Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 21
vegna auka Kirkjuþings þann 10. s.m. og á fund ráðsins í september 2006 þegar lögð
var lokahönd á undirbúning Kirkjuþings 2006.
Vígslubiskupar komu á fundi Kirkjuráðs þegar málefni biskupsstólanna Hóla og
Skálholts voru sérstaklega til umfjöllunar. Kirkjuráð tók í janúarmánuði þátt í
hugflæðifundi og umræðu um stöðu og ffamtíð Skálholtsskóla, ásamt vígslubiskupi og
skólaráði Skálholtsskóla. Kirkjuráð tók þátt í hátíðarhöldum vegna afmælis
biskupsstólanna beggja þ.e. 950 ára afmælis Skálholtsbiskupsstóls og 900 ára afmæli
Hólabiskupsstóls. Saga biskupsstólanna kom út fyrr á þessu ári af því tilefni, en
Kirkjuráð hefur veitt fé til útgáfúnnar sbr. samþykkt Kirkjuþings 2000 um ritun
stólasögunnar.
Framkvæmdastjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, Jónas Þórisson, kom á fund Kirkjuráðs til
að ræða húsnæðismál Hjálparstarfsins.
Stjóm Tónskólans, Kristján Valur Ingólfsson, formaður, Ólöf Kolbrún Harðardóttir,
söngkona og Kristinn Öm Kristinsson, skólastjóri, komu á fund Kirkjuráðs til að ræða
málefiii Tónskólans. Hörður Áskelsson, söngmálastjóri, stjómarmaður, var fjarverandi.
Kynntar vom og ræddar, hugmyndir stjómar skólans, skólastjóra og söngmálastjóra um
endurskoðun á starfsemi skólans.
Arbók kirkjunnar
Skýrslur kirkjulegra stofhana og nefiida birtast í Árbók kirkjunnar sem nær yfir
tímabilið frá 1. júní 2005 til 31. maí 2006. Árbókin var send þingfúlltrúum eftir að hún
kom út og geta þeir kynnt sér skýrslumar og annað ítarefiii í henni.
Fjárhagsáœtlanir og úthlutun
Kirkjuráð samþykkti í desembermánuði 2005 fjárhagsáætlanir Kirkjumálasjóðs og
úthlutaði úr Jöfinmarsjóði sókna og Kirkjumálasjóði fyrir árið 2006. Reyndi þar í fýrsta
skipti á nýtt fyrirkomulag þar sem Kirkjumálasjóður tekur nú að sér verkeftii
Kristnisjóðs. Hið nýja fýrirkomulag reyndist vel og em fjárhagsáætlamr gleggri og
einfaldari. Veitt var fé til verkefha sem lögmælt em, verkefna samkvæmt samþykktum
Kirkjuþings, t.d. Sögu biskupsstólanna eins og fyrr segir og verkefna samkvæmt
sérstökum ákvörðunum Kirkjuráðs. Að vanda var úthlutað styrkjum til ýmissa annarra
verkefiia. Þá veitir Kirkjuráð ffamlög til samningsbundinna verkefna, sem Þjóðkirkjan
er aðili að. Má þar t.d. nefiia Fomleifastofiiun íslands vegna fomleifarannsókna í
Skálholt, en samningurinn rennur út í árslok 2006, samstarfssamning um útgáfu
ritraðarinnar Kirkjur íslands, Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, Siðffæðistofhun
o.fl.
Umsóknarfrestur o.fl
Umsóknarffestur í sjóði sem Kirkjuráð stýrir var færður fram til 15. júní, vegna
úthlutunar fýrir næsta ár á eftir. Þannig þurftu umsóknir og fjárhagsáætlanir vegna
ársins 2007 að hafa borist fýrir 15. júní 2006. Var það hugsað svo að nægur tími yrði til
ffekari undirbúnings, gagnaöflunar og annars við mat á fjárhagsáætlunum og
19