Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 106

Gerðir kirkjuþings - 2006, Side 106
Að mati kenningamefndar snerta þessir ritningarstaðir ekki trúargrundvöllinn svo að ágreiningur um túlkun þeirra sundri einingu kirkjunnar. Þessir staðir fordæma ekki samkynhneigð sem slíka og heldur ekki þá einstaklinga sem lifa í kærleiksríkri sambúð ástar og trúfesti. b) Siðfrœðilegar hefðir Á grundvelli trúarinnar, að Guð sé skapari allra manna og að samur sé uppruni allra manna sem mynda eina fjölbreytta fjölskyldu um alla jörð, metur kirkjan alla jafna og talar máli réttlætis og mannréttinda. Á grundvelli trúarinnar á skapara himins og jarðar lítur kirkjan svo á að Guð kalli alla menn til þjónustu við sig í siðferðilega ábyrgu lífi, líka þá sem ekki viðurkenna tilvist hans. Að kristnum skilningi ber mönnum að lifa í heiminum samkvæmt tvöfalda kærleiksboðinu og gullnu reglunni. Þegar upp koma álitamál í siðferðilegum efnum, eins og hér er til umræðu, ber að hafa þau viðmið í heiðri. Allt til þessa hafa ríki heims og trúarbrögð mannkyns gengið út frá því að hjónaband sé samband karls og konu. Skilgreining kirkjunnar á hjónabandi hefur alla tíð gengið út frá því sama að Guð hafi skapað manninn, karl og konu og blessað þau. Að lúterskum skilningi er hjónabandið þó ekki sakramenti og ekki á forræði kirkjunnar, heldur lýtur sifjarétturinn, og þar með stofnun hjúskapar, lögum ríkisins. Lúther mat hjónabandið mikils sem hina góðu sköpunarreglu Guðs og samdi hjónavígslurítúal sem var snemma þýtt á íslensku og notað hér með litlum breytingum til loka 19. aldar. Aðkoma kirkjunnar að hjónavígslu byggir á því að ríkt hefur samskilningur menningar, löggjafar og trúar hvað varðar skilgreiningu á hjúskap svo að umræðan um endurskilgreiningu hjúskapar og hjónabands varðar samstöðu kirkju og samfélags. Kirkjan viðurkennir önnur sambúðarform til viðbótar hjónabandi karls og konu. c) Köllun kirkjunnar til þjónustu í heiminum Kirkjan er kölluð til að þjóna og bera Jesú Kristi vitni í heiminum. Með iðkun sinni, boðun, sálgæslu og þjónustu leitast kirkjan við að vera gestrisin og opin og vitna þannig um kærleika Guðs og náð sem umvefur alla, jafnt samkynhneigða sem gagnkynhneigða. Samkynhneigðir og fjölskyldur þeirra hafa oft mætt andúð og fordómum. Þeir þurfa því sérstaka umhyggju og stuðning hins kristna samfélags til að endurheimta og varðveita jákvæða sjálfsmynd sem Guðs böm og hluti hans góðu sköpunar. Kristnu samfélagi er mikilvægt að sýna virðingu og umhyggju, þolinmæði og umburðarlyndi. Á öllum, jafnt samkynhneigðum sem gagnkynhneigðum hvílir sama grundvallarskylda trúfesti, ábyrgðar, hófsemi og virðingar. Öll eigum við að lifa samkvæmt kærleiksboðinu: “Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu og náunga þinn eins og sjálfan þig.” Staðfest samvist er löggilt sambúðarform tveggja einstaklinga af sama kyni sem stofnað er hjá borgaralegum yfirvöldum og veitir þeim hliðstæð réttindi og hjónaband. Þjóðkirkjan styður þá einstaklinga af sama kyni sem staðfesta samvist sína og skuldbindingar. Þjóðkirkjan vill standa með þeim í vilja þeirra og viðleitni til að lifa saman í ást og trúmennsku. 104
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.