Gerðir kirkjuþings - 2006, Blaðsíða 38
Skálholt og Skálholtsskóli
Kirkjuráð ber ábyrgð á Skálholtsstað, sbr. lög nr. 32/1963.
Minnst var 950 ára afinælis biskupsstóls í Skálholti á árinu. Voru hátíðarhöld af því
tilefni dagana 21. — 23. júlí að viðstöddu fjölmenni í blíðskaparveðri. Var m.a.
helgihald, sérstök hátíðarguðsþjónusta á sunnudeginum, boðið upp á tónlist og margs
konar listviðburði aðra. Af þessu tilefiii lýsti dóms- og kirkjumálaráðherra því yfir að
ríkissjóður myndi skuldbinda sig til að greiða stofiiframlag til staðarins næstu árin, til
byggingar þjónustuhúss og bókhlöðu. Kirkjuráð hefur samþykkt að leggja frarn
stofnframlag á móti framlagi ríkisins. Er líklegt að þarfagreining og hönnun geti hafist á
næsta ári.
Kirkjuráð hélt tveggja daga fund í Skálholti í byijun ársins. Áður tók Kirkjuráð þátt í
hugflæðifúndi um stöðu og framtíð Skálholtsskóla og tóku um 20 manns þátt í
umræðunni. Þar komu fram margar góðar hugmyndir sem vörðuðu bæði framtíð
skólans og staðarins.
Kirkjuráð hafði jafiiframt unnið að hugmyndum að nýju skipuriti fýrir Skálholt þar sem
fram kom að stjóm staðarins verði skipuð vígslubiskupi sem formanni, auk tveggja
fulltrúa Kirkjuráðs. Hlutverk rektors breytist og er hann leystur undan ýmis konar
framkvæmdastjóm og daglegum rekstri. Ráðinn var ffamkvæmdastjóri Skálholts, sem
m.a. tekur yfir þá þætti. Skálholtsskóli verður rekinn sem hluti af Skálholti. Ekki er þó
um algeran samrnna staðar og skóla að ræða, enda þyrfti lagabreytingu til þess.
Eftir að hafa kynnt vígslubiskupi o.fl. framangreindar hugmyndir samþykkti Kirkjuráð
þegar á þessum fúndi að skipa stjóm Skálholts. í stjómina vom skipaðir
kirkjuráðsmennimir sr. Halldór Gunnarsson og Jóhann E. Bjömsson, auk sr. Sigurðar
Sigurðarsonar, vígslubiskups sem er formaður. Stjómin hefúr yfimmsjón með starfsemi
sem fram fer á vegum staðar og skóla, ffamkvæmdasýslu og gerð árlegra starfs- og
ijárhagsáætlana. Eitt af verkefnum stjómarinnar var að hrinda stefiiumótun fýrir
Skálholt í ffamkvæmd og ganga frá skipuriti fýrir staðinn. Samkvæmt nýju skipuriti
starfar framkvæmdastjóri við hlið rektors og báðir heyra undir stjómina.
Á fundi Kirkjuráðs í mars var eftirfarandi bókað:
A 100. fundi Kirkjuráðs, 9. mars 2006, samþykkir Kirkjuráð nýtt skipurit og skipulag
fyrir Skálholt:
1. Samkvœmt lögum nr. 32/1963fara Kirkjuráð og biskup Islands með forrœði
Skálholts fyrir hönd Þjóðkirkjunnar.
2. Kirkjuráð skipar stjóm Skálholts sem fer með stjóm Skálholts i umboði Kirkjuráðs.
3. Stjóm Skálholts er skipað vígslubiskupi sem er formaður og tveimur fulltrúum sem
Kirkjuráð skipar tilfjögurra ára. Núverandi stjórn erþó skipuð til l.júlí 2007.
4. Stjóm Skálholts vinnur eftir stefnu og skipuriti sem Kirkjuráð samþykkir.
5. Þessi samþykkt tekur gildi þegar í stað, 9. mars 2006.
Nýtt skólaráð var skipað frá og með 5. apríl 2006. Þar sem vígslubiskup er nú formaður
stjómar Skálholts, var talið rétt að hann sitji ekki lengur í skólaráðinu. Kirkjuráð
samþykkti að eftirtaldir væm skipaðir: Sr. Halldór Reynisson, sviðsstjóri ffæðslusviðs
Biskupsstofú, formaður, Hörður Áskelsson, söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar, sr. Egill
Hallgrímsson, sóknarprestur í Skálholti, Ásborg Amþórsdóttir, ferðamálafulltrúi
Bláskógabyggðar, Hulda Guðmundsdóttir, kirkjuþingsmaður, sr. Hreinn Hákonarson,
36