Gerðir kirkjuþings - 2006, Qupperneq 5
Ávarp biskups íslands, Karls Sigurbjörnssonar
Kirkjumálaráðherra, Bjöm Bjamason, forseti kirkjuþings, Jón Helgason, biskupar,
heiðmðu kirkjuþingsfulltrúar, góðir gestir. Verið velkomin til kirkjuþings. Tuttugu og
níu þingfulltrúar taka nú sæti á Kirkjuþingi, kjömir til setu næstu fjögur árin. Ég vil
þakka þeim öllum fyrir að vilja taka þátt í að móta stefnu kirkjunnar og stýra málum
hennar. Guð blessi ykkur og gefi að andi samstarfsvilja, góðvildar og umhyggju um
velferð kirkju Krists leiði störfin öll á Kirkjuþingi.
Með fjölgun leikmannafulltrúa í fimm fjölmennustu kjördæmunum og því að gefa kost
á að tilnefiia leikmenn utan sóknamefnda má vænta að Kirkjuþing endurspegli betur
breidd og fjölbreytni kirkjunnar, að lýðræðið eflist í kirkjunni og fleiri kallaðir til
ábyrgðar. Jafiiframt er mikilvægt að styrkja bakland Kirkjuþings, efla umræðu og
málsmeðferð heima í héraði og í stofhunum kirkjunnar. Kirkjuráð hefur markvisst
stefiit að því og að vanda allan undirbúning og miðlun upplýsinga.
Miklar breytingar em á þingliði, horfhir em af vettvangi þingmenn sem sett hafa svip
sinn á þingstörfin. Ég vil þakka þeim fyrir samstarfið á liðnum ámm. Séra Dalla
Þórðardóttir, kirkjuráðsmaður, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi þingsetu en mun
sitja þingið uns nýtt Kirkjuráð hefur verið kjörið. Hún var kjörin í Kirkjuráð 1998, og
var fyrst kvenna til að taka þar sæti sem aðalmaður. Jón Helgason, forseti Kirkjuþings,
sá fyrsti sem kjörinn var til forystu Kirkjuþings eftir að kirkjulögin tóku gildi, hefur
einnig látið af þingmennsku. Það var ómetanlegt fyrir kirkjuna að fá Jón Helgason til
liðs á mikilvægum tímamótum og að fá að njóta forystu hans við að móta nýja
starfshætti og reglur í samræmi við kirkjulögin.
I gær var undirritað samkomulag ríkis og kirkju um prestsetur. Em það söguleg
tímamót. Samkomulagið og tillögur að nauðsynlegum breytingum á lögum og
starfsreglum sem því tengjast verða á dagskrá Kirkjuþings. Ég vil hér þakka Bimi
Bjamasyni, kirkjumálaráðherra, sérstaklega fyrir atbeina hans að þessu máli, og
samráðherrum hans sem að málinu komu. Eins þakka ég þeim starfsmönnum
ráðuneytanna og Biskupsstofu og kirkjuráðsmönnum sem lögðu ómælda vinnu, hugsun
og krafta að mörkum.
Fjársjóður kirlgunnar
Kærleiksþjónustan er í brennidepli yfirstandandi starfsárs safiiaðanna, í samræmi við
Stefiiur og starfsáherslur sem Kirkjuþing samþykkti 2004.
Kærleiksþjónustan, diakonian, er ómissandi hluti hins kristna lífs. Gleðilegt er að sjá
víða í kirkjustarfinu hvemig prestar, djáknar og leikmenn finna nýjar leiðir í
þjónustunni við náungann, og opna nýja farvegi fyrir fagnaðarerindið. Ég vil þakka
það. Eins vil ég þakka starf Hjálparstarfs kirkjunnar og þeim öllum sem þar koma til
liðs.
ítrekað vitnar Jesús í orð fimmtu Mósebókar: “ Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu
hjarta þínu og af allri sálu þinni og af öllum mætti þínum. Og náungann eins og sjálfan
3