðtakendur heldur smiðir. Þeir taka ekki við þekkingu heldur skapa hana. Þeir gera sér hugmyndir og hugsanir úr þeim áreitum sem þeir verða fyrir og í ljósi þeirrar þekkingar sem þeir hafa áður skapað sér. Þegar við kennararnir erum að útskýra hluti fyrir nemendum finnst okkur sem við séum að færa þeim merkingu og skilning á silfurfati. Það er misskilningur, sögðu hin nýju fræði. Nemendur þiggja aldrei af okkur merkingu og heldur ekki skilning. Þeir verða að búa sér merkingu og skilning úr því sem þeir heyra og sjá í tímum á grundvelli þess sem þeir vita og skilja fyrir. Og ég skildi að sú mynd sem hér var gefin af nemendum var ekki ný af nálinni. Rannsakendur höfðu leitað í smiðju Piaget (1973). Á þriðja tug síðustu aldar tók Piaget ítarleg viðtöl við börn og komst þá að raun um að þau höfðu gert sér flóknar hugmyndir um alls kyns fyrirbæri löngu áður en þau fengu kennslu um þau. Á grundvelli þessara niðurstaðna og með hliðsjón af þekkingarfræði Immanuel Kant setti Piaget fram nýjar hugmyndir um það hvernig börn (og manneskjur yfirleitt) öðlast þekkingu: Þekking er ekki eitthvað sem kemur utan frá heldur eitthvað sem barnið skapar úr reynslu sinni og í þeim tilgangi að koma reglu á heiminn þarna úti. Án slíkrar sköpunar yrði lífið samhengislaust og heimurinn þarna úti óreiðan ein. Sú nýja sýn sem hér var boðuð og nefnd hugsmíðahyggja (constructivism) hreyfði við mér. Ég fór að sjá nemendur mína í nýju ljósi, sem þekkingarsmiði frekar en þekkingarþega, og þetta hafði, með tíð og tíma, áhrif á starfshætti mína. Samræður urðu til að mynda áberandi þáttur í kennslunni hjá mér. Ég var nú ekki lengur að koma efninu til skila heldur hjálpa nemendum mínum að byggja upp þekkingu sína. Þegar kennari er farinn að hugsa á þennan hátt verður samtalið eðlilegur þáttur í kennslunni: leið kennarans til að fylgjast með og styðja við þekkingarsköpun nemenda. En hin nýju fræði rugluðu mig líka í ríminu. Ég hafði vanist því að hugsa um þekkingu sem „eitthvað þarna úti“, til dæmis sem texta í námsbókum, enda var alltaf verið að segja í kringum mig að hlutverk okkar kennara væri að koma námsefninu (þekkingunni) til skila. Nú sögðu hin nýju fræði að þekking væri ekki „þarna úti“ heldur „þarna inni“, að nemendur hönnuðu hana sjálfir. Hvernig átti að koma þessu heim og saman? Satt best að segja olli þetta mér nokkrum hugarkvölum og það var ekki fyrr en allmörgum árum síðar að ég skildi hvernig landið lá. Þá var ég kominn í doktorsnám og farinn að átta mig á því að til eru margs konar orðræður um hluti og að merking orða getur verið breytileg frá einni orðræðu til annarrar. Ein tegund orðræðu (sú sem við kennum við heilbrigða skynsemi) kennir okkur að þekking sé eitthvað þarna úti. Önnur tegund orðræðu (sú sem flokkast undir hugsmíðahyggju) segir að þekking sé hugsmíð. Í ljósi þeirrar sögu sem hér hefur verið Að kenna í ljósi fræða og rannsókna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.