Gerðir kirkjuþings - 2006, Síða 35
vegna samnings sem undirritaður var sama dag og Kirkjuþing þarf að íjalla um.
Abendingar hafa komið ffam við efhi málsins, sem gefa tilefni til nánari skoðunar.
7. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um prófasta
Meðal nýmæla sem fram koma í tillögunni eru ítarlegri ákvæði um verkstjóm prófasta,
tilsjón og vísitasíu. Byggt á þeirri skipan að prófastar gegni verkstjómar- og
tilsjónarhlutverki sínu í umboði biskups íslands enda em þeir útnefndir af honum til
þeirra verka. Greinar um stöðu prófasta og hlutverk em ítarlegri en verið hefur og
einnig er próföstum ætlað hlutverk við að framfylgja stefhumörkun og samþykktum
Kirkjuþings.
Vísitasía prófasts er skilgreind á ítarlegri hátt en áður. Meðal nýmæla telst að prófastur
skal taka mið af skipulagi vísitasíu biskups íslands og vígslubiskupa sem gengið skal
frá á biskupafundi.
8. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um vígslubiskupa
I tillögunum er m.a. lagt til að við vísitasíu vígslubiskups verði lögð áhersla á hina innri
þætti kirkjulífs, hina vígðu þjónustu, helgihald, boðun, sálgæslu og safnaðarstarf. Með
þessu orðalagi er lögð áhersla á að vísitastía vígslubiskups skuli einkennast af áherslu á
þessa þætti vígðrar þjónustu og greina sig að því marki frá vísitasíu prófasts. Með því
móti er tilsjón og vísitasía veitt á markvissari hátt af hálfu biskupa og prófasta í þágu
safnaðanna.
9. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um biskupafund
Með því að fjalla um biskupafundinn í sérstökum starfsreglum í skipulagi kirkjunnar er
verið að leggja áherslu á að fundurinn fæst á sjálfstæðan og formlegan hátt við ýmis
viðfangsefiii eftir viðteknum venjum og kirkjuskipan, sem síður geta talist daglegt
viðfangsefiii biskupanna hvers um sig. Áffarn er gengið út frá þeirri forsendu að
biskupafundur gegnir tilgreindu hlutverki í stjómsýslu kirkjunnar.
10. mál Kirkjuþings 2006. Tillaga að starfsreglum um héraðsfundi og héraðsnefndir
Tillagan miðar að því að skýra betur stöðu og hlutverk héraðsnefndar og héraðssjóðs
gagnvart héraðsfundi. Verkefiii héraðssjóðs em skýrð mun betur en nú er.
11. mál Kirkjuþings 2006. Frumvarp til laga um breyting á lögum um kirkjugarða,
greftrun og líkbrennslu, nr. 36 4. maí 1993.
Mál þetta er flutt af dóms- og kirkjumálaráðherra og vísast til greinargerðar með
frumvarpinu.
Tillaga tilþingsályktunar um ákvörðun launa presta og aukaverk (sem kynnt hafði
verið sem 12. mál)
Dregið til baka. Fjallað hefur verið nokkuð um greiðslur fýrir aukaverk á umliðnum
árum og samþykkti Kirkjuþing 2003 að greiðslur fyrir þau skyldu felld niður og þær
koma með einhverjum hætti inn í föst laun presta. Ekki hefur reynst vilji til þess hjá
stjómvöldum, enda myndi það þýða hærri kostnað ríkissjóðs vegna launagreiðslna
presta. Tillaga Kirkjuráðs sem gekk út á að afhema greiðslumar og fela Kjararáði að
33