Gerðir kirkjuþings - 2006, Blaðsíða 97
16. mál Þingsályktun um Fjölskyldustefnu Þjóðkirkjunnar
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Sigríður M Jóhannsdóttir
Kirkjuþing 2006 samþykkir eftirfarandi íjölskyldustefnu Þjóðkirkjunnar og felur
biskupi og Kirkjuráði að gefa stefnuna út og kynna hana sóknum og stofnunum
kirkjunnar og fylgja eftir framkvæmd hennar:
Fjölskyldustefna Þjóðkirkjunnar
I. Einkunnarorð
„Elska skaltþú Drottin, Guðþinn, af öllu hjartaþínu, allri sáluþinni og öllum huga
þínum. Þú skalt elska náungaþinn eins ogsjálfanþig. “ (Matt. 22.37-39)
II. Forsendur
• Kristin trú byggir á þeirri forsendu að góður Guð gefi lífinu tilgang og sérhver
einstaklingur sé dýrmætur sem sköpun Guðs.
• Kristin kirkja metur gildi fjölskyldu og heimilis umfram flest annað í lífi
manneskjunnar.
• Kristin trú hefur ekki algildar reglur um fjölskyldulíf, en byggir á grunni
fagnaðarerindis Jesú Krists.
• Fleilsteypt fjölskyldulíf hvílir fyrst og ffemst á kærleika en jafhffamt á réttlæti
og öðrum siðgildum, svo sem virðingu og tryggð.
• Kristin trú bendir á breiskleika mannsins og bresti sem ávallt koma ffam í
mannlegu samfélagi, í fjölskyldulífi og á heimilum.
Þjóðkirkjan lítur svo á:
a) Að fjölskyldan hafi það hlutverk að leggja grunn að heilbrigði einstaklings til
líkama og sálar, ábyrgri samfélagsþátttöku og mannúðlegu samfélagi.
b) Að meðal hlutverka fjölskyldunnar sé að ala upp böm og koma þeim til manns,
geta af sér nýja kynslóð, miðla menningu, gildismati og góðum siðum áffam til
næstu kynslóðar.
c) Að fjölskyldan sé mikilvægasta eining náinna tengsla þar sem manneskjan á að
fá tækifæri til að þroskast og dafna, ekki síst bömin.
d) Að fjölskyldan sé mikilvægasti vettvangur trúamppeldis. Þar á að kenna bömum
að tjá sig, elska og biðja, þiggja og veita.
e) Að í fjölskyldunni sé einstaklingurinn viðurkenndur og elskaður jafnt í
styrkleika sínum og veikleika.
f) Að fjölskyldan einkennist af gagnkvæmum skuldbindingum fólks um varanlega
umhyggju og kærleika.
g) Að fjölskyldan sé grunneining samfélagsins og hvomgt þrífist án hins.
h) Að fjölskyldunni beri fullur stuðningur samfélagsins til að gegna hlutverki sínu .
95