Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 104

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 104
102 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Kennaralisti Conners matsmanna (Achenbach, McConaughy og Howell, 1987) og ósamkomulag um hvernig beri að vinna með ósamræmi í mati þeirra er gagnsemi þess að afla upplýsinga frá mörgum matsmönnum almennt viðurkennd (Whalen og Henker, 1998). Sérstaklega er það mikilvægt við greiningu raskana á borð við athyglisbrest með ofvirkni (AMO) þar sem skilyrði greiningar samkvæmt DSM-IV er að einkenni séu til staðar í tvennum eða fleiri aðstæðum (American Psychiatric Association, 1994). Margir atferlislistar hafa verið gefnir út erlendis þar sem kennarar meta hegðun, félagshæfni og geðbrigði barna og unglinga. Þekkt og útbreidd matstæki af þessu tagi eru kennaralistar BASC (Behavior Assessment System for Children-Teacher Rating Scale; Reynolds og Kamphaus, 1992), RBPC (Revised Behavior Problem Checklist; Quay og Peterson, 1996), TRF (Teacher Report Form; Achenbach, 1991), SBS (Student Behavior Survey; Lachar, Wingenfeld, Kline og Gruber, 2000), DSMD (Devereux Scales of Mental Disorders; Naglieri, LeBuffe og Pfeiffer, 1994) og CTRS-R (Conners’ Teacher Rating Scale – Revised; Conners, 1997). Hérlendis hafa þessir atferlislistar ekki verið þýddir, staðfærðir, staðlaðir og gefnir formlega út. Endurskoðun á foreldra- og kennaralistum Conners beindist fyrst og fremst að próf- fræðilegum eiginleikum þeirra þar sem réttmæti eldri útgáfunnar hafði verið gagnrýnt (sjá yfirlit í Gianarris, Golden og Greene, 2001). Að auki var þörf á endurnýjun úreltra norma í Bandaríkjunum (Conners, Sitarenios, Parker og Epstein, 1998a, 1998b). Í endurskoðaðri útgáfu listanna fylgdi einnig nýr listi, unglingalisti Conners-Wells (Conners, 1997; Conners o.fl., 1997). Í 1. töflu er yfirlit um kvarða í kennaralista Conners. Kvarðarnir skiptast í tvo flokka. Annars vegar eru raunvísir kvarðar (empirical scales) og hins vegar eru klínískir kvarðar. Raunvísir kvarðar eru sex en klínískir kvarðar eru sjö. Í endurskoðaðri útgáfu á kennaralista Conners voru raunvísir kvarðar myndaðir með þáttagreiningu en klínískir kvarðar út frá notagildi safns atriða í greiningar- og meðferðaraðstæðum. Í endurskoðaðri útgáfu á kennaralista Conners voru raunvísir kvarðar myndaðir með leitandi þáttagreiningu og raunprófaðir með staðfestandi þáttagreiningu. Lítil til miðlungs fylgni var milli kvarðanna, enda eiga þeir að meta aðskildar víddir hegðunarerfiðleika og sálmeinafræði. Við þáttagreiningu kennara- listans í Bandaríkjunum komu fram sex þættir sem innihéldu 38 atriði og skýrðu 63% af dreifingu þeirra (Conners o.fl., 1998a). Þættirnir mynda sex raunvísa kvarða kennaralistans en þeir eru (1. tafla): (1) Mótþrói (Oppositional), (2) Hugrænn vandi/Athyglisbrestur (Cognitive Problems/Inattention), (3) Ofvirkni (Hyper- activity), (4) Kvíði-feimni (Anxious-Shy), (5) Fullkomnunarárátta (Perfectionism), (6) Félagslegur vandi (Social Problems) (Conners, 1997). Endurskoðuð útgáfa á kennaralista Conners inniheldur að auki sjö klíníska kvarða. Þessir kvarðar voru myndaðir út frá notagildi safns tiltekinna atriða kennaralistans í greiningu geðrænna vandkvæða hjá börnum, notagildi til að meta áhrif íhlutunar á hegðun barna og tengingu við DSM-IV greiningarkerfið. Klínískir kvarðar í kennaralista Conners eru eftirfarandi (1. tafla): (1) Heildartala AMO (ADHD Index), (2) Heildartala Conners: Eirðarleysi-hvatvísi (Conners’ Global Index: Restless-Impulsive), (3) Heildartala Conners: Tilfinningalegur óstöðugleiki (Conners’ Global Index: Emotional Lability), (4) Heildartala Conners: Samantekt (Conners’ Global Index: Total), (5) DSM-IV: Athyglisbrestur (DSM-IV Symptoms Subscales: Inattentive), (6) DSM- IV: Ofvirkni-hvatvísi (DSM-IV Symptoms Subscales: Hyperactive-Impulsive), (7) DSM- IV: Samantekt (DSM-IV Symptoms Subscales: Total). Inntak klínísku kvarðanna sjö skarast að hluta við raunvísu kvarðana sex. Heildartala AMO (ADHD Index) er sett saman úr 12 at- riðum sem greina best milli ofvirkra barna með athyglisbrest og venjulegra barna. Notagildi þessa kvarða er fyrst og fremst í skimun
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.