Gerðir kirkjuþings - 2006, Blaðsíða 112
Fyrirspumir til biskups íslands á Kirkjuþingi 2006
1. Fyrirspurn frá Kristínu Þórunni Tómasdóttur
í ljósi 100. máls á 133. löggjafarþingi, sem er ffumvarp til laga um breytingu á lögum
um staðfesta samvist, nr. 87/1996, og felur í sér að prestum og forstöðumönnum
skráðra trúfélaga er hafa vígsluheimild, sbr. 17. gr. hjúskaparlaga, verði heimilt að
staðfesta samvist fhttp://www.althingi.is/altext/l 33/s/0100.html), er spurt: hvert er álit
biskups á því hver það væri sem gæfi umsögn um málið af hálfu þjóðkirkjunnar, ef eftir
því verður leitað?
Einnig: telur biskup að þetta mál snerti fyrst og ffemst kenningarlegan grundvöll af
hálfu kirkjunnar, og hljóti því afgreiðslu á þar til gerðum vettvangi (svo sem
biskupafundi, kenningamefnd og prestastefiiu) eða hvort skoða þurfi aðrar hliðar, ef
þjóðkirkjan verður beðin um að verða við þessu erindi?
Að lokum: ef frumvarp þetta verður samþykkt óbreytt, í hvaða farveg vill biskup sjá
málið fara innan þjóðkirkjunnar?
Svar biskups
Hvað varðar þetta tiltekna mál um ffumvarp til breytingu á lögum um staðfesta samvist
þar sem vígslumönnum væri heimild að staðfesta samvist tel ég eðlilegt að leita álits
biskupafundar, prestastefnu og kenningamefiidar á því atriði. Afstaða þessara aðila
liggur ekki beinlínis fyrir hvað þetta varðar.
Ef frumvarpið yrði samþykkt óbreytt tel ég nauðsynlegt að biskupafundur, prestastefna
og kenningamefiid myndu tjá sig um ffamgang málsins.
2. Fyrirspurn frá Þorgrími Daníelssyni
a) Hversu oft hefur ekki náðst samstaða, í valnefiid, um val á presti, eftir að
valnefiidarfyrirkomulag var tekið upp?
b) Hvaða forsendur hefur biskup lagt til grundvallar úrskurðum sínum í slíkum
tilvikum?
Svar biskups
a) Valnefndir hafa náð samstöðu í 61 vali frá því valnefndarfyrirkomulagið var tekið
upp. Einu sinni hefur farið fram almenn kosning. Þrisvar hefur ekki náðst samstaða, þar
sem í einu tilviki var um stöðu prests að ræða.
b) Forsendur biskups hafa verið þær sömu og valnefiidir standa frammi fyrir, að meta
menntun, reynslu og starfsferil. Ég ítreka það sem ég hef áður sagt að miklu skiptir
hvað heimafólkið, söfiiuðurinn og samstarfsfólkið segir. Ef skýr afstaða meirihluta í
valnefiid hefur komið fram er eðlilegt að fara að vilja þess meirihluta.
3. Fyrirspurn frá Gunnlaugi Stefánssyni
Kemur til greina að Biskup íslands vígi ekki guðffæðinga til preststarfa og embætta án
undangenginnar auglýsingar um viðkomandi starf eða embætti?
110