Gerðir kirkjuþings - 2006, Page 27
5. Vinnu verði haldið áfram við rekstrarlíkan sókna í samrœmi við skýrslu starfshóps
sem fylgir skýrslu Kirkjuráðs. Skilgreindar verði skyldur og hlutverk sókna sem líkanið
byggir á. Unnið verði með sóknum landsins að þessu verki.
Vísað er til umfjöllunar hér að ffaman.
6. Kirkjuráð láti kanna hvernig lög nr. 32/1963 um afhendingu Skálholtsstaðar hafa
verið framkvœmd.
Eins og nánar er gerð grein fyrir í umfjöllun um Skálholt er ljóst að framlag ríkisins
samkvæmt tilvitnuðum lögum hefur hvergi nærri fylgt eðlilegri verðlagsþróun. Ríkið
hefur þó skuldbundið sig til að greiða hluta af kostnaði við byggingu þjónustuhúss í
Skálholti og má líta svo á að með því hafi fengist nokkur leiðrétting þessa. Kirkjuráð
telur því að öllu virtu, að vel megi við una.
3. mál Kirkjuþings 2005 Starfsreglur um niðurlagningu Raufarhafnarprestakalls
Samkvæmt samþykkt Kirkjuþings var Raufarhafnarprestakall lagt niður og tilheyrir
sóknin Skinnastaðarprestakalli, Þingeyjarprófastsdæmi. Starfsreglubreyting þessi hefur
verið birt í Stjómartíðindum lögum samkvæmt og jafhframt tilkynnt öllum
hlutaðeigandi þ.m.t. Þjóðskrá og Fjársýslu ríkisins.
4. mál Kirkjuþings 2005 Starfsskýrsla Prestssetrasjóðs
Afgreiðsla Kirkjuþings gaf ekkert sérstakt tilefni til aðgerða af hálfu Kirkjuráðs.
5. mál Kirkjuþings 2005. Fjölskyldustefna Þjóðkirkjunnar - áfangaskýrsla
Unnið hefur verið að tillögu að fjölskyldustefiiu Þjóðkirkjunnar og er lokatillaga lögð
fyrir Kirkjuþing 2006. Vísað er til nánari umfjöllunar um það mál í IV. kafla.
6. mál Kirkjuþings 2005. Þingsályktun um skipan prófastsdœma og
kirkjuþingskosningar
Nefhd sú sem kosin var á Kirkjuþingi 2004 til að fara yfir skipan prófastsdæma og
kirkjuþingskosningar skilaði skýrslu á Kirkjuþingi 2005. Störf nefhdarinnar leiddu af
sér talsverðar breytingar á þjóðkirkjulögunum hvað varðar Kirkjuþing, skipan þess,
kjördæmi o.fl. og jafiiffamt starfsreglum um kjör til Kirkjuþings, en reglum um kjör var
breytt umtalsvert svo og fjölgað á Kirkjuþingi. Það er mat Kirkjuráðs að störf þessarar
nefiidar hafi haft veruleg áhrif til góðs á starfsemi Þjóðkirkjunnar og
skipulagsbreytingar sem orðið hafa í ffamhaldi af störfum hennar séu ffamfaraskref.
Nánari grein er gerð fýrir þessu í umfjöllun um auka Kirkjuþing sem haldið var í
marsmánuði 2006 vegna fyrrgreindra breytinga á þjóðkirkjulögum og setningar nýrra
starfsreglna um kosningar og þingsköp í framhaldi af því. Einnig er vísað til
umljöllunar um 17. mál Kirkjuþings 2005. Nefhdin kynnti á héraðsfundum um land allt
árið 2005 hugmyndir um stækkun prófastsdæma, en almennt hlutu þær hugmyndir lítið
brautargengi.
7. mál Kirkjuþings 2005. Starfsreglur um íslensku Þjóðkirkjuna erlendis
Starfsreglubálkur þessi hefur verið birtur í Stjómartíðindum lögum samkvæmt og
jafnframt öllum hlutaðeigandi tilkynnt um gildistöku hans.
25