Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 73

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Side 73
71 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 fjárveitingar eru forgangsmál svo auka megi gæði og hvetja til rannsókna. Stjórnvöld og háskólar glíma við að finna viðeigandi viðmið um fjárveitingar og hafa gæðastjórnunar- og hvatningarkerfi t.d. verið innleidd. Í úttektinni kemur fram að um þriðjungur birtra menntarannsókna á Íslandi er unninn af fræðimönnum við Uppeldis- og menntunarfræðaskor Háskóla Íslands, þar sem eru átta fastráðnir fræðimenn, þar af eru 40% prófessorar. Við Kennaraháskóla Íslands starfa um 140 fastráðnir kennarar; um 25% starfs- manna eru með doktorspróf, 12% eru prófess- orar. Alls um helmingur birtra menntarann- sókna kemur frá Kennaraháskólanum. Um 20 fastráðnir kennarar eru við kennaradeild Háskólans á Akureyri; um þriðjungur þeirra er með doktorspróf og 25% eru prófess- orar. Allir eru þessir háskólar að þróa metnaðarfullt framhaldsnám, en gert er ráð fyrir að rannsóknamenning háskólanna og frammistaða verði háð tilvist rannsóknartengds framhaldsnáms (Rannsóknamiðstöð Íslands og menntamálaráðuneytið, 2005). Skipulag kennaramenntunar á Íslandi nú um stundir Kennaranám fer fram í fimm mismunandi háskólum hér á landi. Samkvæmt lögum (nr. 137/1997) er Kennaraháskóli Íslands miðstöð kennara- og uppeldismenntunar á Íslandi en þar stunduðu nám haustið 2005 alls 2.367 nemendur, en 562 nemendur stunduðu nám við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Þá voru á sama tíma 111 nemendur við nám í kennslufræði til kennsluréttinda við Háskóla Íslands sem er 15–30 eininga viðbótarnám fyrir þá sem hafa lokið bakkalárgráðu í bóklegri faggrein sinni. Alls 38 nemendur stunduðu nám til kennsluréttinda við Listaháskóla Íslands haustið 2005, en þar er markmið námsins að nemendur byggi traustan grunn, bæði fræðilegan og verklegan, sem nýtist þeim við skipulagningu og framkvæmd listakennslu. Nemendum er skipt í þrjá faghópa í kennslufræði listgreina; kennslufræði myndlistar- og hönnunar, kennslufræði tónlistar og kennslufræði leiklistar. Haustið 2005 hóf Háskólinn í Reykjavík meistaranám í lýðheilsu- og kennslufræðum til M.Ed. gráðu og hófu það um 50 nemendur. Um er að ræða 60 eininga nám sem skiptist í 30 eininga kjarnanámskeið á sviði lýðheilsu með áherslu á börn og ungmenni og 30 eininga nám í kennslufræði. Námið veitir réttindi til að starfa sem kennari við grunn- og framhaldsskóla á Íslandi þar sem sérstök áhersla er lögð á þætti sem hafa áhrif á heilsu og velferð barna og ungmenna. Allir háskólarnir sem að framan er getið starfa eftir lögum og reglugerðum sem um þá gilda og uppbygging námsins er að miklu leyti mótað í hverri stofnun fyrir sig. Þjálfun kennaranema fer enn fremur fram í vettvangsnámi í grunnskólum landsins undir stjórn kennara. Í Kennaraháskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri er boðið upp á 90 eininga grunnmenntun en að auki er boðið upp á 15–30 eininga nám til kennsluréttinda fyrir fólk sem lokið hefur fagnámi í verkgrein (meistarabréf í iðngrein, iðnfræðinám, tæknifræðinám, verkfræðinám eða annað jafngilt nám), grunnnámi í listgrein (fullgilt lokapróf frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands, B.A. eða B.Mus.-gráða frá Listaháskóla Íslands eða jafngilt nám frá viðurkenndum háskóla), eða grunnnámi í bóklegri grein (B.A.- eða B.S.-gráða eða hærri prófgráða frá viðurkenndum háskóla). Við Kennaraháskóla Íslands og kennaradeild Háskólans á Akureyri eru framhaldsbrautir þar sem boðið er upp á nám til kennsluréttinda, diplómu- (Dipl.Ed.-) og meistaranám (M.Ed.). Við Kennaraháskólann var fyrst boðið upp á doktorsnám (Ph.D.) árið 2001. Þá býður félagsvísindadeild Háskóla Íslands upp á nám til kennsluréttinda fyrir fólk sem lokið hefur bakkalárgráðu og meistaranám í kennslufræði (M.A.) hófst þar haustið 2005. Hér á eftir verður stuttlega gerð grein fyrir almennri menntun kennaranema við Kennaraháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Í grunnáminu við Kennaraháskólann Að styrkja haldreipi skólastarfsins
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.