Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Qupperneq 53

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Qupperneq 53
51 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Að kenna í ljósi fræða og rannsókna skólastarfi. Að nokkru leyti hefur hann þegið þessa talshætti og þessar hugmyndir af því sem hann hefur upplifað á skólagöngunni (sbr. Lortie, 1975) en að öðru leyti úr orðræðu daglegs lífs – og styður þá líklega hvort við annað, minningarnar og myndirnar annars vegar og talshættirnir og hugmyndirnar hins vegar. Vandinn sem við er að glíma hér er einfaldlega sá að neminn telur sig vita svona nokkurn veginn hvað það felur í sér að kenna og hvað það felur í sér að læra. Hann er kominn með ákveðnar grunnhugmyndir um þetta og nú er bara að bæta í sarpinn! Ég hef þráfaldlega orðið var við þetta í vinnu minni með kennaranemum, ekki síst í kennsluréttindanáminu í Háskóla Íslands og gert því fræðileg skil (Hafþór Guðjónsson, 2004; Hafþór Guðjónsson, 2007). Inn í þetta nám kemur fólk sem stefnir að því að kenna tilteknar greinar í efri bekkjum grunnskólans eða í framhaldsskóla, þar á meðal verðandi raungreinakennarar en hlutverk mitt er einmitt að leiðbeina þeim. Væntingar þessa fólks í byrjun eru yfirleitt á þann veg að ég eigi að segja því hvernig það eigi að kenna sína grein. Kennslufræði raungreina er í huga þeirra flestra einhvers konar safn af kennsluaðferðum sem hafa reynst vel. Þessi afstaða er auðvitað eðlileg. Þeir, nemendur mínir, hafa vanist því að hugsa um þekkingu sem eitthvað tilbúið, eitthvað sem aðrir hafa uppgötvað eða púslað saman. Þannig er eðlisfræðin og efnafræðin og líffræðin og allar hinar greinarnar. Pottþéttir þekkingarpakkar. „Komdu nú með pakkann þinn,“ segja þeir við mig og eru þegar búnir að taka fram blað og penna, tilbúnir að glósa „það sem er vitað“. Þeir verða því svolítið ruglaðir og óöruggir þegar ég hafna þessari þöglu beiðni þeirra og bið þá í staðinn að horfa inn á við og skoða sínar eigin hugmyndir, grunnhugmyndir sínar um skólastarf – sinn eigin hugbúnað: hvernig þeir eru innréttaðir, hvernig menningin hefur kennt þeim að tala og hugsa um þekkingu, nám og kennslu. Ég geri þetta vegna þess að markmið mitt er ekki að rétta þeim það sem aðrir hafa hugsað heldur að gefa þeim tækifæri til að hugsa. Líkt og Korthagen og félagar í Hollandi legg ég áherslu á að nemarnir mínir búi til sín eigin fræði (með litlu f-i) út frá eigin reynslu af vettvangi skólans. Hins vegar legg ég mun meiri áherslu á tungumálið en þeir. Í grein þeirra sem ég fjalla um hér að framan (Korthagen og Kessels, 1999) er ekki minnst einu orði á tungumálið. Skýringin er að mínu mati sú að þessir höfundar nálgast kennaramenntun út frá sálfræðilegu sjónarhorni sem gefur tungumálinu stöðu miðils eða „rásar“: maður hugsar fyrst og notar svo tungumálið sem (hlutlaust) miðlunartæki eða rás til að koma hugsunum sínum á framfæri við aðra (Reddy, 1979). Í kenningasmíð Vygotsky og fylgjenda hans er tungumálið hins vegar verkfæri (tool) sem mótar gerðir okkar en gerir okkur líka kleift að skapa nýjar hugmyndir, til dæmis um skólastarf. Þetta getum við til dæmis gert með því að kynna okkur annars konar orðræður um hluti og fyrirbæri en við höfum vanist. Nemendur mínir í námskeiðinu Kennslufræði raungreina vinna á þessum nótum. Jafnframt því að ígrunda og setja á blað sínar eigin hugmyndir um skólastarf lesa þeir fræðigreinar um skólastarf. Lykilatriðið í þessu samhengi er hvernig þeir nálgast slíkar greinar, að þeir líti ekki á þær sem einhvers konar „pottþétt sannindi“ líkt og eðlisfræðina heldur „öðruvísi orðræður“ sem vert er að gefa gaum og sem gætu ef til vill nýst þeim (nemendum) í þeirra eigin starfskenningasmíð. Málið er auðvitað að rýna í slíkar greinar með gagnrýnu hugarfari: Á hverju byggir höfundur þegar hann heldur þessu fram? Eru hugmyndir af þessu tagi líklegar til að gagnast mér sem kennara eða skólastarfi almennt? Samræmast þær þeim siðferðilegu gildum sem ég trúi á? Hér á það ágætlega við sem Lee Shulman (1987) segir á einum stað, að eitt mikilvægasta markmið kennaramenntunar sé að nemendur temji sér að hugsa vel (reason soundly). Kennaramenntun snýst ekki fyrst og fremst um sannindi eða kenningar heldur að hjálpa fólki að þróa hugsun sína og starfshætti út frá eigin reynslu og í samspili við annað fólk, þar á meðal fræðimenn og hugsuði, bæði þá sem gengnir eru og nú eru uppi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.