Gerðir kirkjuþings - 2006, Blaðsíða 33
starfsreglur um kosningar og kjördæmi o.fl. til að unnt væri að kjósa samkvæmt þeim
til Kirkjuþings sl. vor.
Tillögumar sem lagðar voru fyrir auka Kirkjuþingið höfðu verið sendar til umsagnar
auka héraðsfunda í öllum prófastsdæmum landsins. Fengu þær almennt góðar
undirtektir.
I athugasemdum sem fylgdu tillögu að starfsreglum um kjör til Kirkjuþings segir svo:
“a) Kjördæmi Kirkjuþings em talin upp í starfsreglum.
b) Auk presta bætast djáknar við í tölu vígðra manna.
c) Kjömum fulltrúum á Kirkjuþingi fjölgar í 29, 12 þeirra em vígðir menn og 17
em leikmenn. Um er að ræða fjölgun presta um einn í 1., 2. og 3. kjördæmi, um
einn leikmann sömuleiðis í sömu kjördæmum og jafnffamt um einn leikmann í 7.
og 9. kjördæmi.
d) Kjörgengi leikmanna er víkkað út þannig að allir þjóðkirkjumenn sem uppfylla
skilyrði til að vera í sóknamefnd í kjördæmi sínu 1. febrúar á kosningaári, em
kjörgengir til kjörs á Kirkjuþing.
e) Fyrirkomulagi tilnefiiinga leikmanna er breytt á þann veg að lagt er til að
sóknamefhdum í hverju kjördæmi, sé gefinn kostur á að tilnefna kjörgenga menn
til kjörs.
f) Sameiginlegur fundur fulltrúa sóknamefhda í kjördæminu, kjördæmisfundur
gangi frá þeim sem tilnefiidir em og em þeir einir í kjöri.
g) Kosningar em færðar aftur um tvo mánuði, en kosningaferlið sjálft stytt
nokkuð.
Samhliða tillögum þessum er flutt sérstakt mál um þingsköp Kirkjuþings en þar er
lítið um efihsbreytingar að öðm leyti en því sem leiðir af íjölgun þingmanna og
þar með í nefndum auk þess sem lagt er til að Kirkjuþing kjósi alla þóknananefnd
Þjóðkirkjunnar”.
Kirkjuþingið afgreiddi bæði málin og hafa tillögumar verið birtar í Stjómartíðindum.
Kirkjuþing breytti frumtillögunni á þann hátt að kosningar skyldu vera raffænar, en
jafnffamt var gert ráð fyrir póstkosningu ef tæknilegir örðugleikar kæmu í veg fyrir
rafræna kosningu. Kosið var eftir hinu nýja fyrirkomulagi í vor og er gerð nánari grein
fyrir kosningunum síðar í skýrslunni.
IV. Mál lögð fram á Kirkjuþingi 2006
1. mál Kirkjuþings 2006. Skýrsla Kirkjuráðs ásamt greinargerðum, skýrslum og öðrum
fylgigögnum
Skýrsla þessi er lögð fram á Kirkjuþingi 2006 skv. starfsreglum um Kirkjuráð nr.
817/2000. Arbók kirkjunnar kemur að venju að miklu leyti í stað sérstakra skýrslna
stofhana og nefhda á Kirkjuþmgi.
2. mál Kirkjuþings 2006. Fjármál Þjóðkirkjunnar
Að venju em fjármál Þjóðkirkjunnar lögð fram á Kirkjuþingi. Framsetning er með
hefðbundnum hætti. Reikningar stofiiana og sjóða em aðgengilegir á Kirkjuþingi fyrir
alla kirkjuþingsfulltrúa eins og verið hefur. Útdráttur úr helstu ársreikningum er í Árbók
kirkjunnar og sem hluti af málinu.
31